Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 ✝ IngimundurÆvar Þor- steinsson fæddist 1. mars 1937 í Enni. Hann lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi 23. des- ember 2013. Foreldrar hans voru Guðmundur Þorsteinn Sigurðs- son, f. 1.3. 1901, d. 7.1. 1967 og Hall- dóra Sigríður Ingimund- ardóttur, f. 19.5. 1896, d. 23.11. 1967, bændur í Enni. Systkini Ævars sammæðra eru Sveinn Helgi, f. 1915, d. 1915, Hólm- fríður Kristín, f. 1916, d. 1995, Sveinn Helgi, f. 1918, d. 1970, Arína Margrét, f. 1919, d. 1999 og Ingimar Sigurberg, f. 1920, d. 1921. Alsystkini eru Elsa Guð- björg, f. 1930, búsett á Ketils- stöðum á Völlum, og Sigurður Heiðar, f. 1934, búsettur á Blönduósi. Hinn 20.10, 1962 kvænist Ingi- mundur Ævar Ingibjörgu Jós- efsdóttur, f. 9.7. 1944, foreldrar Jósef Sigfússon, f. 28.11. 1921, d. 21.12. 2012, og Fjóla Kristjáns- dóttir, f. 10.11. 1918, bændur á Torfustöðum í Svartárdal og síð- ar búsett á Sauðárkróki, bróðir Ingibjargar Kristján, f. 1947, bú- Ýrr Ingvarsdóttir, f. 1994. Ævar gekk í þennan hefð- bundna sveitaskóla sem boðið var upp á og byrjaði ungur að vinna bæði heima fyrir og víðar. Síðar fór hann suður og var nokkur ár við ýmis tilfallandi störf, bæði til sjós og lands. Æv- ar og Ingibjörg kaupa Enni 1967. Byggðu upp jörðina og bjuggu myndarbúi lengst af með hross og sauðfé, eða þar til riðu- veikin bankaði upp á veturinn 1984 og var þá allt sauðfé skorið niður en þá fjölguðu þau hross- unum. Ævar var rækt- unarmaður, sem best má sjá á því að hann var búinn að rækta og græða upp nánast alla mela í Ennislandi og var mjög stoltur af. Ævar átti mikið af góðum og fallegum reiðhestum í gegnum tíðina og vildi vera vel ríðandi, á meðan hann fór á bak og ekki var verra að eiga góðan hund líka. Ævari þótti gaman að grípa í spil bæði brids og lomber. Hitt- ust hann og spilafélagar hans vikulega í mörg ár og spiluðu lomber. Hann var mikill nátt- uruunnandi og dýravinur, víð- lesinn og unni sveitinni sinni mikið og var hún hans hjartans mál. Gegndi Ævar mörgum trúnaðarstörfum, m.a. í sveit- arstjórn, hestafélaginu Neista, hagsmunafélagi hrossabænda, Hrossaræktarsambandi A-Hún., veiðifélagi Blöndu og Svartár, Lionsklúbbi Blönduóss. Ævar verður jarðsunginn í dag, 4. janúar 2014, frá Blöndu- óskirkju kl. 14. settur í Skagafirði. Börn Ævars og Ingibjargar eru: 1. Stúlka, f. andvana 26.3. 1961. 2. Hall- dóra, f. 29.5. 1962, búsett í Braut- artungu Lundar- reykjadal, gift Guðna Eðvarðssyni, f. 1960. Börn þeirra: Ingimundur Pétur, f. 1980, kvæntur Ríkeyju Björk Magn- úsdóttur, f. 1979. Börn þeirra: Aron Kristinn, f. 1999, Sindri Freyr, f. 2004 og Katrín Lilja, f. 2007. Einar Örn, f. 1991, unnusta Eva Ösp Sæmundsdóttir, f. 1994. Guðfinna Sif, f. 1994. 3. Dreng- ur, f. andvana 17.5 1964. 4. Jó- steinn, f. 12.4. 1966, búsettur í Reykjavík. 5. Fjóla, f. 22.12. 1970, búsett í Keflavík, gift Guð- mundi Guðbergssyni, f. 1968. Börn þeirra: Hafrún Eva, f. 1991, barn hennar Heiðdís Rós Kristjánsdóttir, f. 2011. Guðjón Örn, f. 1993 og Ásdís Rán, f. 1997, faðir þeirra er Kristján Karlsson, Huginn Heiðar, f. 2004, d. 2008. Sonur Guðmundar Natan Freyr, f. 1989, unnusta Sóley Ásgeirsdóttir, f. 1989. 