Morgunblaðið - 04.01.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Betri líðan í hálsi, herðum og baki
undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Skráning á www.bakleikfimi.is
og í síma 897 2896
Hádegis- og eftirmiðdagstímar
í sundlaug Hrafnistu við Laugarás.
Með sambaívafi í Heilsuborg, Faxafeni 14
Hefst 7. janúar
Bakleikfimi
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Gestum á borgarbókasöfn í Reykja-
vík fækkaði um 2% milli áranna
2012 og 2013. Þeir voru um 620.000
árið 2013 en voru um tíu þúsund
fleiri árið áður. Samhliða færri
gestum drógust útlánin einnig sam-
an milli ára og voru 7% minni 2013.
Á liðnu áru voru þau um 912.000 en
980.000 árið 2012.
Þrátt fyrir færri útlán námu
sektargreiðslur til safnsins um 21
milljón árið 2013 sem er sama upp-
hæð og var árið 2012. Hins vegar
voru þessar greiðslur mun hærri
árið 2011 eða 27,5 milljónir.
Pálína Magnúsdóttir borgar-
bókavörður segir að bækurnar skili
sér betur aftur inn á söfnin eftir að
tekin var upp ný þjónusta í lok árs
2011, þar sem fólk fær áminningu í
tölvupósti um að skila áður en skila-
frestur rennur út.
Á þessu ári munu slugsararnir þó
þurfa að greiða meira fyrir van-
skilin. Hámarksgreiðsla á bóka-
bunka verður sex þúsund í stað
fjögur þúsund. Gjaldskráin verður
óbreytt að öðru leyti, 40 kr. dag-
sektir á bók en sektin fer þó aldrei
yfir sex þúsund. Árskort kostar
1.700 kr. en er frítt fyrir yngri en
18 ára.
„Þetta er eina leiðin fyrir okkur
til að fólk skili á réttum tíma. Það
er ekki markmið að ná inn tekjum
heldur liður í að fá fólk til að skila,“
segir Pálína.
Eftir hrun jókst aðsókn mikið og
náði hámarki árið 2009 þegar gest-
ir voru 690.000. Hið sama má segja
um útlán. Þau voru 959.000 árið
2006 og 1.178.000 árið 2009.
Teknar voru í notkun nýjar
sjálfsafgreiðsluvélar á öllum borg-
arbókasöfnum í ár sem styðjast við
örflögutækni í stað strikamerkja.
Útlánum á bóka-
söfnum fækkar
21 milljón greidd í sektargreiðslu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bókasöfn Á nýju ári verða há-
markssektir 6 þúsund krónur.
Fyrstu inflú-
ensutilfellin
greindust nú
um jólin.
Í tilkynningu
frá landlækni
kemur fram að
samkvæmt
upplýsingum
frá veirufræði-
deild Landspít-
alans hafi tveir
einstaklingar verið með inflú-
ensu, annar með inflúensu A(H1)v
og hinn inflúensku B. Líklegt er
talið að fólki með einkenni sem
líkjast inflúensu fjölgi á næstu
vikum.
Í tilkynningu landlæknis er tek-
ið fram að þrátt fyrir að inflúens-
an sé komin til landsins sé ekki of
seint að láta bólusetja sig gegn
henni. Þeir sem vilja bólusetn-
ingu geta haft samband við heim-
ilislækni eða heilsugæsluna.
Fyrstu flensutilfellin
greindust á Land-
spítalanum um jólin
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Samkvæmt nýrri reglugerð, sem tók
gildi um áramót, hækkar kostnaðar-
hlutur almennra sjúklinga í sjúkra-
þjálfun um 9,6% á þessu ári. Hækk-
unin er mismikil eftir hópum en
hlutfallslega mest hjá elli- og örorku-
lífeyrisþegum með skerta tekjutrygg-
ingu, eða 50,2%. Þar er þó ekki um há-
ar upphæðir að ræða í krónum.
Unnur Pétursdóttir, formaður Fé-
lags sjúkraþjálfara, gagnrýnir harð-
lega hvernig staðið var að breyting-
unni og segir sjúkraþjálfara uggandi
um áhrifin á ákveðna sjúklingahópa.
„Þetta var þruma úr heiðskíru lofti.
Þegar fólk mætti til vinnu í gærmorg-
un [2. janúar] beið eftir því tölvupóst-
ur um þessa breytingu frá kerfis-
stjóra Sjúkratrygginga, um að þetta
hefði verið sam-
þykkt og fólk
þyrfti að uppfæra
hjá sér tölvukerfin
ekki seinna en
strax til að geta
skráð meðferðir
gærdagsins,“ seg-
ir hún.
Unnur segir að
hvorki samninga-
nefnd FS við
Sjúkratryggingar Íslands né sérstök
samráðsnefnd FS hafi vitað að til
stæði að hækka kostnaðarhlut sjúk-
linga og ítrekar að ekki sé um að ræða
taxtahækkun til sjúkraþjálfara held-
ur auknar álögur á skjólstæðinga
þeirra.
„Þetta kemur misjafnlega út fyrir
ólíka hópa,“ segir Unnur um áhrifin af
breytingunni. „Fyrir einstaka hópa
breytir þetta engu, eins og börnin, en
fyrir almenna sjúklinga eru þetta
9,6%,“ segir hún. Sá hópur, þ.e. al-
mennir sjúklingar, sé stærsti hópur-
inn sem sækir þjónustu sjúkraþjálf-
ara en oft sé um að ræða vinnandi fólk
í erfiðum láglaunastörfum.
