Morgunblaðið - 04.01.2014, Síða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Árið 2013 hefur
runnið sitt skeið og
gamla árið var kvatt
með tilheyrandi há-
vaða og litadýrð. Árið
2014 mun færa okkur
ný tækifæri og ný
markmið. Hér fyrir
neðan eru nokkrar
skemmtilegar hug-
myndir að nýjum sið-
um:
1. Þakklætiskrukka
Taktu stóra krukku og skrifaðu
niður á hverjum degi á litla miða,
sem þú setur í krukkuna, það sem
þú ert þakklát(ur) fyrir. Þetta get-
ur verið fólkið í þínu lífi, atburðir,
starfið eða vinnufélagarnir, eitt-
hvað í náttúrunni, hreyfingin sem
þú stundar, gæludýr, ferð sem þú
fórst í, minningar, gjafir, heilsan,
kunnáttan sem þú býrð yfir, til-
finningar og margt fleira. Skoðaðu
miðana öðru hverju og veltu því
fyrir þér hvernig gengur að veita
þessum atriðum gaum og njóta
þeirra á hverjum degi. Finndu þér
jafnvel þakklætisfélaga til að deila
þessu með og ræða við um þakk-
lætið, ástundun þess
og gildi þess í lífinu.
2. Minningakrukka
Skrifaðu allt það
góða sem hendir þig á
litla miða og settu í
stóra krukku. Þetta
geta verið skemmti-
legar uppákomur, ár-
angur sem þú náðir,
markmið sem rættust,
hindranir sem þú náð-
ir að yfirstíga, góðar
stundir með fólkinu
sem þér þykir vænt
um o.s.frv. Einnig er hægt að
setja ljósmyndir í krukkuna, bíó-
miða, afrit af farseðlum, hrós sem
þú fékkst, skeljar sem þú tíndir
eða boðskort sem þér bárust. Á
síðasta degi ársins opnarðu krukk-
una og rifjar upp minningarnar.
Fjölskyldan getur verið með sam-
eiginlega krukku eða þá hver fjöl-
skyldumeðlimur með sína krukku.
3. Hugmyndakrukka
Skrifaðu á litla miða það sem
þig myndi langa til að gera á nýja
árinu, eins og t.d. að fara í nokk-
urra daga bakpokafjallgöngu,
hjóla í vinnuna, læra að gera
sushi, taka eina ljósmynd á dag á
sama stað, lesa Íslendingasög-
Margt býr í krukkunni
Eftir Ingrid
Kuhlman
Ingrid Kuhlman
» Árið 2014 mun færa
okkur ný markmið
og tækifæri til að skapa
nýjar venjur.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þekkingarmiðlunar.
urnar, læra á Photoshop, fara á
ítölskunámskeið, prufa sjósund,
sækja sýningu hjá Íslenska dans-
flokknum, rækta kryddjurtir
o.s.frv.
4. Meistarakrukka
Í stað þess að verja orku í að
breyta slæmum venjum er betra
að einblína á það að skapa nýjar
og heilbrigðari venjur, eins og
venjan er í Meistaramánuðinum.
Kauptu t.d. matreiðslubók með
hráfæðisréttum og eldaðu upp úr
henni a.m.k. einu sinni í mánuði,
skiptu hvítu hrísgrjónunum út fyr-
ir hýðishrísgrjón, slepptu sykri,
eldaðu hafragraut, drekktu meira
vatn, gakktu upp alla stiga í stað
þess að taka lyftuna, vaknaðu
snemma morguns tvisvar sinnum í
viku til að fara í ræktina, borðaðu
ávexti eða hnetur á milli mála.
AKURINN | Samkoma kl. 14 í Núpalind 1,
Kópavogi. Guðmundur E. Erlendsson leiðir
biblíulestur.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr.
Sigrún Óskarsdóttir þjónar og prédikar. Krist-
ina Kalló er organisti. Kirkjukórinn leiðir safn-
aðarsöng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í
safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón Ingunnar
Bjarkar og Valla. Kaffi og meðlæti á eftir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta fellur
niður, fyrsta fjölskylduguðsþjónusta ársins
verður 12. janúar kl. 11.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Bára, Daníel Ágúst og sr. Árni Svanur þjóna, pí-
anóleikari er Antonía Hevesi. Guðsþjónusta kl.
