Morgunblaðið - 04.01.2014, Page 32

Morgunblaðið - 04.01.2014, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014 ✝ Sólveig Ás-geirsdóttir var fædd í Reykjavík 2. ágúst 1926, Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund í Reykjavík 27. desember 2013. Foreldrar hennar voru Ásgeir Ás- geirsson, f. 11.8 1885, d. 25.5 1972, kaupmaður í Reykjavík og Kristín Matthías- dóttir, f. 9.8 1892, d. 6.5, 1930, húsmóðir, eiginkona hans. Hálf- systkini hennar, sammæðra, voru Matthías Hreiðarsson tann- læknir og Guðný Hreiðarsdóttir ritari. Alsystkini Sólveigar voru Guðbjörg, húsmóðir og Ásgeir, kaupmaður. Eftirlifandi hálf- systkini hennar eru Kristín Ás- geirsdóttir, húsmóðir, Matthías Ásgeirsson, íþróttakennari og Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, fulltrúi. 3. ágúst 1948 giftist hún Pétri Sigurgeirssyni, presti á Ak- ureyri, og eru börn þeirra: 1. Dr. Pétur Pétursson, f. 19. febrúar 1950, prófessor við Guðfræði- og ín Pétursdóttir, f. 31. maí 1952, húsmóðir, eiginmaður hennar er Hilmar Karlsson, lyfjafræðingur og börn þeirra eru: Kristján Pét- ur, verkfræðingur, í sambúð með Eyrúnu Bjarnadóttur og börn þeirra eru Hilmar Karl, Lilja Guðrún og Kári Bjarni; og Guð- rún Svana, BS í lífefnafræði. 4. Sólveig Pétursdóttir, BA í sál- fræði, ráðgjafi, f. 21. júní 1953, sambýlismaður Hartmann Ás- grímur Halldórsson, bóndi. Áður gift Borgþóri Kærnested, leið- sögumanni og túlki, þau skildu. Börn þeirra eru Sólveig Fríða, sálfræðingur, gift Tryggva Inga- syni, sálfræðingi. Dætur þeirra eru Ásdís Sólveig og Þórdís Katla; og Pétur Friðfinnur, kvik- myndagerðarmaður, í sambúð með Bethinu Elvedam Nielsen, fatahönnuði. Þeim fæddist sonur 20. des. 2013. Á yngri árum sínum vann Sól- veig hjá bandaríska sendiráðinu í Reykjavík og stundaði nám við Verslunarskóla Íslands og Hús- mæðraskólann í Reykjavík. Hún fluttist með manni sínum frá Ak- ureyri til Reykjavíkur árið 1981 þegar hann tók við embætti bisk- ups Íslands og var búsett þar síð- an. Á Akureyri vann hún um tíma hjá bæjarfógetanum á Ak- ureyri. Útförin verður gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík laugardag- inn 4. janúar 2014 kl. 13.30. trúarbragða- fræðideild Háskóla Íslands. Eiginkona hans var Þuríður Jóna Gunnlaugs- dóttir, sjúkraliði, en þau skildu. Börn þeirra eru Sólveig Jóna, réttarfélags- fræðingur, í sam- búð með Oliver Po- poski, tölvunarfræðingi og Matthías Emanúel, mat- reiðslumaður, í sambúð með Helgu Einarsdóttur, margmiðl- unarfræðingi og fatahönnuði, dóttir þeirra er Hildigunnur. Fósturbörn Péturs eru Lone Marianna Lauridsen, tölv- unarfræðingur, í sambúð með Kristoffer Lindblad, tölv- unarfræðingi, þeirra sonur er Viggo. Áður átti hún Pétur Nino Antonio sem nú stundar há- skólanám; og André Örn Laurid- sen, bifvélavirkja, kvæntan Juli- ane f. Kezovska, fulltrúa, synir þeirra eru Nikola og Marko. 2. Guðrún Pétursdóttir, f. 25. maí 1951, d. 26. mars 1986, há- skólanemi og flugfreyja. 