Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Qupperneq 23
upplýsingum The New York Times getur slík sekt numið allt að 100.00.00 dollurum. Vel þess virði Doktor Rob Huizenga segir þættina vera örugga en hann er læknir sem hefur starfað í kringum þættina í nokkur ár. Hann segir ótal reynslusögur sýna fram á þetta. Ali Vincent er dæmi um einstakling sem ber þættinum vel söguna. Hún var fyrsta konan sem sigraði í keppninni og hún telur þátttöku sína hafa verið vel þess virði. Hún missti 51 kíló í þættinum og hefur haldið sig við svipaða þyngd allar götur síðan. Í dag starfar hún sem talskona fyrir vörur og at- burði í tengslum við sjónvarpsþáttinn. Árangur í 50% tilfella Þjálfarar í bandaríska þættinum, Bob Har- per og Jilian Michels, segja að að minnsta kosti helmingur þátttakenda nái að halda sér nálægt þeirri þyngd sem þeir náðu í þætt- inum í að minnsta kosti nokkur ár eftir að þætti lýkur. Michels viðurkennir að keppendur geta misst sig algjörlega í baráttunni við að verða mjóir. Hún segir lækna skoða gaumgæfilega alla keppendur. Ef þeir verða uppvísir að neyslu vatnslosandi efna eða ef þeir neita sér um vökva í langan tíma þá ber að reka þá umsvifalaust úr keppni. „Þetta er því miður hin dökka hlið þáttanna, og jafnframt versta hliðin,“ segir hún en ítrekar að þátturinn hefur hjálpað mörgum og jafnvel bjargað mannslífum. Verður að vera öfgafullur James David Weinroth, framleiðandi og hug- myndasmiðurinn á bak við þáttinn, fagnar innilega 50% árangri þar sem markmiðið var aldrei að ná fram 100% árangri að hans sögn. Hann leggur áherslu á að tilgangurinn er fyrst og fremst sá að veita fólki inn- blástur til að lifa heilsusamlegu lífi á tímum þar sem offita er ein helsta ógnun við heilsu fólks. James viðurkennir að þátturinn sé öfga- fullur en tekur fram að hann verði einfald- lega að vera það til að vekja athygli áhorf- enda. Mikilvægt er að skora sífellt á sjálfan sig og fara út fyrir þægindaram- mann. Hægt er að þjálfa hugann með því að læra t.d. nýtt tungumál eða að læra á hljóðfæri. Einnig er hægt að bæta viljastyrk sinn á hverjum degi með litlum markvissum skrefum. Skoraðu á sjálfa(n) þig 26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 A llskonar gagnrýni hefur komið fram í sambandi við þættina erlendis í gegnum tíðina en ég vil bara benda fólki á að það á kannski ekkert endilega við hérna heima. Ég mæli með að fólk horfi fyrst á íslensku þættina og gagnrýni þá síðan út frá þeirra eigin forsendum,“ segir Guðríður Erla Torfadóttir þjálfari. Hún sér um að þjálfa keppendur í þættinum ásamt Evert Víglundssyni. „Ég get náttúrulega ekki svarað fyrir amerísku þættina en það er alveg á hreinu að enginn lenti í ofþjálfun hjá okkur,“ segir Guðríður. „Þegar fólk er kannski búið að tvöfalda þyngd sína þá er einfaldlega lífsnauðsynlegt að léttast. Ég mæli ekki með því að fólk fái kílóafjölda á heilann svona almennt séð því hreyfing og hollt mataræði skiptir ávallt mestu máli.“ Trúir ekki á skyndilausnir Hún segir óhætt að reikna með miklu þyngd- artapi hjá keppendum en leggur áherslu á að keppendurnir misstu sín kíló með heilsu- samlegum hætti. „Öllu þyngdartapi í þættinum var náð fram með aukinni hreyfingu og hollu mataræði. Hvorki ég né Evert trúum á skyndilausnir eða á óheilbrigðar leiðir til að léttast og við vorum trú okkar aðferðafræði allan tímann. Líkaminn er hannaður til að hreyfa sig og ef fólk telur að það sé heilsusamlegra að liggja upp í sofa heldur en að fara út og hreyfa sig þá er ég bara ekki sammála því.“ Hver keppandi varð að hreyfa sig a.m.k. í fjóra klukkutíma á dag. „Vanalega tóku þau þrjár æfingar á dag og stundum var ein æfingin kannski bara að fara í göngutúr eða út að hjóla. Þau þurftu að vakna klukkan hálf sex á hverjum degi til að fara út í líkamsræktarstöð. Þetta snýst mikið um að temja sér nýjar venjur og betra skipulag.