Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Síða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Síða 27
Á hugamálin tengjast heimilinu að sjálfsögðu og ég eyði miklum tíma í að skoða blogg, blöð og annað sem teng- ist því. Netið er endalaus uppspretta innblásturs og endalaust af skemmtilegum bloggum, erlendum og inn- lendum,“ segir Soffía Dögg blómaskreytir, stílisti og höfundur heimilisbloggsins Skreytum hús. „Kósí, persónulegur og hlýlegur eru einkennisorð heimilisins,“ segir Soffía sem telur mikilvægt að fólk skreyti heimilið og njóti þess að stilla upp hlutum sem því þykir vænt um til þess að skapa heimilislega stemningu. Soffíu finnst gaman að gerast gullgrafari og kaupir gjarnan endurnýtta húsmuni í Góða hirðinum og á vefsíðunni bland.is, en hún segist þó eiga í ástarsambandi við IKEA þegar hún var spurð hvar hún kaupi helst til heimilisins. „Alrýmið er í uppáhaldi, stofan og eld- húsið. Þar safnast fjölskyldan saman og eyðir mestum tíma. Barnaherbergin og svefnherbergið koma líka í hugann, svo er yndislegt að liggja í baði. Kannski er húsið allt bara uppáhalds- rýmið mitt,“ segir Soffía sem eyðir þó miklum tíma fyrir framan tölvuna inni á skrifstofu. „Það er mitt svæði.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Stór og veigamikill arinn setur mikinn svip á alrýmið milli stofu og eldhúss. „Ef þú ert með hluti sem þér finnst fallegir og eru einkennandi fyrir þig uppi við, þá hlýtur heimilið allt- af að verða staður sem þér líður vel á.“ Hundavænt heimili Á ÁLFTANESINU BÝR SOFFÍA DÖGG GARÐARSDÓTTIR ÁSAMT MANNI SÍNUM OG TVEIMUR BÖRNUM. Á HEIMILINU ERU TVEIR STÓRIR LABRADORHUNDAR OG SEGIR SOFFÍA MIKILVÆGT AÐ HEIMILIÐ HENTI BÆÐI BÖRNUM OG HUNDUM Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is * „Áhugamálin tengjast heimilinu að sjálf-sögðu og ég eyði miklum tíma í að skoða blogg, blöð og annað sem tengist því.“ PERSÓNULEGIR MUNIR SKAPA HEIMILISLEGA STEMMINGU Fallegir og persónulegir munir gera heimilið hlýlegt. 26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 AFSLÁTTUR %A60 ALLTAÐ Reykjavík - Akureyri G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.