Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur: www.reykjavik.is • sent inn erindi vegna fasteignagjalda • skoðað álagningarseðil fasteignagjalda fyrir árið 2014 (eftir 27. janúar nk.) og alla breytingarseðla þar á eftir • skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda • valið einn eða níu gjalddaga fasteignagjalda til 15. janúar 2014 • gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur • óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir út til greiðenda, 18-71 ára Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í heimabönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum. Mínar síður á www.reykjavik.is Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF) hefur vakið athygli Rík- isendurskoðunar á tillögum verk- efnisstjórnar um vernd og orku- nýtingu landsvæða og athuga- semdir sjóðsins við að Hvamms- virkjun í Þjórsá verði flutt í nýtingarflokk. Telur sjóðurinn að það geti valdið stórfelldum þjóð- félagsskaða, skaðabótakröfum og áralöngum málaferlum, bæði fyrir ríkið og Landsvirkjun, ef ráðist verður í frekari undirbúning og framkvæmdir á grundvelli tillagna verkefnisstjórnar. Tillaga verkefnisstjórnar hefur verið kynnt og gefst hagsmuna- aðilum og almenningi kostur á að gera athugasemdir fyrir 19. mars. NASF telur að tillögur verkefn- isstjórnar feli í sér óafturkræfar og illa grundaðar framkvæmdir sem ekki séu byggðar á þeim gögnum sem afla þarf, samkvæmt ályktun Alþingis um rammaáætl- un. Ekki hafi verið gerðar þær rannsóknir sem kveðið var á um. Þá taki flestir þeirra fjölmörgu vísindamanna sem leitað hafi verið til undir þessi sjónarmið og stað- festi hve slælega hafi verið að verki staðið. „Í heild sinni er um að ræða til- lögur um verkefni sem gætu kost- að þjóðarbúið, sérstaklega skatt- greiðendur, hundruð milljarða og við teljum það vera í verkahring Ríkisendurskoðunar að koma með einhverjum ráðum í veg fyrir slík- an kostnað. Þess vegna sendir NASF þessar athugasemdir sem kæru til embættisins,“ segir í erindi NASF. Lagt er til að rann- sakað verði sérstaklega hvernig fjármunum skattgreiðenda hefur verið varið af hálfu Landsvirkj- unar. Þá er vakin athygli á því að ekk- ert hafi verið rætt við eigendur lögvarins veiðiréttar í Þjórsá eða Veiðifélag Þjórsár sem beri lögum samkvæmt að fara með sameig- inlega hagsmuni lífríkisins og veiðiréttarhafa. Forsvarsmaður NASF óskar eftir fundi til að gera nánari grein fyrir kærunni. Samkvæmt upplýs- ingum Ríkisendurskoðunar er ekki að vænta viðbragða við erindinu fyrr en að loknum þeim fundi. Morgunblaðið/Einar Falur Lax Slagurinn á bökkum Þjórsár snýst um öryggi fiskstofnanna. Kæra virkjanaáform  NASF vill að komið verði í veg fyrir kostnað þjóðarbúsins við virkjanir FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Notkun rafrænna skilríkja í debet- kortum hefur verið minni en búist hafði verið við en jafnt þjónustuað- ilar sem einstaklingar hafa sýnt þeim aukinn áhuga undanfarið að sögn Haralds A. Bjarnasonar, fram- kvæmdastjóra Auðkennis sem fram- leiðir rafrænu skilríkin. Ekki er hægt að sjá hversu marg- ir nota rafrænu skilríkin til að skrá sig inn á þjónustusíður né heldur er hægt að sjá hversu margir kortales- arar, sem þarf til að lesa skilríkin, eru í umferð þar sem þeir eru seldir á mörgum mismunandi stöðum. Haraldur segir það þó svo að notk- unin hafi verið minni af ýmsum ástæðum. „Við sjáum breytingar núna. Það er líka vilji þjónustuveitenda að nýta þetta. Tilkoma