14. Kór Bústaðakirkju leiðir sönginn, organisti
er Antonía Hevesi og prestur sr. Árni Svanur
Daníelsson. Messuþjónar aðstoða. Molasopi
eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 á
vegum sóknarnefndar, organista og kórs Digra-
neskirkju. Organisti er Sólveig Sigríður Ein-
arsdóttir.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, sr. Karl Sig-
urbjörnsson, biskup, prédikar og þjónar fyrir
altari. Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu á sama
tíma í umsjón Sigurðar Jóns og Boga Bene-
diktssonar. Dómkórinn syngur og organisti er
Kári Þormar.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11 sunnudag.
Jólin kvödd. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.
Kór Glerárkirkju syngur.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Barna-
starf í umsjón Lellu o.fl. Messuhópur þjónar.
Altarisganga. Samskot til ABC-barnahjálpar.
Félagar úr kirkjukór Grensáskirkju syngja. Org-
anisti er Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur
Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Hvers-
dagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á
fimmtudag kl. 18.10.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Steinar Logi Helgason.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Barnastarf í
umsjá Arnars og Öllu Rúnar. Félagar úr Kamm-
erkór Háteigskirkju syngja. Organisti er Kári All-
ansson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Jóns
Ólafs Sigurðssonar organista. Sr. Halldór
Reynisson þjónar. Sunnudagaskóli kl. 13.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
13.30. Friðrik Schram prédikar. Barnastarf á
sama tíma. Fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir
samkomu.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
í Lindakirkju og Boðaþingi kl. 11. Messa fyrir
byrjendur sem lengra komna kl. 20. Í tilefni
áramóta verður guðsþjónustan sérstaklega
miðuð við þá sem óvanir eru að sækja kirkju,
uppbygging messunnar útskýrð og sálmaval
þannig að flestir þekkja vel. Kór Lindakirkju
syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðni Már Harðarson þjónar.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúð-
ur, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása
Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á
Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
safnaðarheimili Grensáskirkju. Ræðumaður
sr. Kjartan Jónsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Kántríguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11 á fyrsta sunnu-
degi ársins, Hljómsveitin Vinir Axels leika og
spila. Guðbjörg Hilmarsdóttir syngur einsöng.
Sóknarprestur þjónar. Kaffiveitingar.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA í Jökulsárhlíð | Há-
tíðarguðsþjónusta í Sleðbrjótskirkju 5. janúar
kl. 15. Sameiginleg jóla- og nýársguðsþjónusta
fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókn (vegna
messufalls á jóladag). Kirkjukór sóknanna
syngur, prestur er Þorgeir Arason, organisti er
Magnús Magnússon.
VÍDALÍNSKIRKJA | Brúðubíllinn sýnir leikritið
Týnda eggið í Vídalínskirkju kl. 11.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisso
Reynistaðakirkja í Skagafirði
Orð dagsins: Vitring-
arnir (Matt 2)
Messur á morgun
Sto´latilboð
Það besta kostar
minna en þú heldur
Goal 322G með örmum og höfuðpúða
Frábær skrifstofustóll með fjölbreyttum
stillimöguleikum, samhæfing setu og baks.
Skin fundar- og gestastóll
Fallegur stóll með vel formað bak og neti í
bakinu. Seta með svörtu taui, fætur króm.
Listav
erð 28
9.300,
-
m/vsk
Listav
erð 52
.900,-
Tilboð
39.675
,-
m/vsk
Stólatilboðsdagar hjá InnX
Þessir hér á 25 - 35% afslætti.
Komdu við í verslun okkar að
Fosshálsi 1 í Reykjavík og kíktu á
úrvalið því allir aðrir stólar seljast
með 20% afslætti.
Ath. Sumar gerðir þarf að panta.
X
E
IN
N
IX
13
06
00
3