3. Krist- Heilsteypt, hjartahlý og glæsi- leg kemur upp í hugann þegar við minnumst móðursystur okkar. Dollý, eins og við kölluðum hana, og móðir okkar, Dídí, voru nánar systur og má vera að móð- urmissir á unga aldri hafi styrkt systraböndin og stuðlað að því hve umhyggjan hvor fyrir annarri var mikil. Móðir þeirra lést af barnsförum frá barnahópnum sínum og var móðir okkar þá níu ára en Dollý aðeins fjögurra ára. Örlögin höguðu því þannig að Dollý varð prestsfrú á Akureyri og bjó þar með manni sínum og börnum, en við systurnar ólumst upp í Reykjavík og var samgangur milli landshluta ekki eins mikill og í dag. En alltaf voru þær systur í sam- bandi og reyndust hvor annarri góðar og umhyggjusamar bæði í gleði og sorg. Við minnumst þess þegar pabbi okkar varð bráðkvaddur 35 ára gamall og mamma stóð ein með okkur fjórar á aldrinum 2-12 ára að þá vílaði Dollý ekki fyrir sér að yfirgefa sitt stóra heimili og koma til systur sinnar til að vera henni stoð og stytta á sorgarstundu. Okkur systrunum fannst gam- an og gott að fá hana. Hún var allt- af svo ræðin, glöð og góð. Þau hjónin reyndust okkur vel á þess- um erfiða tíma. Pétur jarðsöng svila sinn og Dollý var okkur mæðgunum styrkur og létti okkur lífið á alla lund. Ótrúlegt af svona ungri konu, aðeins 30 ára gamalli. Hún sagði okkur fyrir nokkrum árum að henni hefði nú létt þegar við systur vorum komnar af barnsaldri, en hún hafði þá lofað systur sinni því að ef eitthvað kæmi fyrir hana þá tækju þau Pétur okkur að sér. Unga móðirin var svo kvíðin að falla líka frá stelpunum sínum og var þetta boð þeirra til að létta af henni kvíðanum. Við vitum að þetta var boðið af heilum hug og hefði verið staðið við. Sýnir þetta mikinn höfðingsskap og hjarta- hlýju. Við vorum alltaf stoltar af frænku okkar á Akureyri og fannst mikið til hennar koma. Okkur fannst nánast að Akur- eyringar hefðu drottningu og kóng sem voru þau Dollý og Pét- ur. Eftir að þau fluttust til Reykja- víkur varð samgangurinn meiri og systurnar hittust oftar. Því miður fékk móðir okkar Alzheimers-sjúkdóminn rétt rúm- lega 60 ára og þegar hún var orðin langt leidd af þeim sjúkdómi var aðdáunarvert hvað Dollý náði vel til hennar. Það var greinilegt að mamma þekkti alltaf systur sína og brosti fallega til hennar með mikilli væntumþykju. Dollý náði svo vel til fólks og hafði þann eiginleika að skapa samræður og segja skemmtilega frá, enda frá mörgu að segja. Hún hafði upplifað og tekið þátt í svo mörgu sem prests- og biskupsfrú. Dollý var myndarleg húsmóðir og gott að koma til hennar, hún átti góðan mann sem hún elskaði og annaðist vel alla tíð. Börnin þeirra þau Pétur, Krist- ín og Sólveig eru að missa móður sem elskaði þau skilyrðislaust og var auðfundið hve stolt hún var af þeim og fjölskyldum þeirra. Öll syrgðu þau Guðrúnu, dóttur og systur sem féll frá ung stúlka. Nú kveðjum við móðursystur okkar með söknuði og biðjum henni Guðs blessunar. Við trúum því að hún sé komin aftur í fang Péturs og búin að hitta Guðrúnu og allt sitt fólk. Vonandi hafa þær líka hist, systurnar Dídí, Lilla og Dollý sem voru svo oft nefndar í sömu andránni. Elsku frændsystkin og fjöl- skyldur. Innilegar samúðarkveðj- ur til ykkar. Við minnumst móður ykkar með hlýju. Guð geymi elsku frænku okkar og hafi hún þökk fyrir allt og allt. Kolbrún, Auður, Nanna og Hulda. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (Matthías Jochumsson) Á langri lífsbraut eru mörg vegamót og stígar. Sumir vegir eru mjóir, aðrir breiðir, enn aðrir holóttir og hættulegir en líka vegir láns og lukku. Hvað stýrir því að einstaklingar feta ákveðna vegi, en ekki aðra, er ekki gott að segja en efalaust hefur uppeldi, fé- lagsskapur og eigin ákvörðunar- hæfni mikil áhrif. Það hefur verið lán mitt og míns fólks að feta vegi láns og lukku og hitta á þeirri leið margt gott og gefandi fólk. Margt af því hefur haft sinn stuðning og vegvísun frá kristilegu uppeldi í foreldrahúsum og trúlega hefur kirkjan ráðið mestu um að leiðir fjölskyldu minnar og Sólveigar Ásgeirsdóttur og Péturs Sigur- geirssonar lágu saman fyrir u.