„Þeir [hið opinbera] aðstoða bless-
unarlega þá sem eru komnir á elli- eða
örorkulífeyri en sá hópur sem við er-
um hræddust um er lágtekjufólk, al-
mennt verkafólk, sem vinnur erfiðis-
störf sem kalla oft á stoðkerfis-
vandamál. Þetta fólk þarf oft hrein-
lega á sjúkraþjálfun að halda til að
það haldist vinnufært,“ segir Unnur.
Félag sjúkraþjálfara hefur þegar
sent mótmælabréf til Sjúkratrygg-
inga og heilbrigðisráðherra en Unnur
segir ákvörðun hans einkennilega í
ljósi umræðu síðustu vikna. „Fólk fær
þessa gusu framan í sig þegar ríkið er
að beina því til sveitarfélaga og fyr-
irtækja að stilla öllum álögum í hóf til
að verðbólgan fari ekki af stað og
launafólki er sagt að stilla launakröf-
um í hóf. Mér finnst þetta mjög sér-
stakt og vinnubrögðin í kringum þetta
eru kapítuli út af fyrir sig,“ segir hún.
Hlutur sjúklinga eykst
Ríkið dregur úr greiðsluþátttöku í sjúkraþjálfun Hlutur almennra sjúklinga
hækkar um 9,6% Enginn fyrirvari að breytingunum, segir formaður FS
Gjaldskrárbreyting
» Hlutur almennra sjúklinga í
kostnaðarþátttöku vegna
sjúkraþjálfunnar eykst um
9,6% frá áramótum.
» Breytingin felur ekki í sér
taxtahækkun til sjúkraþjálfara
en samningur þeirra við Sjúkra-
tryggingar rann út fyrir ári.
Unnur
Pétursdóttir
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Slasaður fálki, sem fannst skammt frá Höfn í Hornafirði
fyrir nokkrum dögum, var fluttur í Húsdýragarðinn í
gær eftir að hafa fengið aðhlynningu hjá fjölskyldu á bæ
nærri Höfn yfir hátíðarnar og læknisþjónustu hjá Ólöfu
Loftsdóttur dýralækni á Dýraspítalanum í Víðidal. Hann
var óðum að hressast eftir að hafa fengið sýklalyf og
sjúkramat af eyrnapinna og virtist nokkuð sprækur þeg-
ar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að.
„Það eru fjórir dagar síðan fólkið fann hann en þau
tóku eftir honum þar sem hann lá í einhverjum ruðningi
og furðuðu sig á því hvað hann væri spakur, því hann
flaug ekki upp fyrr en þau nálguðust hann,“ segir Ólöf.
„Þegar þau voru komin alveg að honum sá fjölskyldufað-
irinn að hann var meiddur, hann var slasaður bæði á
gogginum og öðrum vængnum, og hann gat náð honum
og hann barðist ekkert um,“ segir hún.
Ólöf segir fuglinn hafa verið orðinn mjög máttvana,
hann hafi líklega flogið á vír en var ekki vængbrotinn.
Fjölskyldan flutti fálkann heim, þar sem hann dvaldi í
góðu yfirlæti og tók við þeim mat sem honum var gefinn.
„Á síðasta degi var hann hættur að éta og það var komin
svo vond lykt af sárinu að þau ákváðu að koma með hann
til okkar á dýraspítalann. Við bara þrifum upp sárin og
bárum á hann smyrsl og settum hann á sýklalyf. Og
sáum strax að þetta var ekki það mikið sár að það þyrfti
að gera neitt meiriháttar annað en að þrífa það og ná
tökum á sýkingunni,“ segir hún.
Fálkinn er ungur og því var hann mataður á dýraspít-
alanum en á boðstólum var próteinríkur kattamatur, gef-
inn með eyrnapinna. Hann tók vel við sér og lét fara fyrir
sér í gærmorgun. „Þá var hann orðinn svo hress að hann
var búinn að drasla út allt búrið sitt og farinn að rífa
kjaft og blaka vængjunum og þá var bara hringt niður í
Húsdýragarð og óskað eftir því að hann yrði sóttur,“
segir Ólöf. Hún segir þetta ekki í fyrsta sinn sem ránfugl
komi á dýraspítalann, þangað hafi verið komið með fálka
og uglur og einn og einn örn en fuglarnir séu vanalega
fluttir í Húsdýragarðinn í eftirmeðhöndlun, þar sem vel
er séð um þá.
Ólöf segir að eins og er sé útlitið fyrir bata gott en
framhaldið velti á því hvort fuglinn læri að éta. „Miðað
við hvað hann var orðinn sprækur og uppvöðslusamur er
ég bara mjög vongóð,“ segir hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungfugl Fálkinn fékk kattamat á dýraspítalanum en verður líklega gefið kjöt í Húsdýragarðinum.
Með fálka í fóstri
Fjölskylda fann slasaðan fálka nærri Höfn í Hornafirði
Meiddur á gogg og væng Fékk kattamat á eyrnapinna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Læknismeðferð Hallveig Guðmundsdóttir dýrahirðir
og Ólöf Loftsdóttir dýralæknir annast um fuglinn.