Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi Reykjavíkurvegur 22 | Hafnarfjörður | S. 565 5970 | sjonarholl.is Skoðið „Intuitiv“ nýjustu margskiptu glerin frá BBGR Frakklandi en þau hlutu gullbikarinn sem bestu margskiptu glerin á alþjóðlegri gleraugnasýningu í Paris nú í september. Verðlaunin voru veitt fyrir mun stærra fókussvæði í les-, tölvu- og akstursfjarlægðum. Margskipt gleraugu Sama lága verðið! SJÓNARHÓLL Þar sem gæðagleraugu kosta minna Aðeins á Sjónarhóli Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Fulltrúar stríðandi fylkinga í Suður- Súdan hófu friðarviðræður í Addis Ababa í gær til að reyna að afstýra borgarastríði í yngsta sjálfstæða ríki heimsins. Talið er að þúsundir manna liggi í valnum eftir átök sem hófust fyrir tæpum þremur vikum. Um 200.000 manns hafa neyðst til að flýja heimkynni sín vegna blóðs- úthellinganna. Þar af eru um 75.000 manns á vergangi í bænum Awerial við skelfilegar aðstæður, að sögn hjálparstofnana. Þær segja að mikill skortur sé á hreinu vatni, matvælum og öðrum hjálpargögnum og margir þurfi að sofa undir berum himni. Flestir flóttamannanna eru konur og börn. Átökin blossuðu upp 15. desember þegar forseti Suður-Súdans, Salva Kiir, sakaði fyrrverandi varaforseta landsins, Riek Machar, um að hafa reynt að fremja valdarán. Machar neitar þessu og segir ásökun forset- ans vera uppspuna sem hann hafi notað sem tylliástæðu til að hand- taka pólitíska andstæðinga og koma á einræði. Machar krefst þess að Kiir segi af sér og forsetinn hefur neitað að deila völdunum með Mach- ar og bandamönnum hans. Togstreita milli stærstu þjóðernishópanna Átökin hafa einnig verið rakin til togstreitu milli tveggja stærstu þjóðernishópa Suður-Súdans. Mach- ar er helsti stjórnmálaleiðtogi næst- stærsta þjóðernishópsins, Nuer- manna. Kiir forseti er úr röðum Dinka-manna, stærsta þjóðernis- hópsins. Dinka-menn hafa verið sak- aðir um að vilja drottna yfir öðrum þjóðernishópum í landinu. Átökin stafa þó fyrst og fremst af valdabaráttu mannanna tveggja og margir þeirra sem hafa gagnrýnt Kiir eru Dinka-menn eins og forset- inn. Blóðsúthellingarnar hafa hins vegar kynt undir togstreitunni milli þjóðernishópanna og hún er talin auka hættuna á blóðugu borgara- stríði. Margir andstæðingar Mach- ars telja að hann vilji auka völd Nu- er-manna á kostnað Dinka-manna. Suður-Súdan varð sjálfstætt ríki í júlí 2011 samkvæmt friðarsamningi við stjórn Súdans eftir tveggja ára- tuga borgarastríð. Ráðamenn nýja ríkisins eru allir fyrrverandi skæru- liðaforingjar og reynslan sýnir að þegar pólitísk vandamál koma upp hneigjast þeir til að reyna að leysa þau með hernaði og ofbeldi frekar en samningum. Spilltir ráðamenn Þrátt fyrir miklar olíuauðlindir Suður-Súdans er landið á meðal vanþróuðustu ríkja heims vegna ófriðarins síðustu áratugi. Ráða- mennirnir hafa lofað að bæta lífskjör almennings en hafa hneigst til þess að nota völd sín til að skara eld að sinni eigin köku. Spilling gegnsýrir allt stjórnkerfið. Reynt að afstýra blóðugu stríði  S-Súdan undir stjórn skæruliða sem vilja helst leysa vandamálin með hernaði Suður-Súdan 100 km MIÐ-AFRÍKU- LÝÐVELDIÐ AUSTUR-KONGÓ ÚGANDA KENÍA EÞÍÓPÍA WAHDA WARRAP NORÐUR-BAHR EL GHAZAL VÖTN JONGLEI AUSTUR-EKVATORÍA