Morgunblaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
og stýrði þá m.a. rannsóknum á eig-
inleikum íslensks jarðvegs og tók
þátt í ýmsum alþjóðlegum verk-
efnum á sviði jarðvegsverndar.
Verkefnið „jarðvegsvernd“ sem
Ólafur stýrði fékk Umhverfis-
verðlaun Norðurlandaráðs 1998.
Hann stýrði verkefninu Nytjalandi,
gagnagrunni um gróður í landinu,
jafnframt því sem rannsóknir á
sandfoki, landgræðslu og ástandi
lands voru á verkefnalista hans.
Þegar Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins var sameinuð Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri undir
heitinu Landbúnaðarháskóli Ís-
lands, 2005, varð Ólafur prófessor
við skólann og hefur verið það síð-
an. Hann var auk þess deild-
arforseti umhverfisdeildar skólans
til 2012.
Ólafur hefur starfað í faghópum
Rammaáætlunar I og II, sat í stjórn
Rannsóknarsjóðs í þrjú ár og hefur
sinnt náttúruverndarmálum. Hann
var einn af aðalhvatamönnum að
stofnun Landgræðsluskóla Samein-
uðu þjóðanna.
Þegar Ólafur er inntur eftir
áhugamálum segist hann vera fag-
idjót: „En þegar fjölskyldan hefur
átt frí, hefur hún gjarnan horfið á
vit óbyggðanna og íslenskrar nátt-
úru. Tónlistariðkun er einnig of-
arlega á blaði þegar færi gefst.“
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Ása Lovísa
Aradóttir, f. 30.1. 1959, prófessor
við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hún er dóttir Ara Guðmundssonar
sem er látinn, bókara á Blönduósi
og í Hafnarfirði, og Guðmundu Guð-
mundsdóttur sem var lengi bókari
hjá stofnunum Hafnarfjarðarbæjar.
Börn Ólafs og Ásu Lovísu eru
Arndís Ósk Arnalds, f. 2.3. 1979,
verkfræðingur hjá Orkuveitu
Reykjavíkur, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Gísli Rúnar
Pálmason lögfræðingur og eiga þau
tvö börn, og Guðmundur Ari Arn-
alds, f. 15.7. 1994, menntaskólanemi.
Albræður Ólafs: Sigurður Stein-
grímur Arnalds, f. 9.3. 1947, verk-
fræðingur í Reykjavík; Andrés Arn-
alds, f. 4.12. 1948, dr. í gróðurfræði
og fagmálastjóri Landgræðslu rík-
isins; Einar Arnalds, f. 6.2. 1950, d.
18.4. 2004, rithöfundur og ritstjóri.
Hálfbræður Ólafs, samfeðra: Jón
Laxdal Arnalds, f. 28.1. 1935, d. 2.1.
2011, fyrrv. borgardómari og ráðu-
neytisstjóri, og Ragnar Arnalds, f.
8.7. 1938, rithöfundur og fyrrv.
alþm. og ráðherra og fyrrv. formað-
ur Heimssýnar – hreyfingar sjálf-
stæðissinna í Evrópumálum.
Foreldrar Ólafs voru Sigurður
Arnalds, f. 15.3. 1909, d. 10.7. 1998,
útgefandi og stórkaupmaður í
Reykjavík, og s.k.h., Ásdís Andr-
ésdóttir Arnalds, f. 14.12. 1922, d.
25.4. 2010, útgefandi.
Úr frændgarði Ólafs G. Arnalds
Ólafur G.
Arnalds
Gestur Jónsson
b. á Eyrar-Útkoti
Ólöf Gestsdóttir
húsfr. á Neðra-Hálsi
Andrés Ólafsson
b. á Neðra-Hálsi í Kjós
Ásdís Andrésdóttir
Arnalds húsfr. í Rvík
Guðrún Halldórsdóttir
húsfr. á Bæ
Ólafur Jónsson
hreppstj. á Bæ
Gíslína Gísladóttir
húsfr. í Rvík
Einar H. Kvaran
rithöfundur og forseti Sálar-
rannsóknarfélags Íslands
Matthildur Einarsdóttir Kvaran
húsfr. á Seyðisfirði
Ari Arnalds
alþm. og sýslum. á Seyðisfirði
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Hjöllum
Jón Finnsson
b. á Hjöllum, bróðursonur Jóns Ara-
sonar, afa Björns Jónssonar ráðherra,
föður Sveins Björnssonar forseta
Guðrún Gísladóttir
húsfr. á Eyrar-Útkoti
Kristín Gísladóttir
húsfr. á Kiðafelli
í Kjós
Sigurbjörn
Þorkelsson
kaupm. í Vísi
í Rvík
Áslaug
Sigurbjörnsdóttir
organisti og
hjúkrunarfræðingur
Sigurbjörn
Magnússon
lögm. og stjórnar-
form. Árvakurs
Friðrik
Sigurbjörnsson
skrifstofustj. HÍ
Þorvaldur
Friðriksson
fornleifafræðingur
og fréttam. á RÚV
Þorkell
Sigurbjörnsson
framkvæmdastj.
