Morgunblaðið - 04.01.2014, Qupperneq 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hella
Það er við hæfi svo skömmu eftir
áramót að óska landsmönnum árs og
friðar og gæfu á árinu sem gengið er
í garð, er það gert hér með. Það blæs
kröftuglega þessa fyrstu daga ársins
og færð víða á landinu er ekki til að
hrópa húrra fyrir. Við hér í Rang-
árvallasýslu getum þó ekki kvartað
að ráði, þar sem við höfum sloppið
nokkuð vel síðustu vikurnar, þó að
klakabrynja sé nokkur á flestum
vegum og götum utan hringveg-
arins.
Lionsklúbburinn Skyggnir í
Rangárvallasýslu hefur haft þann
sið í vel yfir 30 ár, að halda jóla-
hugvekju um eða fyrir miðjan des-
ember ár hvert á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Lundi, fyrir
heimilisfólkið þar. Boðið er upp á
tónlist og söng ásamt því að prest-
urinn í Odda fer með létta hugvekju.
Með þessu er haft dauft jólaglögg
fyrir þá sem vilja, ásamt öðrum veit-
ingum. Að auki færa lionsmenn öll-
um heimilismönnum jólapakka við
þetta tilefni.
Aðrir fastir liðir hjá Skyggn-
isfélögum eru að færa ákveðnum ár-
göngum í grunnskólunum lítið kver
um brunavarnir á heimilum og njóta
til þess aðstoðar frá Brunavörnum
Rangárvallasýslu, sem nota tæki-
færið og fræða börnin enn frekar um
þau mál. Einnig er ákveðnum ár-
göngum fært bókamerki Lions, sem
er liður í að styrkja lestrarkennslu
og stuðla að auknum lestri.
Þorrablótin eru á næsta leiti,
en þorrinn byrjar eftir um hálfan
mánuð. Varla eru matarveislur jóla
og áramóta liðnar þegar veislur
þorrablótanna taka við. Að minnsta
kosti fjögur þorrablót eru hér um
slóðir, tvö á Laugalandi, eitt á Brú-
arlundi og eitt á Hellu. Blótið á
Hellu er stærst þeirra, þar hafa
komið yfir 600 manns þegar mest
var. Brottfluttir íbúar úr Holtum,
Landsveit og Rangárvöllum eru
duglegir að heimsækja átthagana í
tengslum við þorrablótin.
Það er fróðlegt að skoða hvaða
framkvæmdir eru fyrirhugaðar í
héraðinu á nýju ári. Eins og áður
hefur verið minnst á í þessum pistl-
um standa yfir framkvæmdir við
nýtt hótel á Hellu, Stracta hótel,
með um 130 herbergjum fyrir á
þriðja hundrað manns. Heimildir
herma að jafnvel verði bætt við þann
herbergjafjölda ef leyfi fást fyrir
stækkun lóðar o.fl. Vindmylluverk-
efnið í Þykkvabæ er í góðum farvegi
og eru vindmyllurnar komnar til
landsins og bíða á bryggju í Þorláks-
höfn sem stendur. Reiknað er með
að þær verði tilbúnar til rafmagns-
framleiðslu að lokinni uppsetningu
með vorinu.
Sorpstöð Rangárvallasýslu fyr-
irhugar að byggja nokkuð stórt hús
á Strönd á Rangárvöllum til að efla
og styrkja starfsemina. Um er að
ræða móttöku- og umhleðsluhús, 800
ferm. að grunnfleti með 7-8 metra
lofthæð. Nýlega var verkið boðið út
og átti Landstólpi ehf. lægsta til-
boðið, rúmar 100 milljónir og var því
tekið. Reiknað er með að öll fram-
kvæmdin kosti 120-130 milljónir
króna, en starfsmenn sorpstöðv-
arinnar vinna sjálfir jarðvinnuna
sem þarf til.
Reykjagarður, sem rekur kjúk-
lingasláturhús og kjötvinnslu, er að
vinna að því fá leyfi fyrir stækkun.