MIÐ-EKVATORÍA JUBA SÚDAN Malakal Bentiu Olíusvæði VESTUR-BAHR EL GHAZAL EFRI NÍL Olíu- leiðsla VESTUR-EKVATORÍA Bor 200.000 manns hafa flúið heimkynni sín 75.000 dveljast í stöðvum SÞ Þúsundir liggja í valnum eftir nær þriggja vikna átök Á valdi upp- reisnarmanna Harðnandi átök » Átökin í Suður-Súdan hörðnuðu í gær þrátt fyrir friðarviðræðurnar í Addis Ababa. » Sveitir stjórnarhersins hófu sókn að Bor, mikilvægum bæ sem er á valdi uppreisnar- manna. » Talsmaður stjórnarhersins sagði að hermennirnir væru nógu margir til að geta náð bænum á sitt vald innan sólar- hrings. » Æðsti embættismaður Sam- einuðu þjóðanna í Suður- Súdan hvatti herinn og upp- reisnarmennina til að hlífa óbreyttum borgurum og koma í veg fyrir að neyð flóttafólks- ins í landinu ykist. Samgöngur fóru úr skorðum vegna kafaldsbyls á norðausturströnd Bandaríkjanna í gær. Aflýsa þurfti meira en 4.000 flugferðum á svæð- inu og lýst var yfir neyðarástandi í ríkjunum New York og New Jersey vegna stórhríðar og ófærðar. John F. Kennedy-flugvöllur í New York var lokaður í nokkrar klukkustund- ir. Hríðin raskaði samgöngum frá Vermont í norðri og suður til Wash- ingtonborgar. Allt að 60 cm jafnfallinn snjór mældist í Massachusetts. Um það bil 16 stiga frost var í Boston í gær- morgun og spáð var allt að 25 stiga frosti í New York-ríki. Vindhraðinn var um 29 m/s þeg- ar hann var mestur. Stórhríð raskaði samgöngum AFP Hríð Maður á göngu með hund sinn í Brooklyn í New York-borg í gær þegar samgöngur fóru úr skorðum víða á norðausturströnd Bandaríkjanna. Nýliðið ár var það hlýjasta í Ástr- alíu frá því að mælingar hófust árið 1910, að því er fram kemur í árlegri skýrslu veðurstofu landsins. Sumarið 2012-2013 var það hlýj- asta síðan mælingar hófust. Það sumar var hitabylgja sem lauk 19. janúar 2013, en það var fyrsti dag- urinn frá 31. desember 2012 sem hitinn mældist ekki yfir 45 stigum einhvers staðar á landinu. Vorið var það hlýjasta og veturinn sá þriðji mildasti frá því að mælingar hófust. Meðalhiti ársins var 1,2 stig- um yfir meðaltali. Sarah Perkins, sem stundar lofts- lagsrannsóknir við Háskóla Nýja Suður-Wales, segir að skýrslan staðfesti að áhrifa hnattrænnar hlýnunar sé farið að gæta í Ástr- alíu. „Rannsóknir hafa sýnt að hættan á sumrum eins og 2013 hef- ur fimmfaldast, vegna loftslags- breytinga af mannavöldum.“ Roger Jones, annar sérfræðingur í loftslagsmálum, segir að niður- stöður skýrslunnar hljóti að vera áhyggjuefni fyrir alla Ástrala, m.a. vegna skógarelda sem fylgja hita- bylgjunum. Mesti hiti síðan mælingar hófust Langt yfir meðaltali Yfir meðaltali Í meðallagi Meðalhiti 1. janúar – 31. desember 2013 Frávik frá meðalhita 1,20 ˚Celsíus yfir meðaltali árið 2013 1910 -1,25 -1,00 -0,75 -0,50 -0,25 0 0,25 0,50 0,.75 1,00 1,25 20101920 1930 1940 1950 1960 1970 1980 1990 2000 400 km 10 ára meðaltal ˚Celsíus 2013 var heitasta árið í Ástralíu Byggist á gögnum sem veðurstofa landsins safnaði og rannsakaði Nýja Suður- Wales Viktoría Queensland Vestur- Ástralía Suður- Ástralía Tasmanía Norðanverð Mið-Ástralía CANBERRA Heimild: Árleg loftslagsskýrsla veðurstofu Ástralíu, BOM Hlýjasta árið síðan mælingar hófust  Hlýnunin sögð mikið áhyggjuefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.