Morgunblaðið - 04.01.2014, Qupperneq 11
Morgunblðið/RAX
Íshellir í Mýrdalsjökli Sífellt fjölgar þeim sem uppgötvað hafa töfra íslenskra jökla og leggja þangað leið sína. Brýnt er að fólk gæti sín vel í jöklaferðum, hætturnar liggja víða.
við það sem gert er erlendis. Grunn-
námið í raungreinum, sem ég þekki
við Háskóla Íslands, er mjög gott en
kennslu og rannsóknir í framhalds-
og doktorsnámi þarf að styrkja með
samvinnu við erlenda háskóla. Í
mínu fagi er mikilvægt að geta sent
framhaldsnema í tvö misseri til
náms erlendis og fá hingað skipti-
nema að utan,“ segir Helgi en nú
vinna háskólar á Norðurlöndum
saman að menntun jöklafræðinga í
verkefni sem kallast SVALI, en
Helgi var einn upphafsmanna þess
að koma verkefninu á. „Hver skóli
heldur námskeið sem framhalds-
nemar frá öðrum skólum geta sótt
og fengið viðurkennd.“
Margt breyst á starfsævinni
Starfsvettvangur Helga hefur
breyst mjög á ævi hans og nú vinnur
nokkur hópur við rannsóknir á jökl-
um, snjó og hafís hér á landi en
Helgi var í fyrstu nær einn við slík-
ar rannsóknir á Íslandi. „Jöklarnir
hafa mikil áhrif á líf okkar hér á
landi og margt þarf að rannsaka.
Jöklarnir þekja um tíundahluta Ís-
lands, frá þeim falla stærstu ár
landsins sem við virkjum og brúum.
Undir þeim verða eldgos og frá
þeim falla jökulhlaup,“ segir Helgi
og bendir á að auk þess þurfi að
huga að áhrifum loftslagsbreytinga
á jöklana.
„Jöklafræði hefur orðið æ mik-
ilvægari fræðigrein um allan heim
eftir því sem liðið hefur á starfsævi
mína. Jöklar rýrna hratt vegna
hlýnunar andrúmslofts og hafs.
Þetta eru staðreyndir og styrkur
koltvísýrings vex stöðugt í and-
rúmslofti. Ef þessi þróun heldur
áfram má búast við því að jöklar á
Íslandi hverfi á næstu 200 árum.“
Þykir vænt um land
og náttúru
Áhugi Helga á landinu og nátt-
úrunni er ekki bara vísindalegur.
Helgi fór ungur í sveit í Bisk-
upstungur og síðan í Meðalland og
var í sumarvinnu við skógrækt úti á
landi sem unglingur, einnig við
vatnamælingar á hálendinu.
„Náttúran, fjöllin og jöklarnir
voru þar í augsýn og ég held það
hafi ráðið því að ég vildi finna ævi-
starf þar sem ég gæti verið úti á
sumrin og sinnt úrvinnslu gagna
inni á veturna. Ég er náttúruunn-
andi og einnig náttúrverndarsinni,“
segir Helgi en hann hefur oft verið
spurður hvað dragi hann upp á jökla
þar sem mörgum gæti þótt lítið að
sjá. „Mér líður vel uppi á jöklum í
einfaldri fegurð, snjó og ís, lit-
brigðum við ský og himininn.“
„Mér líður vel uppi á
jöklum í einfaldri feg-
urð, snjó og ís.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
nazar.is · 519 2777
FJÖLSKYLDUPARADÍS
Eitt af okkar vinsælustu vatnsleikjahótelum
Eitt stærsta aðdráttarafl
Eftalia Aqua er litríki
vatnsleikjagarðurinn
sem vekur ætíð mikla
lukku hjá yngstu
kynslóðinni.
Hér eru stórar og fínar
fjölskyldusvítur og hægt
er að fá barnaverð upp
að 18 ára aldri.
Allt innifalið frá 126.000,-
Börn undir 18 ára aldri frá 91.000,-
BEINT FLUG FRÁ KEFLAVÍK TIL TYRKLANDS
STÓRKOSTLEGUR
VATNSSKEMMTIGARÐUR
Allt þetta kostar 0 kr.
Hjá Nazar er enginn dulinn kostnaður
TYRKLAND SUMARIÐ 2014:
Ráðgjöf íslenskra sérfræðinga
Bókun í síma
Íslensk fararstjórn allt
ferðatímabilið
Matur í flugi
Akstur til og frá hóteli
Frítt fyrir ungbörn (og engin
verðhækkun á foreldrana)
100%
ALLT INNIFALIÐ
LÚXUSFRÍ FYRIR ALLA!