6. Ingibjörg, f. 17.2. 1972, búsett í Reykjavík, barn hennar Bryndís Elsku afi. Þegar ég var lítil þá sat ég alltaf á vinstra lærinu þínu, en þegar ég varð of stór til þess að sitja þar þá flutti ég mig yfir í stólinn við hlið- ina á þér og þar sat ég, alltaf. Þeg- ar ég gisti hjá ykkur ömmu fannst mér alltaf svo notalegt að vakna við óminn af útvarpinu og þegar þú slóst pípunni í öskubakkann. Notalegt að koma fram og borða morgunmatinn við hliðina á þér og lesa Moggann yfir handlegginn á þér. Alveg sama hvað við gerðum saman, ég var svo stolt af þér, stolt af því að vera barnabarnið hans Ævars í Enni, mannsins sem gat allt, vissi allt, kunni allt. Mér fannst alltaf svo notalegt, alveg sama hvort ég var þriggja ára, tólf ára eða rúmlega tvítug, að lauma litlu hendinni minni í lófann þinn sem var alltaf svo hlýr og fyllti mig trausti. Það er svo margt sem þú kenndir mér, þú átt það alveg skuldlaust hvað ég les mikið, al- veg sama hvaða bækur þú réttir mér, ég las þær frá fyrsta staf til seinasta stafs. Öll þau skiptin þeg- ar við keyrðum Laxárdalinn og þú þuldir upp öll bæjarheitin í daln- um þangað til ég lærði þau og svo lést þú mig þylja þau upp fyrir þig og hættir ekki fyrr en ég kunni þau öll. Ég er þakklát fyrir þetta í dag, þótt mér hafi ekki þótt þetta neitt sérstaklega skemmtilegt þá. Ef ég var hjá þér var ég tekin með í allt sem þú gerðir, hvort sem það var að gefa eða reka hross, og mér þykir rosalega vænt um þessar stundir sem við áttum saman. Þú, elsku afi minn, varst stoltur maður, ekki bara af sjálfum þér og búinu þínu heldur líka af okk- ur, fjölskyldunni þinni. Þú varst maðurinn sem ég leit alltaf mest upp til og gerði eiginlega allt sem þú sagðir að ég ætti að gera, bara fyrir afa minn. Þú varst frábær, svo hlýr og yndislegur. Takk fyrir allar stundirnar okkar sem ég vildi óska að hefðu orðið miklu fleiri og takk fyrir allt sem þú kenndir mér. Ég elska þig, elsku afi í sveit- inni. Þín Hafrún Eva. Elsku afi. Nú ertu kominn til hinna engl- anna minna og ekkert stendur eft- ir nema minningin um þig. Ég man alltaf vel eftir því þegar ég var lítil að þú bauðst okkur krökk- unum í óvæntar ferðir, stundum út á mel að gefa hrossunum eða upp á Laxárdal, en það sem stend- ur mest upp úr hjá mér var þegar þú bauðst okkur með þér á snjó- sleða og ég fór alltaf lengstu salíb- unurnar, eins og þú kallaðir þær. Í þessum salíbunum átti ég það til að syngja fyrir þig og eitt af óska- lögunum þínum var Eitt hjól und- ir bílnum. Ég gleymi því heldur aldrei að þú varst alltaf að biðja mig um að hoppa, og ég hlýddi auðvitað, en svo þegar ég varð eldri hætti ég því og sagði stund- um upp á grínið að ef ég myndi gera það núna myndi gólfið brotna, og þá var það útrætt. Svo man ég líka eftir því að við mamma vorum hjá ykkur nema það að amma var hjá lækni svo við mamma vorum vinnukonur á heimilinu. Svo er kominn matur og allir eru sestir við borðið og mamma kemur með matinn, legg- ur hann á borðið og segir okkur að borða eins mikið og við getum því hún er handviss um að kötturinn vilji þetta ekki. Ég man ekki leng- ur hvað