Morgunblaðið - 04.01.2014, Síða 14

Morgunblaðið - 04.01.2014, Síða 14
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þýskir sérfræðingar telja unnt að bæta mjög rásfestu Herjólfs þegar hann siglir inn í Landeyjahöfn með breytingum á skrokki skipsins. Málið er til athugunar hjá stjórn- völdum sem fara með eignarhald skipsins fyrir hönd ríkisins. Starfsmenn Siglingastofnunar hafa lengi hvatt til þess að skoðað verði hvernig stendur á því að Herjólfur snýst jafnmikið fyrir ut- an Landeyjahöfn og raun ber vitni. Það hefur skapað hættu fyrir skip- ið, farþega og áhöfn. Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður sigl- ingasviðs Vegagerðarinnar, segir að Siglingastofnun hafi að lokum ákveðið að fá álit þýskra sérfræð- inga í hönnun á skipsskrokkum. Þeir telja unnt að bæta úr ágöll- um skipsins með því að breyta perustefni þess, færa slingubretti aftar og lengja kjöl þess með skeggi við skut. Slingubretti eru armar á skrokki skipsins, neðan sjólínu, sem ætlað er að draga úr veltingi. Sigurður tekur fram að ábendingar þessar hafi áður komið fram, frá skipstjórum skipsins og fleirum. Vegagerðin fer með eign- arhald á Herjólfi og er málið í at- hugun þar. Lagfæringar undirbúnar Herjólfur siglir þessar vikurnar til Þorlákshafnar þar sem of grunnt er í Landeyjahöfn auk þess sem veður hafa verið slæm. Ekki verður hafin dýpkun fyrr en útlit verður fyrir hagstætt vinnuveður í all- marga daga í röð. Unnið hefur verið að undirbún- ingi ýmissa lagfæringa á höfninni. Sigurður nefnir garðsendana. Bæta þarf aðkomu að þeim í öryggis- skyni og reka niður nýja staura til að draga úr hættu á að Herjólfur rekist utan í grjótið. Þá er verið að endurskoða fyrirkomulag innan hafnar í þeim tilgangi að draga úr hreyfingu þar. Þá er enn verið að skoða hug- myndir um að gera breytingar við höfnina til að draga úr sandburði og hreyfingu fyrir utan. Sig- urður segir að hvergi hafi verið ráðist í sambæri- legar framkvæmdir og verði að undirbúa þær vel með rannsóknum sem taka mörg ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg Landeyjahöfn Herjólfur kominn á lygnan sjó inni í Landeyjahöfn. Skipið hefur lent í erfiðleikum við hafnarmynnið og einu sinni slegist utan í hafnargarðinn. Siglt er til Þorlákshafnar þessar vikurnar vegna erfiðra aðstæðna. Hægt að bæta mjög rásfestu Herjólfs  Þýskir sérfræðingar leggja til breytingar á ferjunni 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 AWorld of Service Við erum í hádegismat Við bjóðumupp á hollan og góðan hádegisverð alla virka daga fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Fjóra daga vikunnar bjóðum við upp á tvo rétti, til að mæta þörfum semflestra. Skoðaðumatarmálin hjá þér og vertu í samband við veitingasvið ISS. www.iss.is - sími 5 800 600.„Við leggjum metnað í góðan og hollan hádegisverð” Eitt og tvö fjöll á mánuði Skráðu þig inn – drífðu þig út Fjallgönguverkefni Ferðafélags Íslands Kynningarfundur þriðjudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6 Ferðafélag Íslands • www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533 Hin árlega þrettándabrenna í Mos- fellsbæ verður í dag, laugardaginn 4. janúar klukkan 18.00. Hún verð- ur við Leirvoginn neðan Holta- hverfis. Blysför leggur af stað frá Miðbæjartorginu klukkan 18.00. Brennan er stærsti viðburður í bænum á ári hverju þar sem þús- undir gesta leggja leið sína í Mos- fellsbæ. Dagskráin verður vegleg að þessu sinni en fram koma Storm- sveitin með Bigga Haralds, Skóla- hljómsveit Mosfellsbæjar ásamt Grýlu, Leppalúða og þeirra hyski. Flugeldasýning verður á vegum Mosfellsbæjar og Björgunarsveit- arinnar Kyndils. Þrettándabrenna í Mosfellsbæ í dag Sérfræðingar telja að með frek- ari færslu ósa Markarfljóts austur eftir sandinum muni draga úr framburði fljótsins inn í Landeyjahöfn. Lengja þarf flóðvarnagarð sem byggður var 2011 um 250 metra og stendur til að tilkynna framkvæmdina til Skipulagsstofnunar. Þegar garðurinn var gerður 2011 stóð til að færa fljótið rúma 2 kílómetra austur á sand- inn. Mætti það andstöðu land- eigenda. Niðurstaðan var að færa fljótið um 450 metra með bráðabirgða- garði en talið er heppilegra að hafa hann 250 metrum lengri. Vilja flytja fljótið austar SANDBURÐUR Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Útsvar í Grímsnes- og Grafnings- hreppi var lækkað úr toppi, 14,48%, niður í það lægsta leyfilega, 12,44%, um áramótin. Að sögn Gunnars Þor- geirssonar, oddvita hreppsnefnd- arinnar, var þessi ákvörðun tekin í kjölfar breytinga á reglum um jöfn- unarsjóð sveitarfélaga. „Reglur jöfnunarsjóðsins hafa verið svo sérkennilegar að til þess að fá ekki skerðingu verður að nýta út- svarið að fullu. Þar sem jöfn- unarsjóður hefur breytt reglum þannig að hreppurinn nýtur ekki lengur framlaga er ekki lengur hvati til að halda útsvarinu í toppi,“ segir Gunnar. Auk þess hafi með þessu verið komið til móts við íbúa sveitar- félagsins. Þrátt fyrir þessa lækkun á tekjum sveitarfélagsins stendur ekki til að draga saman seglin í þjónustu þó að hagrætt verði í rekstrinum á móti að sögn Gunnars. „Þetta er eitt af tekjuhærri sveitarfélögum á landinu sem end- urspeglast í því að í því er talsvert af virkjunum eins og Sogsvirkjanirnar þrjár og Nesjavellir. Skatttekjur á íbúa eru talsvert hærri en að með- altali á landinu,“ segir Gunnar. Grímsnes- og Grafnings- hreppur á í töluverðu samstarfi við nágrannasveitarfélögin um ýmsa þjónustu á borð við velferðar- og skólamál, skipulags- og bygging- armál og brunavarnir til dæmis. Út- svarslækkunin mun ekki þýða að kostnaði við þjónustu við íbúa í hreppnum verði velt yfir á önnur sveitarfélög. „Við borgum það sem okkur ber og látum ekki nágranna okkar borga fyrir okkur,“ segir Gunnar. Sam- legðaráhrif byggðarsamlaganna séu eitthvað sem allir njóti góðs af. Lækka útsvar úr toppi niður á botn  Hvatinn horfinn eftir breytingar Sogsvirkjanir Sveitarfélagið hefur tekjur af virkjunum í landi þess.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.