Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Skv. nýjum útreikningi Samtaka at- vinnulífsins hækkuðu lágmarkslaun frá ársbyrjun 2008 til janúar 2014 um 71% á sama tíma og almennar launahækkanir skv. kjarasamn- ingum námu 28%. Launavísitalan hefur á þessum tíma hækkað um 40%. Í fréttatilkynningu SA í gær segir að nýgerður kjarasamningur feli í sér framhald stefnu kjarasamn- inga síðustu ára, að hækka lægstu laun sérstaklega. Niðurstaðan sé sú að kaupmáttur lágmarkslauna sé í janúar 2014 15% hærri en í janúar 2008 en kaupmáttur á mælikvarða launavísitölu u.þ.b. 3% lakari. Það kveður við annan tón innan stéttarfélagsins Framsýnar. Mikil reiði kom fram vegna samninganna á fundi stjórnar og trúnaðarmanna félagsins í fyrradag að því er greint er frá á vefsíðu félagsins. Það er eitt þeirra fimm félaga sem ekki vildu skrifa undir samningana. „Menn eru orðlausir yfir lélegum og skamm- arlegum kjarasamningi bæði hvað varðar hækkun lægstu launa og eins skattkerfisbreytingarnar þar sem láglaunafólkið er skilið eftir,“ segir þar m.a. Ólíkt mat á hækkun lægstu launa Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Verði nýgerðir kjarasamningar sem aðildarsamtök ASÍ og Samtök at- vinnulífsins undirrituðu 21. desember samþykktir af félagsmönnum hefst þegar í stað undirbúningsvinna að gerð næstu samninga á almennum vinnumarkaði, langtímasamninga, sem taka eiga við að ári. Nýgert sam- komulag gildir til eins árs og á að vera aðfarasamningur að kjarasamningum til lengri tíma með stöðugleika og kaupmáttaraukningu að meginmark- miði. Forystumenn samtaka á vinnu- markaði munu væntanlega funda á miðvikudaginn um hvernig staðið verður að þessari framhaldsvinnu ef framlenging samninganna verður samþykkt í félögunum. Fyrir lok þessa mánaðar eiga aðilar samkomu- lagsins að leggja skriflega fram skip- un samninganefnda og umboð til samningaviðræðna. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir í pistli á vefsíðu RSÍ, að aðilar ætli að hefja viðræður um endurnýjun kjarasamninga strax í lok janúar með því að leggja fram kröfur vegna end- urnýjunar samninga. Tímasetningar hafa verið settar niður og í raun sé bú- ið að varða viðræðuleiðina allt árið. „Með þessu móti ætlum við að reyna að ljúka gerð nýrra kjarasamninga áður en þeir sem gildandi eru renna út. Ef þetta tekst með þessum hætti má segja að aðilum hafi tekist að bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga nokkuð til samræmis við það sem ger- ist hjá frændum okkar annars staðar á Norðurlöndum.“ Kosningum á að vera lokið fyrir klukkan 16 hinn 22. janúar Það kemur þó ekki í ljós fyrr en upp úr 20. janúar hvort félagsmenn í stétt- arfélögunum samþykkja eða fella samningana. Kosningum á að vera lokið fyrir kl. 16 hinn 22. janúar. Mikil kynning er að fara í gang í sambönd- um og félögum um innihald samning- anna alla næstu viku og lýkur vart hjá öllum fyrr en undir lok mánaðarins. Flest félög bera samningana undir fé- lagsmenn í póstatkvæðagreiðslu en nokkur nota rafræna kosningu. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að næsta vika verði undirlögð undir kynningar á innihaldi samninganna. Stéttarfélögin fimm í SGS, sem ekki skrifuðu undir samningana, verða líkt og önnur að bera samkomulagið und- ir félagsmenn þeirra þar sem þau höfðu veitt SGS umboð til kjaravið- ræðnanna og eru bundin af undir- skrift samningamanna SGS þar til félagsmenn hafa kveðið upp sinn dóm. Ákveðið hefur verið að rafrænar kosningar fari fram um samningana meðal félagsmanna VR, sem hefur áður lagt kjarasamninga fyrir félags- menn í rafrænni kosningu á umliðn- um árum. Ólafía B Rafnsdóttir, for- maður VR, segir félagsfundi haldna á næstunni og gert sé ráð fyrir að kosn- ingunum ljúki 20. janúar. „Það verða auglýstir kynningar- fundir og við sendum bréf til allra fé- lagsmanna þar sem við kynnum inni- hald samningsins. Við gerum ráð fyrir að kynningarfundur verði 15. janúar hér á höfuðborgarsvæðinu og atkvæðagreiðslan fer svo fram í fram- haldi af því.