Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Heimsmarkaðsverð á útfluttum þorskafurðum lækkaði um 20% á síð- asta ári, að sögn dr. Jóns Þrándar Stefánssonar, sem fer fyrir greining- ardeild Markó Partners. Hann spáir því að verðið muni haldast nokkuð stöðugt á næstu mánuðum. „Framboðið er nokkuð svipað nú og það hefur ver- ið að undan- förnu,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Nýjustu útflutn- ingstölur sem birtar hafa verið eru fyrir tímabilið janúar til október en von er á nýrri tölum innan tíðar. Markó Partners veitir ráðgjöf til sjávarútvegsfyrirtækja og gefur út með reglulegu millibili Seafood In- telligence Report sem inniheldur greiningu á ýmsu er varðar eftir- spurn og framboð á hvítfiski. Fyrir um einu og hálfu ári spáði fyrirtækið því að heimsmarkaðsverð á þorski gæti lækkað um allt að 20% á árinu 2013 og hefur lækkunin orðið nálægt þeirri spá eins áður hefur komið fram. Jón Þrándur segir að lækk- unina megi meðal annars rekja til aukins framboðs. Þorskkvóti í Bar- entshafi var aukinn um hátt í 190 þúsund tonn á síðasta veiðiári. Samkvæmt gögnum Hagstofunn- ar lækkaði afurðaverð sjófrystra af- urða frá Íslandi um 14% milli 2012 og 2013, að því er fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær. Óverulegur munur er á mælingum Hagstofunn- ar og Markó Partners og segir Jón Þrándur að í þeirra gögnum sé horft til verðþróunar í evrum og því lita gengisbreytingar krónu á liðnu ári ekki samanburð á afurðaverði á milli ára auk þess sem tímabil saman- burðar geti verið breytilegt. Haldið sjó í tvo mánuði Heimsmarkaðsverð á sjófrystum afurðum hefur haldið sjó á undan- förnum tveimur mánuðum vegna takmarkaðs framboðs. Veiðin í Bar- entshafi gekk ekki vel í lok árs, það takmarkaði framboðið sem aftur leiddi til þess að verðið hækkaði lít- illega. Fiskvinnsla færist í land Fram hefur komið í fjölmiðlum að miklar breytingar eiga sér nú stað í veiðum og vinnslu sjávarafurða hér á landi. Fiskvinnslan sé smám saman að færast í land, sjófrysting minnki og frystitogurum fækki.Útgerðar- menn hafa sagt í fjölmiðlum að auð- lindaskattur hafi lagt sitt á vogar- skálarnar til að stuðla að þessari þróun. Jón Þrándur segir að arðsemin sé meiri í landvinnslu en hjá frystitog- urum, launakostnaður sé lægri í landi og hærra afurðaverð fáist fyrir ferskar afurðir. Þess vegna séu út- gerðir að færa sig í auknum mæli yf- ir í landvinnslu. Auk þess sé sveigj- anleiki í vinnslunni meiri í landi en á sjó. Þorskverð lækkaði um 20% í fyrra Haldið sjó Heimsmarkaðsverð á sjófrystum afurðum hefur haldið sjó á undanförnum tveimur mánuðum vegna takmarkaðs framboðs.  Dr. Jón Þrándur Stefánsson, sem fer fyrir greiningardeild fjármálafyrirtækisins Markó Partners, telur að heimsmarkaðsverð á útfluttum þorskafurðum muni haldast nokkuð stöðugt á næstu mánuðum Jón Þrándur Stefánsson Markó Partners » Markó Partners veitir ráð- gjöf til sjávarútvegsfyrirtækja og gefur út Seafood Intelli- gence Report sem inniheldur greiningu á eftirspurn og fram- boði á hvítfiski. VE ST UR LA ND SV EG UR VÍKURVEGUR ÞÚ SÖ LD VÍ NL AN DS LE IÐ Nýtt þjónustuver Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) opnaði að Vínlandsleið 16 í Grafarholti þann 2. janúar sl. SÍ annast framkvæmd sjúkra- og slysatrygginga. Frekari upplýsingar: • Þjónustuver SÍ – Vínlandsleið 16, Reykjavík • www.sjukra.is • Réttindagátt – mínar síður á www.sjukra.is • sjukra@sjukra.is • Sími 515-0000 Nýtt þjónustuver Sjúkratrygginga Íslands opnaði 2. janúar SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS VÍNLANDSLEIÐ 16 150 REYKJAVÍK Verið hjartanlega velkomin á nýjan stað á nýju ári! Landsbankinn hefur nú lokið leið- réttingu endurreiknings á um 18.000 lánum sem kváðu á um ólög- mæta gengistryggingu, þar með tal- ið bílalána (bílalán og bílasamn- ingar), fasteignalána og lána til fyrirtækja. Samanlögð fjárhæð þess- ara leiðréttinga er um 21 milljarður króna. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá bankanum. Bankinn segir að undanfarna mánuði hafi verið lögð áhersla á að reikna lán sem féllu undir dóm Hæstaréttar í svokölluðu Plastiðju- máli. „Lokið hefur verið við að leið- rétta um 90% þeirra lána. Leiðrétt- ing endurreiknings þeirra lána og samninga sem eftir eru hefur reynst flóknari og tímafrekari en áætlað var í fyrstu,“ segir í tilkynningunni. Í kjölfar nýlegra dóma Hæsta- réttar sem vörðuðu uppgreidda saminga og fjármögnunarleigu- samninga liggur fyrir að leiðrétta og endurreikna þarf um 17.000 lán til viðbótar því sem áður var talið. Landsbankinn segist hafa sett sér það markmið að leiðréttingu allra þessara lána verði að fullu lokið á fyrri hluta ársins 2014. Morgunblaðið/Kristinn Endurútreikningur Landsbankinn hefur nú lokið leiðréttingu endurreikn- ings á um 18.000 lánum sem kváðu á um ólögmæta gengistryggingu. Leiðrétt ólögmæt lán fyrir 21 milljarð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.