Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Side 27
Á
hugamálin tengjast heimilinu að sjálfsögðu og ég eyði
miklum tíma í að skoða blogg, blöð og annað sem teng-
ist því. Netið er endalaus uppspretta innblásturs og
endalaust af skemmtilegum bloggum, erlendum og inn-
lendum,“ segir Soffía Dögg blómaskreytir, stílisti og höfundur
heimilisbloggsins Skreytum hús. „Kósí, persónulegur og hlýlegur
eru einkennisorð heimilisins,“ segir Soffía sem telur mikilvægt að
fólk skreyti heimilið og njóti þess að stilla upp hlutum sem því
þykir vænt um til þess að skapa heimilislega stemningu. Soffíu
finnst gaman að gerast gullgrafari og kaupir gjarnan endurnýtta
húsmuni í Góða hirðinum og á vefsíðunni bland.is, en hún segist
þó eiga í ástarsambandi við IKEA þegar hún var spurð hvar hún
kaupi helst til heimilisins. „Alrýmið er í uppáhaldi, stofan og eld-
húsið. Þar safnast fjölskyldan saman og eyðir mestum tíma.
Barnaherbergin og svefnherbergið koma líka í hugann, svo er
yndislegt að liggja í baði. Kannski er húsið allt bara uppáhalds-
rýmið mitt,“ segir Soffía sem eyðir þó miklum tíma fyrir framan
tölvuna inni á skrifstofu. „Það er mitt svæði.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stór og veigamikill arinn setur mikinn svip á alrýmið
milli stofu og eldhúss.
„Ef þú ert með hluti sem þér finnst fallegir og eru
einkennandi fyrir þig uppi við, þá hlýtur heimilið allt-
af að verða staður sem þér líður vel á.“
Hundavænt heimili
Á ÁLFTANESINU BÝR SOFFÍA DÖGG GARÐARSDÓTTIR ÁSAMT MANNI SÍNUM OG TVEIMUR BÖRNUM.
Á HEIMILINU ERU TVEIR STÓRIR LABRADORHUNDAR OG SEGIR SOFFÍA MIKILVÆGT AÐ
HEIMILIÐ HENTI BÆÐI BÖRNUM OG HUNDUM
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
* „Áhugamálin tengjast heimilinu að sjálf-sögðu og ég eyði miklum tíma í að skoða
blogg, blöð og annað sem tengist því.“
PERSÓNULEGIR MUNIR SKAPA HEIMILISLEGA STEMMINGU
Fallegir og persónulegir munir gera heimilið hlýlegt.
26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
AFSLÁTTUR
%A60
ALLTAÐ
Reykjavík - Akureyri
G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0