Morgunblaðið - 04.01.2014, Qupperneq 25
Rauðagerði 25 108 Reykjavík Sími 440 1800 kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Orkusparnaður
með Nergeco
hraðopnandi
iðnaðarhurðum
Nergeco
Opnast hratt & örugglega
Eru orkusparandi
Þola mikið vindálag
Eru öruggar & áreiðanlegar
Henta við allar aðstæður
15 ára reynsla við íslenskar
aðstæður & yfir 130 hurðir
á Íslandi
•
•
•
•
•
•
Með hraðri opnun & lokun sem & mikilli einangrun
má minnka varmaskipti þar sem loftskipti verða minni
Intelligent curtain sem
veitir aukið öryggi
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hópur norskra skotveiðimanna hef-
ur verið fenginn til að veiða síðustu
hreindýrin á eyjunni Suður-Georgíu
í Suður-Atlantshafi.
Suður-Georgía er breskt yfir-
ráðasvæði og hefur tilheyrt Falk-
landseyjum. Á eyjunni voru áður
verstöðvar hval- og selfangara en
þar dvelja nú að jafnaði aðeins um 30
manns og flestir þeirra eru vís-
indamenn sem stunda rannsóknir á
Suðurskautslandinu.
Norðmaðurinn Carl Anton Lar-
sen kom upp fyrstu hvalstöðinni í
Suður-Georgíu árið 1904, en henni
var lokað árið 1965. Alls ráku Norð-
menn sjö hvalstöðvar á eyjunni og
þegar hvalveiðarnar náðu hámarki
voru þar allt að 10.500 Norðmenn.
Tíu hreindýr voru flutt með skipi
frá Noregi til Suður-Georgíu árið
1911. Markmiðið var að sjá hval-
veiðimönnunum fyrir kjöti og gefa
þeim færi á að stunda skotveiðar í
frístundum.
Hreindýrunum tók að fjölga mjög
á áttunda áratug aldarinnar sem leið
eftir að hvalveiðar Norðmanna lögð-
ust af. Bresk yfirvöld ákváðu fyrir
þremur árum að útrýma hreindýr-
unum í Suður-Georgíu til að vernda
vistkerfi eyjunnar og önnur dýr.
Hreindýrin voru orðin svo mörg að
hætta var talin á gróðureyðingu, auk
þess sem þau fældu burt fugla sem
hafa orpið á eyjunni. Á meðal þeirra
eru margir sjófuglar, meðal annars
mörgæsir og albatrosar, auk fugla á
borð við sæsvölur, kjóa, máva og
þernur. Til að mynda er Suður-
Georgía stærsta varpland kónga-
mörgæsa í heiminum en áætlað er að
um eitt hundrað þúsund pör komi
þangað árlega til að verpa.
Talið var fyrir þremur árum að
um 3.500 hreindýr væru í Suður-
Georgíu en þau reyndust vera hátt í
6.000. Í febrúar síðastliðnum voru
um það bil 3.500 dýranna drepin og
áætlað er að yfir 2.000 dýr séu eftir.
Stefnt er að því að þau verði öll
veidd á næstu vikum.
Rottum útrýmt á næsta ári
„Við stöndum frammi fyrir hrein-
dýraplágu og rottuplágu,“ hafði
norska dagblaðið Aftenposten eftir
Martin Collins, fulltrúa breskra yfir-
valda í Suður-Georgíu. Hann skír-
skotaði til þess að fuglunum stafar
einnig hætta af rottum sem bárust
til eyjunnar með skipum Norð-
manna og fleiri Evrópuþjóða. „Því
miður neyddumst við til að útrýma
hreindýrunum fyrst, síðan kemur að
rottunum.“
Ráðgert er að dreifa um 163 tonn-
um af eitruðu rottufóðri í ár til að út-
rýma meindýrunum. Gert er ráð fyr-
ir því að síðustu rotturnar verði
drepnar á næsta ári.
Norskir hvalveiðimenn fluttu
einnig hreindýr á frönsku eyjuna
Kerguelen í sunnanverðu Indlands-
hafi og þar hefur dýrunum einnig
fjölgað í allt að 6.000, að sögn Aften-
posten.
Morgunblaðið/Frikki
Á beit Ákveðið var að útrýma hreindýrum í Suður-Georgíu til að vernda
fuglalíf og afstýra gróðureyðingu. Hér eru hreindýr við Kárahnjúka.
Hreindýrum og
rottum útrýmt
Hreindýraplága í Suður-Georgíu
Aðdáendur kappaksturskappans Michaels Schumach-
ers söfnuðust saman við sjúkrahús hans í frönsku borg-
inni Grenoble í gær þegar haldið var upp á 45 ára af-
mæli hans. Schumacher slasaðist alvarlega á höfði í
skíðaslysi í frönsku Ölpunum á sunnudaginn var. Hann
er í svefndái á sjúkrahúsinu og læknar hans segja að
hann sé enn í lífshættu. Fjölskylda hans þakkaði aðdá-
endum hans stuðninginn sem þeir hafa sýnt honum.
Aðdáendur sýna kappaksturshetjunni stuðning
EPA
Haldið upp á afmæli Schumachers
Hundruð manna
stóðu á öndinni
við höfnina í Tai-
pei í gær þegar
átján metra há
gul uppblásin
önd var flutt
þangað aftur eft-
ir tveggja daga
viðgerðir. Öndin
sprakk á sýningu
við höfnina á
þriðjudag, nokkrum klukkustund-
um áður en gamla árið var kvatt.
Hollenski listamaðurinn Florentijn
Hofman hannaði öndina. Samskon-
ar önd hefur verið sýnd í 13 borg-
um í níu löndum frá árinu 2007.
TAÍVAN
Stóra gula öndin
fær nýtt líf
Börn við stóru
gulu öndina.