Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 Það verður ekkert afmæli í dag,“ segir Jón Trausti Sigurðarson,sem er 32 ára í dag. „Í staðinn fer ég í fjölskylduboð austur ísveit, sem er bara hið besta mál. Á þessum aldri er það gott tækifæri til að þurfa ekki að halda upp á afmælið. Ekki að ég myndi gera það, það er þá bara pottþétt að ég þarf þess ekki. Þessi afmæl- isdagur mun því fara fram í kyrrþey.“ Síðustu ár segist Jón Trausti þó hafa haldið afmæli nokkuð markvisst. „Ég hélt það meira að segja á bar í fyrra. Það var í eina skiptið sem ég hef haldið afmælið mitt á bar. Kannski aðeins of seint. Ekki seinna vænna,“ segir Jón Trausti. „Ég hélt alltaf afmælisveislur heima hjá mér, þar blandaðist saman fólk sem ætti líkega aldrei að hittast; ólíkir vinahópar og fjölskylda sem blandast eins og olía og vatn. Það er kannski kominn tími til að slútta því bara. Svo er það líka þannig að þegar maður eignast börn getur maður bara haldið upp á afmælið þeirra í staðinn,“ en Jóni Trausta og Ingu Láru Ingvarsdóttur fæddist sonurinn Flóki Forni 26. september á nýliðnu ári. „Þetta var gott ár. Ég varði ritgerðina mína sama dag og drengurinn fæddist,“ en Jón Trausti lauk meistaranámi í lögfræði við Háskóla Íslands í október. „Það var engin útskrift, manni var bara afhent skírteini á laugardegi fyrir hádegi. Svo var ég líka lögregluþjónn á Ísafirði í sumar. Þar sá ég ýmislegt sem ég hefði ann- ars aldrei séð. Maður veit að margt af þessu er til en þarf aldrei að horfast í augu við.“ gunnardofri@mbl.is Jón Trausti Sigurðarson er 32 ára í dag Feðgar Jón Trausti og Flóki Forni, sonur Jóns og Ingu Láru Ingv- arsdóttur, á Þorláksmessu. Flóki fæddist 26. september í fyrra. Afmælisdagurinn fer fram í kyrrþey Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Guðlaug Hinriksdóttir frá Brekku á Seltjarnarnesi er níræð í dag, 4. janúar. Eiginmaður hennar var Sigurlaugur Bjarnason frá Fjalla- skaga í Dýrafirði, d. 1978. Þau eignuðust 8 börn sem öll eru á lífi. Eru ömmu-, langömmu- og langalangömmubörnin orðin 37 talsins. Þau bjuggu lengst af á Ragnheiðarstöðum í Flóa. Þar voru þau með blandaðan búskap og mikla gulróta- og kartöflurækt. Hún býr nú á Höfðagrund 2 á Akranesi. Guðlaug er heilsugóð og sér um sig sjálf. Hún þakkar ættingjum, vinum og sam- ferðafólki hlýju og vinsemd í gegnum árin. Hún verður í Liljuhúsi við Arkarlæk á afmælisdaginn í glöðum hópi afkomenda. Árnað heilla 90 ára Ó lafur G. Arnalds fæddist í Reykjavík 5.1. 1954 og ólst þar upp við Stýrimannastíginn. Hann var í Miðbæj- arskólanum, lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, lauk stúdentsprófi frá MR 1974, BS-prófi í jarðfræði frá HÍ 1980, lauk MS- prófi í jarðvegsfræði frá Montana State University í Bandaríkjunum 1984 og Ph.D.-prófi í jarðvegsfræði frá Texas A&M University 1990. Til sjós á síðutogurum BÚR Ólafur fór 15 ára á síðutogarann Þorkel Mána og var á síðutogurum BÚR næstu fjögur sumur. Þú hefur ekki verið sjanghæjaður um borð eins og ýmsir útigangs- menn borgarinnar á þessum árum? „Nei. Ég var þarna af fúsum og frjálsum vilja. Kom vitaskuld blá- edrú um borð og var þess vegna oft- ast á stýrinu á útstíminu. Þetta var í sjálfu sér ekki erfið sjómennska. Við vorum mikið á karfa en sumum þótti úthaldið of langt. Þetta var engu að síður mikill skóli fyrir óharðnaðan ungling. En þá voru líka viðhorfin önnur. Öllum þótti sjálfsagt að unglingar kynnt- ust samfélagi sínu með vinnu- framlagi til sjávar og sveita. Þetta var mitt framlag og lengi vel fylltist maður ákveðnu stolti þegar maður leit í baksýnisspegilinn og rifjaði upp þessi sumur til sjós.“ Ólafur var síðan í sumarvinnu við hafnargerð í Súgandafirði og fanga- vörður við Síðumúlafangelsið í eitt sumar. Hann hóf síðan sumarstörf hjá Rannsóknarstofnun landbún- aðarins, vann þar á háskólaárunum, var sérfræðingur þar 1991-97 og vann þá einkum að rannsóknum á jarðvegsrofi og að mati á ástandi beitilanda. Hann var deildarstjóri og verkefnastjóri við Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins 1998-2005, Ólafur G. Arnalds prófessor – 60 ára Sandar og gróður Ólafur virðir fyrir sér útsýnið af Pétursey á Mýrdalssandi með Mýrdalsjökul í baksýn. Moldin og landið Fjallarómantík Ólafur og Ása Lovísa njóta veðurblíðunnar á Rjúpnafelli. Þorbjörg Erna Óskarsdóttir varð áttræð 2. janúar sl. Í tilefni af þeim tímamótum tekur hún á móti vinum og ættingjum sunnudaginn 5. janúar kl. 14-18 í veislusal í Frostafold 18-20, efstu hæð. 80 ára Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.