skilríkja í síma sem eru þægilegri og einfaldari í notkun er góð fyrir almenna útbreiðslu þeirra,“ segir hann. Greinanleg aukning hafi orðið í kjölfar Voda- fone-lekans og segir Haraldur að ör- yggisvakning sé nú í gangi. Nú eru um 100.000 debetkort með rafræn skilríki virkjuð. Nýlega byrj- aði Síminn að bjóða upp á að fá skil- ríkin á sim-kort í farsíma og snjall- tæki en enn sem komið er eru aðeins um þúsund manns með skilríkin virkjuð í slíkjum tækjum. Um 119 stofnanir, bankar og fyr- irtæki bjóða upp á auðkenningu með rafrænum skilríkjum í debetkortum en enn sem komið er er það aðeins Síminn sem býður upp á innskrán- ingu með farsímaskilríkjum á þjón- ustusíðu sinni. Skattstjóri mun þó bjóða upp á það á næstu dögum og segir Haraldur að þessi þróun haldi vonandi fljótt áfram. Þá eigi notkun rafrænnar undir- ritunar með skilríkjunum eftir að aukast hér en hún sé víða notuð á Norðurlöndum, til dæmis í Noregi. Miðað við fordæmið þaðan þar sem lánasamningar eru undirritaðir raf- rænt er mögulegt að spara milljarða króna í kostnað við slíka gjörninga í bankakerfinu. Á næstu mánuðum Hjá Landsbankanum fást þær upplýsingar að þar sé nú unnið á fullu að því að innleiða rafræn skil- ríki í sim-kortum og það ætti að vera í boði á næstu mánuðum. Bank- inn sjái auk þess tækifæri í skilríkj- unum til rafrænna undirskrifta. Arion banki stefnir að því að bjóða upp á þjónustuna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Prófanir hafi verið gerðar á síðasta ári sem hafi gefist vel. Til að byrja með verði að- eins boðið upp á innskráningar með rafrænu skilríkjunum í sim-kortum en ekki rafrænar undirskriftir. Íslandsbanki segist einnig munu opna á sim-kortin á fyrri hluta árs. Hann býður þegar upp á að við- skiptavinir undirriti skjöl með raf- rænum skilríkjum á ytri vef sínum, þó ekki fyrir skjöl þar sem einstak- lingar eða lögaðilar eru skuldbundn- ir á lánaskjölum. Það gerist síðar. Gæti sparað milljarða króna  Fyrstu skrefin í útbreiðslu rafrænna skilríkja í sim-kort  Framkvæmdastjóri Auðkennis telur raf- ræna undirritun geta sparað stórfé í bankakerfinu  Bankarnir vinna í lausnum fyrir skilríkin Morgunblaðið/Ernir Rafrænt Kortalesara hefur þurft til að nota rafræn skilríki í debetkorti með tölvu. Það er talin vera ein ástæða þess að notkun skilríkjanna hefur ekki verið eins útbreidd en lesararnir ganga til dæmis ekki í spjaldtölvur. Nýtt sim-kort þarf til að fá raf- ræn skilríki í farsíma eða snjall- tæki. Samkvæmt upplýsingum Símans, sem er eina fjarskipta- fyrirtækið sem býður upp á þau enn sem komið er, eru um 8.000 viðskiptavinir fyrirtækisins þeg- ar með rétt kort. Þeir sem eru þegar með rafræn skilríki í de- betkorti geta sjálfir virkjað þau í sim-kort í gegnum vefsíðu Auð- kennis. Auðkenni hefur þjónust- að viðskiptavini í verslunum Símans sem fá ný sim-kort og eiga ekki rafræn skilríki fyrir. Skv. upplýsingum Vodafone er gert ráð fyrir að þjónustan verði tekin í gagnið á fyrri hluta ársins. Tal hefur ekki tekið ákvörðun um innleiðinguna en mun skoða lausnir með heild- sala sínum á næstu vikum. Liv Bergþórsdóttir, fram- kvæmdastjóri Nova, segir sam- ræmingu skorta. Ekki gangi að það fari eftir hvaða símtæki eða símafyrirtæki fólk skipti við hvernig skilríki það sé með. „Það þarf að vera auðvelt fyr- ir notandann að taka þetta í notkun og aðgengilegra en það sem virðist vera í boði núna.“ Þarf sam- ræmingu FJARSKIPTAFYRIRTÆKIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.