“ Hver og einn hreyfir sig eftir eigin getu í upphafi og síðan eykst æf- ingarálagið eftir því sem líður á. „Þegar keppnin harðnaði fóru sum- ir keppendur að taka meira á því heldur en aðrir. Ef maður setur kannski tvo einstaklinga á hjól þá hefur fólk alltaf val um hvort þú keyrir þig út eða tekur bara létt á því.“ Mikil dramatík og læti Bandaríska útgáfan af þættinum er mjög dramatísk að hennar mati og það kom henni á óvart að íslenska útgáfan gefur ekkert eftir í þeim efnum. „Það var mikil keppni og mikið drama í gangi en heilt yfir var stemmingin mjög góð. Það voru tár, hlátur og rifrildi og allt sem gat komið upp kom í raun og veru upp. Þetta gefur ekki amerísku útgáfunni neitt eftir og það kom mér alveg á óvart hversu lítill munur er þarna á milli. Þegar fólk fer í svona mikla sjálfsvinnu þá blossa upp allskonar tilfinningar. Þetta var alveg mjög erfitt á köflum og auðvitað tengdist fólk mis- vel. Sumir urðu góðir vinir og aðrir ekki, eins og gengur. Það kom mér þó á óvart að ég náði að mynda meiri tengsl við keppendur heldur en ég bjóst við fyrirfram.“ Læknir á svæðinu Vel var hugsað um keppendur að hennar mati. „Allir keppendur fara í læknisskoðun í upphafi og það var læknir á staðnum frá heilsuhótelinu. Þá var einnig geðhjúkrunarfræðingur á svæð- inu sem einhverjir nýttu sér. Ef upp komu vafamál þá voru þau færð strax í skoðun og það varð í raun og veru aldrei neitt al- varlegt.“ Hún bendir á að þeir sem detta út úr þátt- unum hafa áfram að- gang af þjálfurum varðandi æfingar og næringu þangað til loka- þátturinn fer fram í apríl. „Við hvetj- um keppendur til að setja sér ný markmið eftir að lokaþátturinn fer fram. Ég vona að allir haldi áfram og haldi nýj- um lífsstíl í kjölfar þátt- anna. Ef meira en helm- ingur nær að gera það þá verð ég bara mjög ánægð.“ ÞJÁLFARI BIGGEST LOSER KEPPENDA Engin ofþjálfun hérlendis Ljósmynd/© Karl Petersson/ www.artimitati Guðríður Erla Torfadóttir þjálfari. * „Ég sé virkilega eftir því aðhafa hreyft mig í dag.“– sagði enginn, aldrei. „Við erum ekki komin með neinar áhorfstölur varðandi fyrsta þáttinn en þrátt fyrir það vitum við að þetta er mjög vinsælt efni. Við erum reyndar svo viss í okkar sök að við erum nú þegar farin að leggja drög að næstu ser- íu hér á landi,“ segir Pálmi Guðmundsson yfirmaður ljósvakasviðs hjá Skjá einum. Hann segir ljóst að keppendur noti hvorki fæðubótarefni né vatnslosandi efni meðan á upptökuferli stendur. Þórhallur Gunnarsson framleiðslustjóri hjá Saga film tekur í sama streng. „Keppendur eru undir leiðsögn þjálfara þáttanna allt fram í apríl þegar keppninni lýkur. Þeir eiga að ná markmiðum sínum án þess að nota einhverjar slíkar óheilsusamlegar aðferðir. Hvað varðar viðurlög við slíkum aðferðum þá tel ég ekki rétt að upplýsa einstaka liði samnings sem gerður er við keppendur enda er kveðið á um gagn- kvæma trúnaðarskyldu keppenda og framleiðanda í samningnum,“ segir Þórhallur. Íslenska útgáfan tekur mið af Skandinavíu Þeir taka báðir skýrt fram að vika í raunheimum sé sannarlega ein vika í ís- lenska sjónvarpsþættinum. „Við höfum hallað okkur meira að skandinav- ísku útgáfunni af þáttunum og höfum horft mikið til okkar nágrannalanda þegar kemur að skipulagi. Menningin þar er mun líkari því sem við þekkjum hér heldur en í Bandaríkjunum,“ segir Pálmi. Þagnarskylda á ekki við „Keppendur mega tjá sig við fjölmiða um reynslu sína af þáttunum að ákveðnum tíma liðn- um frá því að þættirnir hafa verið sýndir í sjónvarpi,“ segir Þórhallur en ekki fékkst uppgefið hversu langur sá tími er. Pálmi segir ekkert smátt letur vera hjá þeim sem ekki þoli dagsljósið. „Það eina sem við höfum komið í veg fyrir er að fólk sé að birta ljósmyndir af sér á samfélagsmiðlum, til að gefa ekki upp árangurinn fyrirfram. Keppendur hafa verið að tjá sig almennt víða hér heima í að- draganda þáttanna þannig að þessi þagnarskylda á hreinlega ekki við hérlendis eins lengi og keppendur eru ekki að tjá sig beint um árangurinn í þættinum til að skemma ekki söguna.“ VIKA Í RAUNHEIMUM ER VIKA Í SJÓNVARPI Ný þáttaröð í bígerð Pálmi Guðmundsson Þórhallur Gunnarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.