Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 ✝ Þórdís Odds-dóttir fæddist að Hvarfsdal á Skarðströnd í Dala- sýslu 22. október 1924, hún lést á sjúkrahúsi Akra- ness 19. desember 2013. Foreldrar hennar voru Oddur Bergsveinn Jens- son, fæddur á Harastöðum á Fellsströnd í Dalasýslu 9. apríl 1880, d. 29. júlí 1962, og seinni kona hans, Valfríður Ólafsdóttir frá Vatni í Haukadal í Dala- sýslu, f. 30. júlí 1893, d. 9. sept. 1984. Fjölskyldan flutti að Sæ- lingsdal í Hvammsveit þegar Þórdís var tíu ára gömul. Þórdís sótti nám í farskóla og árin 1944-45 var hún í húsmæðra- skóla Staðarfells. Systkin Þór- maki Þórarinn Siggeirsson, þau eiga sex börn, 5. Friðjón Örn, f. 20. júlí 1955, maki Anna María Kristjánsdóttir, þau eiga fimm börn. 6. Sólrún Bára f. 19. jan- úar 1957, maki Óðinn Krist- mundsson, þau eiga fjórar dæt- ur, 7. Oddur Kristinn, f. 6. september 1966, maki Íris Björg Sigurðardóttir, þau eiga sex börn. 8. Jakobína Valfríður, f. 8. október 1967, sambýlismaður Jóhann Jónsson, þau eiga fjóra syni. Barnabarnabörn Guð- mundar og Þórdísar eru 20. Þórdís kynntist Guðmundi í Hvammi í Hvammsveit árið 1945 er þau voru í vinnu- mennsku hjá séra Pétri Odds- syni. Ári seinna héldu þau til Reykjavíkur og hófu þau búskap í Breiðabliki 1, við Sundlauga- veg. Vorið 1951 fluttu þau að Borgum á Skógarströnd og bjuggu þar til ársins 1964 en þá futtu þau að Ketilsstöðum í Hörðudal í Dalasýslu og bjuggu þar síðan. Þórdís verður jarðsungin frá Snóksdalskirkju í dag, 4. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 14. dísar eru: Guðrún Valfríður, f. 1916, d. 2000, Rósa, f. 1921, Hallgrímur Pétur, f. 1923, Katrín Ólafía, f. 1928, d. 1996, Ólaf- ur Valdimar, f. 1935, Samfeðra: Helga, f. 1904, d. 1995 og Alfons, f. 1905, d. 2004. Sam- býlismaður Þórdís- ar var Guðmundur Jónsson, fæddur á Mjóabóli í Haukadal í Dalasýslu 27. apríl 1926, d. 21. nóvember 2007. Börn þeirra eru 1. Drengur, f. 12. desember 1946, d. 14. mars 1947, 2. Jóna Guðný, f. 5. október 1948, maki Jón Guðmundur Jakobsson, þau eiga fjögur börn, 3, Valur Berg- sveinn, f. 7. nóvember 1950, 4. Sóley Ólafía, f. 18. maí 1954, Kveðja frá dóttur. Móðir mín kæra er farin á braut, til mætari ljósheima kynna. Hún þurfti að losna við sjúkdóm og þraut, og föður minn þekka að finna. Vönduð er sálin, velvildin mest, vinkona, móðir og amma. Minningin mæta í hjartanu fest, ég elska þig, ástkæra mamma. Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt, af gæsku þú gafst yl og hlýju. í heimi guðsenglanna hafðu það blítt, uns hittumst við aftur að nýju. (Höf. ók.) Hjartkær móðir, hljóð við flytjum heitt og einlægt þakkarmál. Minning hlý, sem morgunsunna mildar harm og vermir sál. Kært við þökkum ástúð alla, umhyggju og kærleikstryggð. Átti nokkur hlýrra hjarta, heilli skapgerð, meiri dyggð. Allra kaustu undir græða, örlát var þín fórnarlund. Vildir hverjum gesti greiða, gera fram á síðustu stund. Ljúfar stundir litlu börnin, léku glöð við skautið þitt. Drottinn launar, drottinn blessar, drottinn þekkir barnið sitt. (Daníel Kristinsson) Ó, mamma mín nú leiðir skilja að sinni, og sorgartárin falla mér á kinn, en hlýjan mild að heitri ástúð þinni, hún mýkir harm og sefar söknuðinn. Í mínum huga mynd þín skærast ljómar og minningin í sálu fegurst ómar. Þú móðir kær þér aldrei skal ég gleyma þinn andi fylgi mér á lífsins strönd. Ég vil í hjarta heilræðin þín geyma og halda fast í drottins styrku hönd. Með huga klökkum kveð ég góða móður. Ó, mamma mín, þú lífs mín stærsti sjóður. (Höf. Árni Gunnlaugsson) Að minnast góðrar móður er mannsins æðsta dyggð og andans kærsti óður um ást og móðurtryggð. Hjá hennar blíðum barmi er barnsins hvíld og fró. Þar hverfa tár af hvarmi og hjartað fyllist