Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is „Hugmyndin að plötunni kom þegar ég og Charles Ross vorum að vinna að annarri plötu með söngkonunni Kjuregej,“ segir tónlistarmaðurinn Halldór Warén, en hann gaf á dögunum út plöt- una Ekki bara fyrir börn. Hug- myndin að plöt- unni Ekki bara fyrir börn er byggð á geisladisknum Not just for kids sem þeir Jerry Garcia og David Grisman gáfu út árið 1993. „Vinkona mín, Kristín Birgisdóttir, kom með þessa plötu til mín fyrir mörgum ár- um. Hún er mjög akústísk og róleg en tónlistin er samt kunnugleg á þann hátt að þú hefur örugglega heyrt eitthvað af tónlistinni áður í út- varpinu til dæmis. Ég og Ross fórum að taka upp eitt og eitt lag með ís- lenskum textum eftir Sævar Sig- urgeirsson (úr Ljótu Hálfvitunum) en þetta verkefni var samt alltaf í aft- ursætinu þar til í haust þegar við ákváðum að kýla á þetta og ljúka við plötuna,“ segir Halldór. Halldór býr á Egilsstöðum og hið sama er að segja um marga þá sem koma fram á plötunni. „Svili minn, Magni Ásgeirsson, syngur með okk- ur bakraddir. Hann var í Mennta- skólanum á Egilsstöðum. Esther Jökulsdóttur hef ég þekkt lengi og hún er líka að austan. Freyr Eyjólfs- son hefur einnig verið með okkur í þessu, og foreldrar hans búa á Egils- stöðum þannig að við höfum verið að kippa hinum og þessum Austlend- ingum inn í þetta með okkur,“ bætir Halldór við. Sannkölluð Suðurríkjatónlist Þegar Halldór er beðinn um að lýsa tónlistinni stendur ekki á svarinu. „Þetta er upprunalega hreinræktuð bluegrass-tónlist með kassagítar og mandólíni, en við ger- um þetta að svolítið meiri þjóðlaga- tónlist. Við notum mikið klapp og stapp, blásum í flöskur og svoleiðis. Sum lögin eru þannig að þú vilt dansa við þau. Yfirleitt fannst mér lagið ekki vera tilbúið fyrr en ég var farinn að yppta öxlum og taka undir eins og sannur redneck,“ segir Halldór. Plat- an var tekin upp víða um landið, og jafnvel fyrir utan landsteinana. „Ég er með stúdíó heima þar sem við byrjuðum. Síðan er hluti af söngnum tekinn upp á sveitabæ á Suðurlandi þar sem ég var staddur með fjöl- skyldu minni og annað var tekið upp í Reykjavík. Síðan tók Freyr Eyjólfs- son upp sinn hluta í París.“ Sungið um Lagarfljót Sævar Sigurgeirsson sá um að færa alla textana yfir á íslensku nema tvo. „Það er ótrúlegt hvernig þessir textar komu allt í einu upp úr honum. Eini textinn sem við lentum í smá vandræðum með var í laginu Lagarfljót. Ég var búinn að tala við nokkra um að gera texta en svo end- aði það með því að ég bað Stefán Snædal Bragason, bæjarritara Fljótsdalshéraðs, um að spreyta sig og það tókst. Upprunalega lagið fjallar um ána Shenandoah í Missouri í Bandaríkjunum, svo ég sá fyrir mér að þetta ætti að fjalla um Lag- arfljótið. Þetta er endapunkturinn á plötunni og svolítið trist lag,“ segir Halldór að lokum. „Bluegrass-tónlist með kassagítar og mandólíni“  Halldór Warén gefur út plötuna Ekki bara fyrir börn Morgunblaðið/Árni Sæberg Erlend fyrirmynd Hugmyndin að plötunni Ekki bara fyrir börn er byggð á geisladisknum Not just for Kids sem Jerry Garcia og David Grisman gáfu út 1993, að sögn Halldórs Warén. Fyrsta barnaleiðsögn ársins í Þjóðminjasafni Ísland verður á morgun, sunnudag, kl. 14. „Skoðaðar verða beinagrindur frá landnámsöld og silfurhellir en í hellinum leynast meðal annars kóngulær og drekar,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá safninu. Þar kemur fram að leiðsögnin sé um 45 mínútur að lengd, að- gangur sé ókeypis og allir vel- komnir. Morgunblaðið/Golli Spennandi Gestum gefst m.a. tækifæri til að skoða beinagrindur frá landnámsöld. Barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands: Sunnudagur 5. janúar kl. 14: Ókeypis barnaleiðsögn Síðasta sýningarhelgi jólasýninga á 3. hæð og á Torgi Sigfús Eymundsson myndasmiður - Frumkvöðull íslenskrar ljósmyndunar í Myndasal Silfur Íslands í Bogasal Silfursmiður í hjáverkum í Horni Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17. SKÖPUNARVERK - KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR 8.11. 2013 - 9.2. 2014 GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013 GERSEMAR 8.11. 2013 - 19.1. 2014 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánud. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Lokað í janúar. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Lokað í janúar. Dvalið hjá djúpu vatni Rúna – Sigrún Guðjónsdóttir Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Viðmið Paradigm (7.6. – 5.1.2014) Síðasta sýningarhelgi Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.