Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 Eftir því sem vandamál evru-svæðisins hafa komið betur í ljós hefur áróðurinn fyrir meintum kostum þess að taka upp þá mynt heldur farið minnkandi.    Þó eru þeirenn til sem mega ekkert tæki- færi missa án þess að minna á þá þrá- hyggju sína að það þoli enga bið að Íslendingar taki upp þá „töfra- lausn“ sem þessi mynt sé.    Hér vanti „undirstöðuna“, einsog hin fallvalta mynt er jafn- vel kölluð, og svo er því haldið blá- kalt fram að með þessari traustu undirstöðu yrðu vextir svo að segja að engu hér á landi og húsnæðis- kaup lauflétt.    Fjárfestingarbankinn GoldmanSachs hefur, líkt og ýmsir sem fá ekki glýju í augun þegar þeir svipast um innan ESB, komist að annarri niðurstöðu um vexti innan sambandsins en ákafir íslenskir að- ildarsinnar.    Í nýrri greiningu bankans segirað vaxtamunur á milli aðild- arríkjanna hafi verið umtalsverður um árabil og hafi í fyrra farið mest í 4,7%.    Þessi einfalda staðreynd hefurekki ratað inn í áróðursgögn aðildarsinna og mun ekki gera þrátt fyrir allt talið um mikilvægi upplýstrar umræðu um „kosti og galla“ aðildar.    Á meðan umsóknin hangir ennyfir höfðum landsmanna munu ákafir aðildarsinnar gera allt sem þeir geta til að halda áfram að af- vegaleiða umræðuna. 4,7% vaxtamunur á evrusvæðinu STAKSTEINAR Spennandi ferð til Rússlands þar sem okkur gefst einstakt tækifæri til að skoða það helsta sem þetta stórbrotna land hefur upp á að bjóða.Við fljúgum beint til Pétursborgar, einhverrar fallegustu borgar í heimi. Þar verður margt skoðað m.a. Vetrarhöllin og virki Péturs og Páls. Siglum síðan áleiðis til Moskvu og skoðum m.a SiglingfráPétursborgtilMoskvu Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson30. ágúst - 9. september Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 7. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. bæinn Mandrogi, Kizhi eyjuna, Goritsy, Yaroslavl og Uglich.Við dveljum tvo daga í Moskvu og skoðum það merkilegasta sem borgin býður upp á. Saga Rússlands er heill heimur ævintýra og um leið og við skoðum landið fáum við að skyggnast inn í þá veröld. Heimsókn til Rússlands er eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara! Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 348.800 kr. á mann í tvíbýli. Píanónámskeið að hefjast Einkanám og hljómborðsnámskeið. Byrjendur sem og lengra komnir. pianoskoli@gmail.com Ármúli 38, S: 551 6751 og 691 6980 Munið frístundakortið! Allir velkomnir Veður víða um heim 3.1., kl. 18.00 Reykjavík 3 léttskýjað Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri 3 skýjað Nuuk -5 heiðskírt Þórshöfn 6 þoka Ósló 2 skúrir Kaupmannahöfn 6 skúrir Stokkhólmur 3 þoka Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 10 skýjað Brussel 12 skýjað Dublin 6 léttskýjað Glasgow 7 skúrir London 8 léttskýjað París 12 skýjað Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 8 skýjað Berlín 8 skýjað Vín 3 þoka Moskva -2 snjókoma Algarve 17 skýjað Madríd 12 skýjað Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 11 léttskýjað Winnipeg -15 snjókoma Montreal -22 léttskýjað New York -10 snjókoma Chicago -14 léttskýjað Orlando 6 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:16 15:51 ÍSAFJÖRÐUR 11:56 15:20 SIGLUFJÖRÐUR 11:41 15:01 DJÚPIVOGUR 10:54 15:12 Enn liggur eng- in ákvörðun fyr- ir um hvort embætti ríkis- saksóknara muni hafa frum- kvæði að því að óska eftir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálin verði tekin upp að nýju, sam- kvæmt upplýsingum frá embættinu. Eftir að starfshópur sem fór yfir rannsókn málanna komst að þeirri niðurstöðu að veigamiklar ástæður væru fyrir því að málin yrðu tekin upp að nýju í mars í fyrra sagði Sigríður Friðjónsdóttir ríkissak- sóknari að hún hygðist fara yfir skýrsluna ásamt tveimur saksókn- urum og ætlaði að gefa sér tíma fram yfir páskana í fyrra. Í október kom fram að embættið hefði ekki tekið afstöðu til endur- upptöku og að beðið væri bréflegra svara frá þeim sem hlutu dóm í málunum á sínum tíma um afstöðu þeirra til þessa. Aðeins einn af þeim fjórum sem eru enn á lífi af þeim sem hlutu dóm hafði þá svar- að. Óvíst með endurupptöku Leirmynd úr Geir- finnsmálinu. Martin Berkofsky píanóleikari lést á heimili sínu í Virginíu í Bandaríkjunum 30. desember síðastliðinn, sjötugur að aldri. Martin fæddist í Washington DC 9. apríl 1943 og var af hvítrúss- neskum ættum. Hann var undrabarn og hóf að leika opinberlega og í hljóðritunum aðeins átta ára gamall. Martin lék mikið á tónleikum í Evrópu á yngri árum og kom fram sem ein- leikari og hljóðritaði með þekkum hljómsveitum á borð við sinfón- íuhljómsveitirnar í London og Berl- ín. Martin bjó hér á landi á árunum 1982-1987 og hélt eftir það tryggð við Ísland. Hann lenti hér í alvarlegu mótorhjólaslysi árið 1982 og marg- brotnaði á öðrum handlegg. Óttast var að ferli hans sem pí- anósnillings væri þar með lokið. Eftir langa og stranga endurhæf- ingu, m.a. á Grensás- deild, náði hann sér það vel að hann gat aft- ur leikið á píanóið og haldið tónleika. Slysið breytti lífi Martins og eftir það helgaði hann líf sitt góðgerðar- starfsemi. Ágóðinn af tónleikum hans rann allur til góðgerðarmála í gegnum stofnun hans. Martin Berkofsky hélt síðast ein- leikstónleika hér á landi í Norður- ljósasal Hörpu í maí 2012. Hann var tvíkvæntur en barnlaus. Fyrri kona hans var Þórunn Ólafs- dóttir og seinni kona Anna Málfríður Sigurðardóttir. Andlát Martin Berkofsky píanóleikari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.