ró. (Freysteinn Gunnarsson) Við kveðjum þig með kærleikans huga, þér kristur launar fyrir allt og allt. Þú varst svo sterk og lést ei böl þig buga og birtan skín í gegnum húmið kalt. Það er gott er lífsins degi lýkur, að ljómi birta um þann sem kvaddur er. Því eitt er víst, að Guð vor gæsku- ríkur, glaða framtíð hefur búið þér. Kæra mamma, ljúfur Guð þig leiði, um landið efra að Edens fögrum lund, og á þinn legstað blóm sín fögur breiði, svo blessi Drottinn þessa hinstu stund. Í okkar hjarta ljúf þín minning lifir, þú leiddir okkur fyrstu bernskuspor. Við biðjum Guð, sem ræður öllu yfir, að enn þér skíni blessuð sól og vor. Hjartans þakkir, elsku mæta móðir, þér miskunn veiti Guð svo hvílist rótt. Þig verndi og gæti allir englar góðir, ástarþakkir, mamma, góða nótt. (H.J.) Þín dóttir og tengdasonur, Jóna Guðný og Jón. Nú er mamma farin, það er eitthvað svo endanlegt, enginn rúntur eftir vinnu eða um helgar á Akranes að heimsækja mömmu á sjúkrahúsið. Engin jóla- eða áramótasímtöl eins og var fastur liður væri mað- ur ekki hjá henni og skrýtið að upplifa að vera ekki á Ketilsstöð- um um jólin og samt ekki tala við mömmu í síma. Ég veit að hún átti frátekið sæti á himnum, ætli þar sé ekki eilíft vor og fuglasöngur en það væri henni að skapi, hún hafði yndi af fuglum og sá til þess að þeir hefðu mola að narta í, henni fannst fugla- söngurinn líka yndislegur, sjálf hafði hún yndi af að syngja og var alltaf raulandi við vinnuna, en hún var alltaf að og allir sem komu að Ketó fengu verkefni, margir fengu það verkefni að fara í rabarbar- agarðinn að taka upp rabarbara, þrífa þá og skera „svona 15 leggi“ sagði hún. Frá því hún kom á sjúkrahúsið nefndi hún það nokkrum sinnum að það væri leiðinlegt að vera svona „ekki til nokkurs gagns“. Eðlilega var hún ekki sátt við stöðuna sem komin var upp. Mamma hafði alltaf verið léttlynd og ósjaldan að maður flissaði með henni, ég er rík að hafa átt hana sem móður því ýmislegt hef ég grætt í veganesti hjá henni og þakka fyrir góðar stundir með henni og pabba sem féll frá í nóv- ember 2007. „Guð geymi þig“ sagði mamma alltaf þegar ég var lítil og hún kyssti mig góða nótt. Nú sný ég þessu við elsku mamma og segi: Guð geymi þig. Jakobína V. Guðmundsdóttir. Elsku amma mín, nú hefur þú kvatt í hinsta sinn. Ég á svo margar góðar og yndislegar minningar um þig sem streyma um huga minn á þessum sorgar- tíma og ég brosi í gegnum tárin þegar ég rifja þær upp. Mér finnst líka eins og ég heyri í þér þegar ég minnist þín, heyri glað- væra hláturinn þinn. Ég minnist líka þessarar skemmtilegu stríðni sem þú varst vön að stríða mér með, þú spurðir mig oft um mín einkamál með glettni og hlóst svo dátt á eftir. Ég man eft- ir þér í eldhúsinu í sveitinni þeg- ar þú hrærðir í kökur og hnoð- aðir í kleinur. Þú áttir ekki kökukefli og notaðir því flöskuna góðu til að fletja út deigið. Við saman að baka kleinurnar, ég sneri upp á þær og þú steiktir þær í pottinum. Þú varst alltaf að baksa í eldhúsinu og niðri í þvottahúsi og þú varst alltaf syngjandi eða raulandi við vinn- una og talaðir oft við fréttamann- inn í útvarpinu. Þú tókst þér sjaldan frí og þegar þú komst til okkar í Hafnarfjörðinn þá varst þú alltaf með hugann vestur á Ketó því þú hafðir svo miklar áhyggjur af afa og Val frænda í sveitinni, hvort þeir fengju nú ekki nóg að borða eða fengju ekkert með kaffinu. Þú gleymdir heldur ekki smáfuglunum og honum Krumma því alltaf gafstu þeim í gogginn. Þegar ég kom í sveitina til ykk- ar afa þá var alltaf nóg á boðstól- um og ég fór aldrei svöng í bólið því þú hugsaðir alltaf svo vel um alla. Ég man eftir þér, amma mín, úti í fjósi að mjólka upp á gamla mátann, uppi í garði að setja niður kartöflur með afa eða