þ.b. 60 árum. Frá þeim tíma höfum við vitað hvert af öðru og hist af og til þótt þeim fundum hafi farið fækk- andi með tímanum en alltaf hafa vinaböndin haldist. Það var þann 8. desember sl. sem við sátum síð- ast saman og skárum laufabrauð og líklega hefur það verið í 57. eða 58. sinn sem fjölskyldur okkar hittust og áttu saman dagstund við laufabrauðið. Sólveig var þá hin sama að ytra útliti en innra var ellin aðeins tekin að trufla hana. Hópurinn hefur breyst, prestarnir báðir horfnir sem og fleiri fjöl- skyldumeðlimir. Þetta er gangur lífsins því ekkert líf er án dauða og án dauðans er ekkert líf. Það er eiginlega ekki hægt að skrifa minningarorð um frú Sól- veigu án þess að nefna Pétur, svo samrýmd voru þau og Pétur að verulegu leyti háður Sólveigu síð- ustu árin. Sólveig var glæsileg kona, vel menntuð, skoðanaföst, trúuð og ákveðin á sinn kurteisa hátt. Hún var fagurkeri, alltaf vel til fara og snyrtileg og ég er viss um að hún hefur stýrt heimili þeirra Péturs að einu og öllu leyti og kannski sem betur fer. Hugur Péturs var á tíðum varla jarðneskur og þá var gott að eiga konu sem sá um að smáatriðin yrðu ekki útundan, þessi smáatriði sem gátu skipt öllu máli ef þau gleymdust. Þau voru sannir vinir og alltaf velkomnir gestir og var það gagnkvæmt. Vinskapurinn hefur og haldist milli barna og afkomenda og fylgi- fiska ef svo mætti kalla. Sálmversið hér að ofan er ev- angelium. Það er ræða, boðskapur og huggun þeim sem vita fyrir hvað Guð almáttugur stendur. Það hlýtur að vera sælt að geta lokað augunum, í verklok, að liðnu góðu dagsverki, og hvílast í mild- um föðurörmum þess er allt skóp og öllu stýrir. Þetta erindi Matt- híasar, frænda hennar, er loka- kveðja okkar til hennar. Kveðja sem er í senn af gleðilegu tilefni en jafnframt líka af sorglegu tilefni. Sólveig Ásgeirsdóttir lauk afar góðu dagsverki og hér með er henni þökkuð öll vinsemd og vin- átta undanfarinna ára og áratuga. Fyrir hönd gömlu Vallafjölskyld- unnar sendi ég fjölskyldu hennar okkar bestu samúðarkveðjur. Gunnlaugur V. Snævarr. Frú Sólveig Ásgeirsdóttir hef- ur kvatt sitt samferðafólk á jörð og er farin heim til sinna him- nesku heimkynna. Við getum og megum fagna því með henni. Langur starfsdagur og viðburða- rík starfsævi var að baki. Flest minnumst við hennar fyrst og fremst í annasömu starfi á heimili þeirra hjóna. Ekki má þó gleyma störfum hennar utan heimilis. Þar sem annars staðar var hún svo mörgum bæði sólargeisli og von- arbjarmi. Allt frá því ég heyrði hennar fyrst getið finnst mér eins og nafn hennar hafi aldrei verið nefnt eitt sér. Það var alltaf talað um Sól- veigu og Pétur. Enda segir hann sjálfur á einum stað: „… en sann- ast að segja var Sólveig „aðstoð- arprestur … Það verður eigi of- metið hvað hjónin eru hvort öðru í þessu starfi.“ Þessi þjónusta Sól- veigar var alltaf til staðar. Kirkjufólk í þessu landi mun ávallt minnast þeirra Sólveigar og Péturs saman á vettvangi, hvort sem var í prestsþjónustu á Akur- eyri, í vígslubiskupsþjónustu og síðast biskupsþjónustu. Aðrir munu verða til þess að minnast þeirra ára. Þessi minningarorð tengjast fyrst og fremst síðustu árum þeirra hjóna saman, eftir að þjónustutíma séra Péturs lauk. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast þeim enn betur þá en fyrr gafst kostur á. Sannaðist þar hvernig helstu eðliskostir mann- anna koma best í ljós þegar á reynir. Yfir þessum árum öllum hvílir einstök fegurð, eins og þeg- ar kvöldsólin baðar himinhvolfið sinni mestu fegurð í fjölbreyttri litadýrð. Engum dylst að dagur er senn á enda. Einmitt þess vegna er hvert andartak svo dýrmætt, en jafnframt dýrmætast þeim sem veit að dagur rís að nýju. Nýr dag- ur í morgundýrð. En hinn ókomna dag getur enginn séð nema með innri augum sínum. Margt má segja um fjölbreytt störf frú Sólveigar fram til þess tíma og virka þátttöku í kirkju- starfi þar sem hún var manni sín- um stoð og stytta. En dýrmætari var hún honum aldrei meir en þau ár þegar sjúkdómsglíman harðn- aði og augnaljósið dapraðist. Hvernig gat hún þetta? Það var fyrir hennar ríku eðliskosti: Glað- lyndi og trúarstyrk. Jafnvel þegar hún sjálf glímdi við miklar líkam- legar þrautir braust brosið í gegn eins og sólargeisli gegnum ský, og svo fullkomlega hvíldi hún í viss- unni um Guðs góðu hönd sem hlíf- ir og verndar, líknar og leiðir að hún gat sópað öllu áhyggjuryki upp í vindinn, svo það hvarf. Í djúpri þökk og virðingu kveðj- um við Sólveigu Ásgeirsdóttur og lofum Guð fyrir að hafa verið okk- ur svo góður að gefa okkur hana og svona langa samleið með henni. Margrét og Kristján Valur, Skálholti. Sólveig Ásgeirsdóttir ✝ Sigrún BryndísÓlafsdóttir fæddist á Búlandi 5. október 1941. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Hjallatúni, 21. desember 2013. Sigrún var dóttir hjónanna Þórunnar Björnsdóttur, f. 1911, d. 2010 og Ólafs Á. J. Péturs- sonar, f. 1909, d. 2012 á Giljum í Mýrdal. Maki Sigrúnar var Gunnar Þorsteinsson, f. 17. mars 1923, d. 13. janúar 2006. Foreldrar Gunnars voru Mar- grét Grímsdóttir, f. 1895, d. 1971 og Þorsteinn Gunnarsson, Ásta, f. 1992, Jóhann Valgeir, f. 1995 og Oddur Heiðar, f. 2003. 4. Sólrún Erla, f. 1972, maki Gylfi Viðar Guðmundsson, f. 1964, börn þeirra eru Sigrún Bryndís, f. 1992, Sóldís Eva, f. 1999 og Ingi Gunnar, f. 2008. Sigrún ólst upp hjá for- eldrum sínum, fyrst á Búlandi í Skaftártungu en frá 1943 á Gilj- um í Mýrdal þar sem hún bjó til ársins 2002 að hún fluttist ásamt Gunnari að Hjallatúni í Vík. Sigrún gekk í Deild- arárskóla og síðan í húsmæðra- skóla á Löngumýri í Skagafirði 1964-1965. Hún var alla sína tíð bóndi að Giljum ásamt maka sínum og foreldrum. Hún vann á haustin í sláturtíðinni í Slát- urfélaginu í Vík. Hún var með- limur í kvenfélagi Hvamms- hrepps. Útför Sigrúnar fer fram frá Víkurkirkju í dag, 4. janúar 2014, og hefst athöfnin klukkan 14. f. 1893, d. 1934 á Ketilsstöðum í Mýr- dal. Börn Sigrúnar og Gunnars eru 1. Ólafur Þorsteinn, f. 1965, maki Birna Kristín Péturs- dóttir, f. 1962, börn þeirra eru María, f. 1988, Gunnar, f. 1993 og Kristín, f. 2002. 2. Þórir Auð- unn, f. 1967, maki Auðbjörg Helgadóttir, f. 1964, börn hans eru Silja Embla, f. 1994, Margrét Klara, f. 2003 og Hrafnhildur Margrét, f. 2003. 