hún sagði, en ég man alla- vega að ég var að fá mér vatns- sopa og fannst mér það sem hún sagði greinilega mjög fyndið vegna þess að ég frussaði vatninu alveg óvart út úr mér og yfir þig og mömmu. Allir hlógu að þessu, meira að segja ég, þar sem ég var að reyna að ná andanum yfir vask- inum, og þú, sem ætlaðir heldur betur að vera alvarlegur, gast það bara alls ekki þar sem allir í kring- um þig hlógu, svo það endaði með því að þú hlóst með okkur. Ég á svo margar og góðar minningar um þig, afi minn, að ég get varla talið þær upp, en ég man að þú varst alltaf svo yndislegur maður og fróður um alla veraldlega hluti. Þú áttir líka fullt af allskonar bók- um sem var gaman að kíkja í, brandarabækur, dýrabækur, ljóðabækur og margar fleiri. Þeg- ar ég var 6-7 ára lastu fyrir mig ljóð sem hét Afastelpan, sem er virkilega fallegt ljóð. Þú gast líka verið algjör stríðnispúki, sérstak- lega um jólin, þegar þú fórst stundum inn í eldhús þar sem möndlupokinn stóð á borðinu rétt hjá möndlugrautnum, tókst eina möndlu og faldir hana undir tung- unni á þér og þóttist ekki hafa gert neitt þangað til annað kom í ljós, en auðvitað var þetta bara grín hjá þér, sem heppnaðist oft- ast vel. Ég mun heldur aldrei gleyma því sem þú sagðir ein- hvern tímann við mig þegar ég og mamma vorum að fara aftur heim eftir helgi hjá ykkur ömmu. Við vorum að kveðja, þú tókst utan um mig, kysstir mig á kinnina eins og þú varst vanur og sagðir: „Bless elskan mín, og stattu þig nú vel í skólanum“ og ég sagði á móti: „Ég geri það, afi minn,“ kyssti þig og hélt svo með mömmu til Reykjavíkur. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og takk fyrir allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Ég mun aldrei gleyma því hversu yndis- legur og góður maður þú varst. Ég mun alltaf minnast þín sem reffilegs manns með pípustert í munni og góðlegt bros í andlitinu. Hvíldu í friði, afi minn. Þitt barnabarn, Bryndís Ýrr. Kær vinur er fallinn frá. Landslagið er breytt. Þegar við hugsum til vinar okkar, Ævars í Enni, birtast ótal myndbrot, sem ylja okkur um hjartaræturnar. Kynni okkar við hjónin í Enni hófust sumarið 1980, en þá voru hjá okkur í nokkra daga tvö trippi frá Enni, sem voru á leið til Dan- merkur. Okkur þótti trippin væn- leg og það varð úr, að við hringd- um í bóndann í Enni og festum kaup á nokkrum trippum, sem hann átti að velja fyrir okkur og senda suður, síðar um haustið. Greiðsla var send og ungviðið skil- aði sér á umsömdum tíma og hef- ur síðan verið grunnurinn að okk- ar hrossastofni. Það var svo síðla vetrar, að Ævar kom suður, og þá hófust okkar raunverulegu kynni. Síðan þá þróaðist með okkur vin- átta, sem aldrei bar skugga á. Þessi vinátta einskorðaðist ekki bara við hjónin í Enni, heldur einnig við Ennisbörnin Jóstein og systur. Við minnumst margra ógleymanlegra stunda á Laxár- dalnum, við hrossasmölun, stund- um á hestbaki, og í Skrapatungu- réttum, við að ganga sundur hrossin. Um árabil mættum við galvösk í hrossagallanum í smölun og í hrossaréttirnar í boði Ævars og Ingibjargar og nutum þeirra frábæru gestrisni. Þá var glaum- ur og gleði og mikið spjallað fram á