sitjandi inni í eldhúsi að prjóna vettlinga eða sokka á fólkið þitt. En nú ertu far- in eftir næstum árs veikindi og ég er viss um að afi og litli sonur þinn sem þú fékkst að hafa í svo stutta stund hjá þér hafi tekið á móti þér. Og ég veit í hjarta mér að nú líður þér vel og við munum sjást aftur þegar minn tími kemur og þá munum við sko baka kleinur sam- an og gera að gamni okkar eins og við gerðum svo oft. Ég mun ávallt elska þig og sakna, amma mín. Langt úr fjarlægð, elsku amma mín, ómar hinzta kveðja nú til þín. Þórdís Oddsdóttir HINSTA KVEÐJA Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sölvi Freyr og Hólmar Ingi. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Alúð • Virðing • Traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Okkar ástkæra INGIBJÖRG KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR frá Blönduósi, sem lést sunnudaginn 29. desember verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.00. Jón Ingi Jósafatsson, Alda Sigrún Sigurmarsdóttir, Sigvaldi Hrafn Jósafatsson, Guðfinna Jóna Eggertsdóttir, Jónína G. Jósafatsdóttir, Bjarni Benedikt Arthursson, Pétur Jósafatsson, Málfríður Gestsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN MATTHILDUR VALHJÁLMSDÓTTIR, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 2. janúar. Matthildur Þ. Gunnarsdóttir, Örn S. Einarsson, Guðrún Matthildur Arnardóttir, Snorri Ólafur Snorrason, Erla Sigríður Arnardóttir, Jón Oddur Jónsson, Vigdís Rún Arnardóttir og langömmubörn. ✝ Áskær sonur minn, bróðir, mágur og frændi, EINAR SIGURÐSSON, Nesbakka 3, Neskaupstað, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 28. desember. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 7. janúar kl. 14.00. Sigurður Anton Arnfinnsson, Þórdís Sigurðardóttir, Jeff Clemmensen, Henry Fannar Clemmensen, Agnes Fönn Clemmensen, Írena Fönn Clemmensen. ✝ Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN BJARNI STEFÁNSSON, Háeyrarvöllum 18, Eyrarbakka, lést á líknardeild LSH þriðjudaginn 31. desember. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju föstudaginn 10. janúar kl. 14.00. Oddrún Bjarnadóttir, Stefán Þór Bjarnason, Eva Bryndís Helgadóttir, Vignir Bjarnason, María Fjóla Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RÓSA STEFÁNSDÓTTIR frá Hauganesi, lést á Dalbæ föstudaginn 3. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Anna Soffía Haraldsdóttir, Bragi Guðmundsson, Helga Níelsdóttir, Björn Friðþjófsson, Rósa Kristín Níelsdóttir, Benjamín Valgarðsson, Stefán Garðar Níelsson, Hulda Njálsdóttir, Eyrún Níelsdóttir, Ómar Steindórsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar BJARNA EIRÍKSSONAR bónda, Miklholtshelli. Guðrún Guðmundsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur. ✝ Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁGÚSTU GUÐJÓNSDÓTTUR frá Eiríksbakka, Biskupstungum, Ofanleiti 11, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. janúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á SÍBS eða aðrar líknarstofnanir. Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Hafliði Benediktsson, Sigfinna Lóa Skarphéðinsdóttir, Magnús Kristinsson, Kristján Skarphéðinsson, Guðrún B. Einarsdóttir, Danfríður Skarphéðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær dóttir okkar, systir og mágkona, DAGNÝ ÖSP RUNÓLFSDÓTTIR Bjarkarheiði 6, Hveragerði, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 30. desember. Guðrún Hanna Guðmundsdóttir, Runólfur Þór Jónsson, Hrefna Lind Heimisdóttir, Friðjón Þórðarson, Una Ósk Runólfsdóttir, Haukur Benedikt Runólfsson, Kristinn Hólm Runólfsson, Berglind Kvaran Ævarsdóttir, Thelma Rún Runólfsdóttir, Þráinn Ómar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.