Gídeonfélagsins á
Íslandi
Sigurbjörn
Þorkelsson
framkvæmdastj.
Gídeonfélagsins á
Íslandi
Andrés Arnalds
fagmálastj. Land-
græðslu ríkisins
Sigurður
Arnalds
ritstj. og
útgefandi í
Rvík
Jón Laxdal
Arnalds
borgardómari
og ráðu-
neytisstj.
Ragnar Arnalds rithöfundur
og fyrrv. alþm. og ráðherra
Eyþór
Arnalds
form.
bæjarráðs
Árborgar
Einar Arnalds
yfirborgar-
dómari og
hæstaréttar-
dómari
Kristín Arnalds
cand.mag og
fyrrv. skóla-
meistari FB
Ragnar H. Kvaran
landkynnir
Ævar R. Kvaran
leikari
Gunnar Kvaran
sellóleikari
Einar E. Kvaran
aðalbókari
Útvegsbankans
Böðvar E. Kvaran
framkvæmdastj.
í Rvík
Dr. Guðrún Kvaran
ritstj. Orðabókar
Háskólans
Hjörleifur Kvaran
fyrrv. borgarlögmaður
Pétur Þorsteinsson, sýslumað-ur í Dalasýslu, fæddist á Ós-eyri í Stöðvarfirði 4.1. 1921.
Hann var sonur Þorsteins Þor-
steinssonar Mýrmanns, útvegs-
bónda og kaupmanns á Óseyri, og
Guðríðar Guttormsdóttur hús-
freyju.
Þorsteinn var sonur Þorsteins
Þorsteinssonar, bónda á Viðborði í
Mýrarhreppi í Austur-Skaftafells-
sýslu, og Valgerðar Sigurðardóttur
húsfreyju. Guðríður var dóttir Gutt-
orms Vigfússonar, prófasts á Stöð í
Stöðvarfirði, og Þórhildar Sigurð-
ardóttur húsfreyju.
Fyrri kona Péturs var Margrét
Steinunn Jónsdóttir sem lést 1947
og eignuðust þau eina dóttur.
Síðari kona Péturs var Björg Sól-
ey Ríkarðsdóttir og eignuðust þau
þrjú börn.
Pétur lauk stúdentsprófi frá MA
1943 og embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1950. Hann öðlaðist hdl-
réttindi 1951 og hrl-réttindi 1991.
Pétur stundaði þingritarastörf í
Reykjavík samhliða háskólanámi
1943-50, var málafærslumaður í
Reykjavík 1950-63, kennari í Kópa-
vogi og Mosfellshreppi 1963-67 og
var lögreglufulltrúi hjá bæj-
arfulltrúanum á Seyðisfirði og
sýslumanninum í Norður-Múlasýslu
sumrin 1965 og 1966. Hann var
fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Hafn-
arfirði og sýslumanninum í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu frá 1967 og
var sýslumaður Dalasýslu frá 1974
og til 1991 er hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir.
Pétur sinnti ýmsum félagsstörf-
um, var m.a. formaður Austfirð-
ingafélagsins í Reykjavík og ann-
aðist útvarpskvöldvökur þess og
bókaútgáfu um árabil, sat í Stúd-
entaráði og átti m.a. frumkvæði að
stofnun Lánasjóðs stúdenta og fé-
lagsheimilis fyrir stúdenta. Þá var
hann mikill náttúruverndarsinni og
var formaður náttúruvernd-
arnefndar Dalasýslu um árabil.
Pétur flutti í Mosfellsbæinn er
hann lét af sýslumannsembættinu
og var búsettur þar síðustu æviárin.
Pétur lést 23.10. 1993.
Merkir Íslendingar
Pétur Þorsteinsson
Laugardagur
90 ára
Guðlaug Hinriksdóttir
85 ára
Bjarni S. Jónasson
Jóhann Guðmundsson
Lea Rakel Möller
80 ára
Ástvaldur Jónsson
Karen Vilhjálmsdóttir
Margrét Andersdóttir
Svanhildur Eyjólfsdóttir
75 ára
Alda Sigurrós Joensen
Elís Rósant Helgason
Erla Helgadóttir
Sverrir Björnsson
70 ára
Agnar Már Ólafsson
Fanney Helgadóttir
Óskar Valgeirsson
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
Þórhildur Vigfúsdóttir
60 ára
Auður Sólborg
Sigurðardóttir
Erla Ingibjörg
Sigvaldadóttir
Hans Bot Vu
Helgi Kristjánsson
Jón Albert Óskarsson
Kristín E. Sigurðardóttir
Marteinn Sigurbjörn
Björnsson
Ólafur Ó. Stephensen
Sigríður J Sigurðardóttir
Soffía Steinunn
Garðarsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
Steinunn Svansdóttir
50 ára
Aðalheiður D.