rauðanætur um hross. Þá var oft fjölmennt í Enni og sofið í öllum hornum. Yndislegt var að sækja Enni heim í gróandanum að vori, njóta þess að ganga milli nýkastaðra meranna og skoða folöldin spræk og falleg. Iðulega var svo keyrt út um allar sveitir, býli skoðuð og ótal sögur sagðar. Já minningarn- ar að norðan eru óteljandi. Svo er það hin hliðin á peningnum, Ævar þurfti oft að sinna erindum fyrir sunnan og má segja að hann hafi undantekningalítið gist hjá okkur í Naustanesi, okkur hjónum til mikillar gleði. Eins og allir vita, sem til þekkja, fannst Ævari grænt og gróðursælt land fallegt, en hrjóstrugt og gróðursnautt land og sandar ekki eins áhuga- vert. Það tók okkur nokkur ár að fá þau Ævar og Ingibjörgu til að heimsækja okkur í Lóninu. Við áttum þar ánægjulega samveru í stórbrotnu landslagi, sem að sönnu er frekar rýrt af gróðri, en þeim mun ríkara af annarskonar náttúrufyrirbrigðum og viti menn, Ævar viðurkenndi að þarna væri undurfagurt, þrátt fyrir skort á hinum eina sanna græna lit. Haldið var uppteknum hætti og ófáar ökuferðir voru farnar til að skoða sveitir lands- ins, m.a. í uppsveitir Árnes- og Rangárvallasýslu og í Borgar- fjörðinn. Svona var nú samlífið með Ævari, eða eins og vinur okk- ar beggja, Albert smiður, myndi segja, tóm hamingja. Einu kom- um við ekki í verk, sem við hefðum átt að gera, en það var að ferðast saman til útlanda, en ekki dugir að sýta það. Við þökkum Ævari fyrir sam- fylgdina og vonumst til að hitta hann aftur á iðjagrænum völlum handan þessa heims. Ingibjörg mín, börn, tengdabörn, barna- börn, aðrir ættingjar og vinir, við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur á þessari sorgarstund, en munum að lífið heldur áfram og við getum yljað okkur við ótal fal- legar og góðar minningar um góð- an dreng. Ottó og Þorbjörg. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina (Hjálmar Freysteinsson) Vinátta okkar Ævars var mér ómetanleg og finnst mér heimur- inn pínu tómlegur án hans. Hann hafði einstakt lag á að sýna mér hina hliðina á hlutunum þegar við ræddum málin við eldhúsborðið, hann var ekki mikið fyrir að „fjasa“ um hlutina eins og hann orðaði það heldur sagði hann allt- af það sem honum fannst og not- aði kjarngóð íslensk orð til þess, sum yrðu sennileg ekki birt á þessum vettvangi. Ég ætla að láta staðar numið hér og geyma áfram við eldhús- borðið umræðurnar okkar og hlýja mér við að rifja upp í hug- anum tilsvörin hans og faðmlagið sem hver heimsókn endaði á. Takk, kæri vinur, fyrir að vera nákvæmlega eins og þú varst, ómetanlegur eðalsteinn. Elsku Ingibjörg, Ingan mín og Jósteinn, Halldóra, Fjóla og fjöl- skyldur. Bið þess að guð haldi yfir ykkur verndarhendi á erfiðum stundum. Valgerður Gísladóttir. Ég kynntist Ævari árið 1955, er ég var á tíunda ári og kom fyrst að Enni. Það var fyrsta sumarið af nokkrum sem ég var í sumarvinnu að Enni, hjá Þorsteini og Hall- dóru, foreldrum Ævars. Það var mikið ævintýri fyrir ungan hesta- áhugamann að koma að Enni. Ævar, sem var nokkrum árum eldri en ég, dreif mig strax á hest- bak. Daglega riðum við suður í hvamm við Blöndu, til að elta uppi og marka nýfædd lömb. Í