Fyrirtækið hefur fengið lóð austan
við núverandi starfsemi sína, þar
sem verða bílastæði og athafna-
svæði. Nýbyggingin verður upp-
steypt hús innan gömlu lóðarinnar
og er fyrirhuguð 1.000 ferm. að
stærð. Í því verður kjötvinnsla með
bættu flæði, afgreiðsla og frysti-
geymsla. Ekki er reiknað með að
starfsmönnum fjölgi að ráði við
stækkunina, en afköst og gæði munu
hins vegar aukast. Áætlað er að
fyrsta skóflustungan verði tekin nú
á vormánuðum og að húsnæðið verði
að fullu tekið í notkun síðla árs 2015.
Rangárþing ytra mun verja tug-
um milljóna króna á næstu mán-
uðum til ýmissa framkvæmda. Má
þar nefna að fljótlega verður lokið
viðbyggingu við gamla hluta grunn-
skólans á Hellu, sem hýsa mun and-
dyri, snyrtingar o.fl. Í sumar verður
ráðist í frekari endurbætur innan-
húss. Þá stendur fyrir dyrum ný
vegalagning á svæðinu við nýja hót-
elið og aðkomuna að Gadd-
staðaflötum, en eins og kunnugt er
verður landsmót hestamanna 2014
haldið þar í sumar. Þá mun sveitar-
félagið ráðast í umfangsmiklar frá-
veituframkvæmdir á sama svæði,
ásamt því að leita að auknum kalda-
vatnslindum og virkja þær vegna
aukinnar starfsemi.
Önnur áform um framkvæmdir
eru hugsanlega í startholunum sem
ekki er tímabært að segja frá að svo
stöddu, aðallega hjá einkaaðilum í
ferðaþjónustu. Ákvarðanir varðandi
þær verða teknar á næstu vikum eða
mánuðum.
Framkvæmdagleði
er ríkjandi á nýju ári
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Skemmtun Lionsfélagar Skyggnis ásamt hjálparsveinum þeirra fluttu tón-
list fyrir heimilisfólk á Dvalar og hjúkrunarheimilinu Lundi á aðventunni.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
í yfir 50 fallegum litum
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
VINSÆLA
ARWETTA CLASSIC
GARNIÐ
Minnum á
prjónakaffið á
mánudagskvölið
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
FYRIR ÓLITAÐ HÁR
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR.
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305 | har@har.is | REDKEN Iceland á
FYRIR HÁRLOS
FYRIR ÚFIÐ HÁR FYRIR LJÓST HÁR
FYRIR ÞURRT HÁR
FYRIR KRULLAÐ HÁR
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
SENTER
SCALA
SALON VEH
SALON REYKJAVÍK
PAPILLA
N-HÁRSTOFA
LABELLA
MENSÝ
MEDULLA
KÚLTÚRA
HÖFUÐLAUSNIR
HJÁ DÚDDA
FAGFÓLK
BEAUTY BARFYRIR FÍNGERT HÁR
FYRIR LITAÐ HÁR FYRIR SKEMMT HÁR
FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ
REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það lífi
PRÓTEINRAKI
FYRIR LÍFLAUST HÁR
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Skákþing Reykjavíkur hefst
sunnudaginn 5. janúar kl. 14.
Tefldar verða níu umferðir eftir
svissnesku kerfi og eru tímamörk
1½ klst. á alla skákina auk 30 sek.
á leik.
Umferðir fara fram tvisvar í
viku, á miðvikudögum kl. 19.30 og
á sunnudögum kl. 14. Níunda og
síðasta umferðin verður tefld
sunnudaginn 2. febrúar kl. 14.
Teflt er í húsnæði Taflfélags
Reykjavíkur að Faxafeni 12.
Sú nýbreytni verður að boðið er
upp á tvær yfirsetur í umferðum
2-6. Keppandi skal leggja inn
skriflega beiðni um yfirsetu til
skákstjóra í síðasta lagi við upp-
haf umferðarinnar á undan. Hálf-
ur vinningur fæst fyrir yfirsetu.
Efstu þrír á mótinu fá pen-
ingaverðlaun og mun sigurveg-
arinn fá 100 þúsund krónur í sinn
hlut. Skráning fer fram á skák.is
og heimasíðu TR. Síðdegis í gær
höfðu 40 skákmenn skráð sig til
leiks.
Skákþing Reykjavík-
ur hefst á sunnudag