Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 48
Fiðringur „Mesta fiðringinn vekur þó frétt þess efnis að von sé á nýrri plötu frá hinni ótrúlegu Joönnu Newsom en síðasta plata, Have One on Me, kom út 2010,“ segir m.a. í pistli um það sem ber hæst í tónlistarútgáfu á árinu. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Maður er svona nýbyrjaður að kanna allar þessar plötur sem fóru framhjá manni á síðasta ári og þá er þegar farið að birta langar og ítarlegar greinar um það sem í vændum er á þessu ári! Kannski hyggilegast að lesa þær rækilega svo maður sé ekki hlaupandi um eins og hauslaus hæna alltaf hreint í desember. Ég ætla að tæpa á þeim „stærstu“ í þessum pistli og hendi líka inn „minni“ plötum en þeim mun forvitnilegri. Fregnir herma að … Það hefur verið mikið suðað um plötu sem kemur út núna í næstu viku, nýja plötu Bruce Springs- teen, High Hopes. Platan er reyndar nokkurs konar afganga- safn en einhvers staðar sagði að það sem Stjórinn setti til hliðar á disknum sínum væri betra en gómsætur aðalréttur flestra. Jamm … Stjóradýrkunin getur verið mikil og ég er sekur sem syndin í þeim efnum. En höldum okkur við stórlaxana, Beck kemur með nýtt verk í febrúar og ný U2 plata hefur verið sett á í apríl. At- hugið að allar dagsetningar ber þó að nálgast með fyrirvara og sumar platnanna hafa enn engar slíkar. U2 snúa aftur eftir allnokkurt hlé og það gerir Slipknot einnig í ár. Ný Metallica- plata er þá óstað- fest og ný Guns’n’ Roses einnig. Reyndar má fast- lega gera ráð fyr- ir því að sú síð- arnefnda komi ekki út, sé litið til sögu þeirrar sveitar. Foo Fig- hters snúa þá einnig aftur og von er á nýrri plötu frá Fleet Foxes líka en fréttir eru því miður fremur óljósar. Síðasta plata, Helplessness Blues (2011), olli mér vonbrigðum og ég er því nokk spenntur fyrir þessari. Lana Del Rey ætlar að gefa út plötuna Ultraviolence og eru margir á iði vegna þessa en spáð er ímyndaryfirhalningu að hætti David Bowie. Merkilegt hvað margir af vinsælustu listamönnum Eftirvænting Margir bíða spenntir eftir næstu plötu Beck sem kemur út í febrúar. heims eru um leið hin mestu ólík- indatól og þannig á plata Azaeliu Banks víst að vera vel súr, en von- andi kemur hún út í ár en hún virðist ætla að hafa endalausan aðdraganda og hefur henni verið frestað trekk í trekk. Aðrir uglu- speglar eins og Frank Ocean og Kanye West verða með plötur og Lily Allen ætlar að snúa aftur með bravúr á þessu ári og er þeg- ar er farin að undirbúa slíkt með yfirlýsingaglöðum viðtölum. Það er þá gleðilegt að framúrskarandi listamenn á borð við St. Vincent og Bat for Lashes munu leggja í púkkið, sem og poppjöfrarnir Gri- mes og Robyn. Mesta fiðringinn vekur þó frétt þess efnis að von sé á nýrri plötu frá hinni ótrúlegu Joönnu New- som en síðasta plata, Have One on Me, kom út 2010. Þá er líklegt – en kannski ekki – að Adele gefi út nýja plötu í ár og ku hún bera tit- ilinn 26, í takt við síðustu plötu- heiti. Síðasta plata, 21, sló nær- fellt öll met sem hægt var að slá og pressan því talsverð. Alexis Petridis hjá Guardian spáir því að platan muni koma út að hætti Beyonce og er það glúrið mat hjá Petridis, þar sem sú aðferðafræði skilaði gríðarlegum árangri og ætti að virka vel fyrir viðlíka of- urstjörnu. Eða hvað? Forvitnilegt Belle and Sebastian mun gefa út nýtt efni í ár og er það vel, svo og hin ógurlega Swans. Öflugar indísveitir eins og Spoon og The New Pornograp- hers verða með plötur og „Am- eríkana“ risarnir The Hold Steady og Drive-By Truc- kers einnig. Styrkjandi líka að sjá nafn Wilco og ég hlakka til að heyra nýtt efni frá Lindu Perhacs, einum helsta áhrifavaldi Juliu Holter sem átti eina af betri plötum síðasta árs. Neneh Cherry átti rosalega plötu árið 2012 með framsækna djass- tríóinu The Thing og það verður athyglivert að heyra meira frá henni í ár. Og að lokum, Mark Kozelek: Sings Christmas Carols kemur út í nóvember á þessu ári. Það verður eitthvað!  Hvað mun bera hæst á nýhöfnu tónlistarári?  Ýmsir titlar staðfestir en aðrir eru á vangaveltustigi AFP Iðinn Kanye West mun senda frá sér plötu á þessu ári. Yfirhalning Lana Del Rey gefur út Ultraviolence og spáð er ímyndar- yfirhalningu að hætti Bowie. »Merkilegt hvaðmargir af vinsæl- ustu listamönnum heims eru um leið hin mestu ólík- indatól og þannig á plata Azaeliu Banks víst að vera vel súr Hvað segir tón- listarvölvan? 48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.