3. Sigríður Margrét, f. 1969, maki Helgi Júníus Jóhannsson, f. 1968. Börn þeirra eru Þórunn Sterkur persónuleiki er fallinn frá. Kona sem í blóma lífsins var hertekin af ógnvaldi sem gerði henni lífið leitt næstu áratugi. Ógnvaldurinn hafði áhrif á allt daglegt líf, líkamlega reisn, and- legan kraft og samskipti við ann- að fólk. Ógnvaldurinn var sjúk- dómur sem tróð sér óboðinn í heimsókn á miðri lífsleiðinni og yfirgaf ekki heimilið fyrr en við lífslok. Það voru þó ákveðnir þættir í persónuleikanum sem ógnvald- urinn náði ekki tökum á, það var hinn mikli lífsvilji, baráttuandinn, þrautseigjan og lífskrafturinn .Viljinn til að halda áfram og láta ekki bugast. Hugurinn var mátt- ugur og fór jafnan hærra og lengra en líkaminn leyfði. Þetta voru örlög sem enginn á skilið og alltaf fannst mér ein- staklega ósanngjarnt að þetta skyldi lagt á móður mína sem var með góð gildi í lífinu í fyrirrúmi. Dugnaður einkenndi hana alla tíð, hún unni náttúrunni og dýr- unum, blótaði aldrei, stundaði heilbrigt líferni og var nægjusöm á allt. Hún fylgdist vel með börn- um sínum og barnabörnum og var ávallt stolt af þeim. Hún undi sínum hag best heima í sveitinni og bjó þar eins lengi og jafnvel lengur en heilsan leyfði. Árið 2002 fluttu hún og faðir minn á Hjallatún í Vík í Mýrdal þar sem hún fékk afar hlýlega og góða umönnun það sem eftir var lífs- leiðarinnar. Sólrún Erla. Ástkær amma okkar, Sigrún, hefur nú fallið frá. Amma var sterk kona og hafði mikinn lífs- vilja þrátt fyrir erfið veikindi. Hún lét sér annt um velferð okk- ar og fylgdist vel með því sem við tókum okkur fyrir hendur. Tóma- rúm skapast nú í hjörtum okkar en minning hennar mun ávallt lifa með okkur. Brostinn er strengur og harpan þín hljóð svo hljómarnir vaka ei lengur, en minningin geymist og safnast í sjóð, er syrgjendum dýrmætur fengur. (Trausti Reykdal) Þórunn Ásta, Jóhann Valgeir og Oddur Heiðar. Í dag kveðjum við elsku ömmu okkar. Við vitum að hún vildi svo margt gott fyrir okkur gera en hafði ekki alltaf heilsu í að fram- kvæma það allt. En hún vildi okk- ur alltaf vel og hafði mikinn áhuga á því sem við tókum okkur fyrir hendur. Við vonum að núna sé hún laus úr þessum líkama sem fjötraði hana og að henni líði núna orðið vel og sé búin að finna Gunnar afa og foreldra sína á ný. Við þökkum henni samfylgdina og allt það sem hún okkur gaf. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni (Bubbi Morthens) Ingi Gunnar, Sóldís Eva og Sigrún Bryndís. Sigrún Bryndís Ólafsdóttir ✝ Ástkær eiginkona og besti vinur minn, móðir, dóttir, amma, systir og tengdadóttir, GUÐFINNA ELÍN EINARSDÓTTIR, Spóarima 17, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 29. desember. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.30. Einar Jónsson, Elías Örn Einarsson, Þórunn Einarsdóttir, Christopher Wood, Bertha Ágústa Einarsdóttir, Jósep Helgason, Jón Þorkell Einarsson, Álfhildur Þórðardóttir, Sigríður Bergsteinsdóttir, Steinar Guðmundsson, Einar Pálmar Elíasson, barnabörn, systkini og tengdaforeldrar. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, VILBORG INGA GUÐJÓNSDÓTTIR, Sunnubraut 6, Akranesi, lést sunnudaginn 29. desember á gjörgæslu- deild Landspítalans við Hringbraut. Jarðsungið verður frá Akraneskirkju fimmtu- daginn 9. janúar kl. 14.00. Finnbogi Þórarinsson, Guðjón Sæberg Finnbogason, Oddný Garðarsdóttir, Þórarinn Kristján Finnbogason, Lára Bogey Finnbogadóttir, ömmu- og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.