Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Side 53
Blokkirnar rísa í efra Breiðholti árið 1973. Ljósmynd úr myndröð sem Valdís Óskarsdóttir (f. 1950) birti í Þjóðviljanum um haustið.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Valdís Óskarsdóttir
„Íslendingar heima hjá sér, Stefanía, Valgerður Helga, Dagný og Hildur á Laufásveginum.“ 2012. Verk eftir
Þórdísi Erlu Ágústsdóttur (f. 1961) félaga í FÍSL, Félagi íslenskra samtímaljósmyndara.
Ljósmynd/Þórdís Erla Ágústsdóttir
Á Snæfellsjökli 1957, eftir Ingibjörgu
Ólafsdóttur (1914-1998).
Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Ingibjörg Ólafsdóttir
*… við sýnummargar mjögfallegar gæðamyndir.
26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Sýningu á verkum Rúnu –
Sigrúnar Guðjónsdóttur í
Hafnarborg, lýkur nú um
helgina. Rýnir Morgunblaðs-
ins lofaði sýninguna og skrifaði að
„samspil næmrar formskynjunar,
teikningar og efniskenndar nýtur sín
og lokkar áhorfandann á vit óræðra
djúpa og tóna“.
2
Japanska teiknimyndin Ak-
ira frá 1988 er á dagskrá
Svartra sunnudaga í Bíó
Paradís á sunnudagskvöldið
og hefst sýningin klukkan 20. Í mynd-
inni er félaga í mótorhjólagengi um-
turnað og hann hlaðinn yfirnátt-
úrulegum kröftum. Einungis tvö börn
eru fær um að stöðva hann.
4
Ástæða er til að minna á tón-
leika hins kunna ítalska pí-
anóleikara Domenico
Codispoti og íslensks
strengjakvartetts á Kjarvalsstöðum á
dánardegi Mozarts, klukkan 18 á
mánudag.
5
Áslaug Thorlacius verður á
sunnudag klukkan 15 með
leiðsögn um sýningu með
verkum systur hennar, Ingi-
leifar Thorlacius, í Listasafni ASÍ.
Ingileif lést árið 2010 eftir langvinn
veikindi en á sýningunni er úrval
verka listakonunnar.
3
Hin forvitnilega franska kvik-
myndahátíð heldur áfram í
Háskólabíói og full ástæða til
að hvetja áhugafólk um kvik-
myndir að líta við. Til að mynda er
mælt með myndinni Ég um mig og
mömmu sem rýnir Morgunblaðsins
lofar og gefur fjórar stjörnur.
MÆLT MEÐ
1
Svava Björnsdóttir opnar í dag, laugardag, klukkan 15, sýningu íListasafni Reykjanesbæjar en hún hefur vakið mikla athyglibæði hérlendis og erlendis fyrir skúlptúra sína sem unnir eru
úr pappír. Á sýningunni fá gestir að sjá ný verk eftir Svövu sem eru
sérstaklega gerð fyrir salinn í Reykjanesbæ en rýmið og heildar-
upplifun áhorfandans skiptir Svövu miklu máli. Verk Svövu eru
steypt úr lituðum pappírsmassa og eru þau bæði fjölbreytt og
óvenjuleg að lit og lögun. Verkin mynda ákveðinn samhljóm með
rýminu og kalla fram sterka upplifun áhorfandans.
Sýning hennar nú er óvenjuleg að því leyti að litir eru víðs fjarri
en öll verkin eru í svart-hvítu.
Svava segir að sýningin gefi mynd af ákveðinni þróun í list hennar
sem átt hefur sér stað undanfarin ár. „Náttúran er mér mjög hug-
leikin í þessari sýningu enda ber sýningin heitið Kría/Klettur/Mý,“
segir Svava.
„Ég held að náttúran skipi stóran sess í listsköpun flestra ef ekki
allra á einhvern óræðan hátt. Umhverfið hefur alltaf áhrif á mann,
hvort sem maður hallast að óhlutbundinni list eða raunsæislist.“
List alla daga, allan ársins hring
„Ég reyni að höfða til skynjunar og tilfinninga og miðla þeim áfram.
Þannig vil ég skapa ákveðna upplifun með verkum mínum.“ Svava
hefur lengi unnið með pappír og segir þann efnivið henta sér vel.
„Þetta er efni sem ég kynntist fyrir margt löngu og hefur fylgt mér
síðan. Efnið er einnig létt og umhverfisvænt.“
Aðspurð segir Svava að sköpunarferlið eigi sér hvorki upphaf né
endi. „Maður er stöðugt að vinna að listinni og með hugann við hana,
alla daga, allan ársins hring. Ætli það verði ekki þannig um ókomin
ár – það er víst of seint að snúa við núna.“
Í listsköpun sinni leggur Svava mikið upp úr heildarupplifun áhorf-
andans. „Upplifun áhorfandans og skynjun skiptir mig miklu máli og
ef maður nær að kalla fram jákvæð viðbrögð þó ekki sé nema hjá
einum þá er tilganginum náð,“ segir hún.
Svava segir það góða tilfinningu að setja upp sýningu. „Það er
mjög gaman og gefandi að vinna að og setja upp sýningu sem þessa
– það er toppurinn. Það gefur manni kraft og heldur manni við efnið.
Þegar sýningin er komin upp er hún ekki lengur í mínum höndum og
tími til kominn að huga að næstu verkefnum,“ segir Svava.
Sýning Svövu í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-húsum stendur
yfir til níunda mars. mariamargret@mbl.is
SKÚLPTÚRAR SVÖVU Í LISTASAFNI REYKJANESBÆJAR
Of seint að snúa við
Svava Björnsdóttir á sýningunni í Reykjanesbæ.
SVAVA BJÖRNSDÓTTIR HEFUR SKAPAÐ SÉR NAFN Í LISTHEIMINUM FYRIR SKÚLPTÚRA ÚR PAPPÍR. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.