Sigurðardóttir
Aðalheiður Ósk
Guðbjörnsdóttir
Arnfríður Jóhannsdóttir
Auður Pálmadóttir
Berglind Jónsdóttir
Björgvin Filippusson
Egill Herbertsson
Fjóla Sigurðardóttir
Hörður Andrésson
Ingibjörg Einarsdóttir
Jóhanna Birna Gísladóttir
Jón Borgfjörð Harðarson
Krystyna Balcer
Maria Cecilie Wang
Ragnhildur Thorlacius
Sigríður K. Rögnvaldsdóttir
Sigurður Sigurðsson
Stefán Þór Kristjánsson
Þórhallur Guðmundsson
40 ára
Aðalheiður Ólafsdóttir
Brynja Vigdís
Þorsteinsdóttir
Darri Johansen
Einar Mar Þórðarson
Eiríkur H. Kjerúlf
Guðný Jóhannesdóttir
Hlynur Geir Ásgeirsson
Ingþór Karl Eiríksson
Jeffrey Benjamin Sussman
Jón Einar Reynisson
Kristín Þórhalla Þórisdóttir
Lúðvík Ásgeirsson
Malgorzata Maria
Radkowska
Orri Freyr Indriðason
Sigríður Hrönn
Gunnarsdóttir
Þórður Emil Ólafsson
30 ára
Agnieszka Maria Kedziora
Atli Freyr Steinþórsson
Ásgerður Fanney
Bjarnadóttir
Dagný Rut Gísladóttir
Hrannar Markússon
Kristrún Steinarsdóttir
Magnús Andri Pálsson
Ólafur Páll Árnason
Silja Rós Hauksdóttir
Steinunn Jóna Pétursdóttir
Tinna Ósk Óskarsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Helgi Sigurður Haraldsson
80 ára
Einar Ásgeirsson
75 ára
Guðbjörg R. Þorgilsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Jónas B. Erlendsson
Júlíus Oddsson
Sigurður Grétar Jónsson
Sigurrós Sigurðardóttir
Skjöldur Sigurðsson
70 ára
Gísli Eysteinn
Aðalsteinsson
Gyða Ólafsdóttir
Ragnar V. Þorvaldsson
Sigurlaug Alda
Þorvaldsdóttir
Þórunn Stella
Markúsdóttir
60 ára
Guðrún Anna
Jóhannsdóttir
Gunnar Gunnlaugsson
Helga Bragadóttir
Kristinn Friðrik Árnason
Kristjana Erna Einarsdóttir
Lilja Jónína Karlsdóttir
Málfríður Hrönn
Ríkharðsdóttir
Ólafur Jón Guðjónsson
Salóme Kristín
Jakobsdóttir
Sigríður Einarsdóttir
Steinunn Árnadóttir
Sævar Guðbrandsson
50 ára
Ármann Helgason
Elísabet Herbertsdóttir
Guðmundur Karlsson
Guðrún Ólafsdóttir
Kristján Viðar Bárðarson
Kristján Viktor Auðunsson
Þórhallur I. Sigurjónsson
40 ára
Arnar Freyr Símonarson
Árni Jökull Gunnarsson
Ásgeir Lárus Ágústsson
Elinóra Kristinsdóttir
Guðni Már Egilsson
Guðrún Guðmundsdóttir
Hildur Loftsdóttir
Hlini Baldursson
Lísa Lotta Björnsdóttir
30 ára
Andrea Lísa
Kjartansdóttir
Anna Kristín Arnardóttir
Aurora Mazzone
Árni Traustason
Ásdís Ósk Jónsdóttir
Benoit Thomas Branger
Elsa Ruth Gylfadóttir
Fjóla Dögg Halldórsdóttir
Friðjón Guðmundur
Snorrason
Gísli Sveinn Aðalsteinsson
Guðný Gunnlaugsdóttir
Gyða Borg Barðadóttir
Ingólfur Steinar Ingólfsson
Íris Dögg Einarsdóttir
Jón Gunnarsson
Kjartan Orri Ragnarsson
Lour Jelly Ann Caamic
Patryk Kosiak
Vytautas Jaudegis
Örvar Andrésson
Til hamingju með daginn
Glerárgata 7, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Viðhöfumgræjurnar fyrir þig
FenderCD60
þjóðlagagítarm. stillitæki
DVDo.fl. frá 26.990
Klassískir gítarar
frá 18.990 Landsinsmesta úrval
af trommusettum