einni af þeim ferðum varð Ævar fyrir því óláni að slíta hásin við að hlaupa uppi lamb. Þjáðist hann mjög, og átti erfitt með að komast á bak hesti sínum og ríða heim að Enni. Faðir Ævars ók honum síðan á jeppanum á Sjúkrahúsið á Blönduósi. Háðu meiðslin Ævari lengi. Ævar var hress og uppá- tækjasamur þessi ár sem ég var í Enni, og margt skemmtilegt brallað. Eftir að Ævar og Ingi- björg fluttu til Reykjavíkur, lágu leiðir okkar Ævars saman að nýju. Áður en Ævar fór suður hafði ég fengið hjá honum jarp- skjóttan hest, og síðar keypt ann- an. Við Ævar gátum því aftur riðið út saman, hér syðra. Eftir að Ævar og Ingibjörg tóku við búi í Enni, hittumst við ekki í nokkur ár. En seinna eign- aðist ég nokkra góða fola úr rækt- un þeirra hjóna. Við Áslaug nut- um gestrisni Ingibjargar og Ævars í mörg ár, er við gistum í Enni í kring um stóðréttir á haustin. Þá var jafnan margt um manninn í Enni og glatt á hjalla, Ævar í essinu sínu, og þau hjónin höfðingjar heim að sækja. Þessar ógleymanlegu stundir geymum við með okkur. Guð blessi minningu Ævars í Enni. Við Áslaug sendum Ingibjörgu og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Þorleikur Karlsson. Ingimundur Ævar Þorsteinsson  Fleiri minningargreinar um Ingimund Ævar Þor- steinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Háaleitisbraut 16, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 26. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 6. janúar kl. 13.00. Björg Pjetursdóttir, Magnús Pétursson, Júlíanna H. Friðjónsdóttir, Guðfinna Pjetursdóttir, Guðmann Bjarnason, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HALLDÓRA NELLIE PÁLSDÓTTIR, Rauðalæk 8, Reykjavík, andaðist á Droplaugarstöðum laugardaginn 14. desember. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þórarinn Sveinsson, Sigurbjörg E. Þórarinsdóttir, Guðmundur R. Guðmundsson María Þórarinsdóttir, Ingileifur Einarsson, Þórarinn Jón Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG INDRIÐADÓTTIR, Engjavegi 55, Selfossi, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 2. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Björn Sverrisson, Indriði Björnsson, Edda Björk Sævarsdóttir, Erla Soffía Björnsdóttir, Daði Jóhannesson, Kolbrún Björnsdóttir, Sveinn Elíasson og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HANS RAGNAR SIGURJÓNSSON skipstjóri, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 30. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. janúar kl. 13.00. Anna Scheving Hansdóttir, Tryggvi T. Tryggvason, Ása Björk Hansdóttir, John S. Berry, Ágústa Hansdóttir, Halldór Pétursson, Unnur Björg Hansdóttir, Pjetur Einar Árnason, Sigurjón Hansson, Kristín Guðbrandsdóttir Jezorski, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÓLFUR PÁLSSON lést á Landspítala, Fossvogi, fimmtudaginn 2. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Eydís María Þórólfsdóttir, Dóra Kristín Þórólfsdóttir, Sigurður Ómar Ásgrímsson, Inga Þórólfsdóttir, Einar Baldvin Axelsson, Kristján Máni, Eva Kristín, Svanhvít Þóra, María Björk, Hildur Herdís og Axel Þór.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.