“ Kjarasamningar Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur og nágrenn- is, verða bornir undir um 17 þúsund félagsmenn. Sigurður Bessason, for- maður Eflingar, segir að í framhaldi af kynningu hefjist póstkosning um samningana en aldrei hefur verið kos- ið rafrænt um samninga hjá félaginu. Menn hafi ekki séð að rafrænar kosn- ingar um samninga hafi leitt til auk- innar þátttöku. Hilmar Harðarson, formaður Sam- iðnar, á von á að notuð verði rafræn kosning um samningana meðal fé- lagsmanna. „Kynningarnar verða settar í gang í næstu og þarnæstu viku. Því næst hefst kosningin,“ segir hann. Kjósa um samningana og hefja vinnu við þá næstu  Stéttarfélög undirbúa kynningu og atkvæðagreiðslur um kjarasamningana Morgunblaðið/Golli Í höfn Björgólfur Jóhannsson, formaður SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, fagna samkomulagi. Á milli þeirra er Magnús Pétursson ríkissáttasemjari. Samningaferlið » Kjarasamningar ASÍ og SA voru undirritaðir 21. desember. » Um er að ræða framleng- ingu kjarasamninga í tólf mán- uði. Samkomulagið verður borið undir félagsmenn allra stétt- arfélaganna innan ASÍ á næstu vikum. » Niðurstaða atkvæðagreiðsl- unnar á að liggja fyrir í síðasta lagi kl. 16 hinn 22. janúar. Kjarasamningar starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum renna flest- ir út í lok janúar og febrúarlok og eru kjaraviðræður að fara í fullan gang. Skv. upplýsingum frá rík- issáttasemjara er þegar búið að bóka mikinn fjölda samningafunda í húsnæði sáttasemjara alla næstu viku. Þá verður m.a. haldið áfram viðræðum sem hófust í seinasta mánuði á milli sameiginlegrar samninganefndar Félags flugmála- starfsmanna ríkisins, Lands- sambands slökkviliðsmanna og SFR við Samtök atvinnulífsins og Isavia. Viðræður í fullan gang MIKIL FUNDARHÖLD AÐ HEFJAST HJÁ RÍKISSÁTTASEMJARA Þótt kjarasamningar hafi verið framlengdir fyrir þorra launþega á almenna vinnumarkaðnum eiga Samtök atvinnulífsins þó ólokið milli 70 og 80 smærri samn- ingum á borð við fyrirtækjasamn- inga og sér- kjarasamninga. „Þar verður unn- ið út frá sam- ræmdri launa- stefnu sem mörkuð var í kjarasamn- ingnum sem und- irritaður var 21. desember,“ segir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri SA. Felli einhver stéttarfélög samn- ingana þarf að taka upp viðræður milli þeirra og SA en Þorsteinn seg- ir að raunin hafi verið sú í þeim til- fellum áður fyrr að ekki hafi verið samið um neinar sérstakar við- bætur við félög sem felldu samn- inga, „enda markar samningurinn gagnvart heildinni fordæmi fyrir aðra og það er engin leið fyrir okk- ur að víkja frá því“. Boltinn hjá fyrirtækjunum Það mikilvægasta í þessum kjarasamningum er að mati hans sá vísir að breyttum vinnubrögðum sem hann hvílir á og að allir taki höndum saman um að hann leiði til raunverulegrar kaupmáttaraukn- ingar og verðbólgunni verði náð niður. Boltinn sé hjá fyrirtækjunum núna að sjá til þess að kostnaðar- auki samninganna velti ekki út í verðlagið svo ná megi verðbólgu- taktinum hratt og örugglega niður. Ef það tekst muni verðbólgan strax í febrúar og mars verða talsvert lægri en að undanförnu. „Fyrir ári hækkaði vísitala neysluverðs í febr- úar um 1,7% sem var gríðarlega mikil hækkun. Hún helgaðist af tvennu; annars vegar kjarasamn- ingi sem þá kom til framkvæmda og ekki síður af mikilli veikingu geng- is sem var samfelld frá lokum ágústmánaðar árið á undan,“ segir Þorsteinn. „Nú er því ekki til að dreifa. Við erum með kjarasamning sem samrýmist verðlagsstöðug- leika og öfugt við það sem átti sér stað fyrir ári hefur gengi krón- unnar styrkst nær samfellt. Fyr- irtækin hafa því enga forsendu fyr- ir miklum verðhækkunum á þessum tímapunkti. Það er á ábyrgð fyrirtækjanna að við náum að fylgja þessum kjarasamningum eftir svo þeir skili raunverulegri kaupmáttaraukningu á samnings- tímanum. Það er afar mikilvægt að okkur takist vel upp við það,“ segir hann. ,,Stóri prófsteinninn er strax í næsta mánuði.“ Hægt að ná verð- bólgunni hratt niður Þorsteinn Víglundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.