Morgunblaðið - 04.01.2014, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2014
Gleðilegt ár
Við þökkum viðskiptin á liðnum
árum og hlökkum til að hitta
ykkur á nýju ári.
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
p.s. útsalan er byjuð
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú finnur til andagiftar eða lætur
freistast af ósvífinni manneskju sem verður
á vegi þínum. Aukinn skilningur á því hvað
snertir þig veitir þér aukna ánægju.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er óvenjumargt á borðinu hjá þér
svo þú þarft að skipuleggja daginn mjög
vel. Farðu þér hægt því tækifærin fara ekk-
ert.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert afslappaðri en vanalega í
vinnunni í dag, og því er hætta á að þú
eyðir tíma til einskis.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur nægan sjálfsaga til þess
að fara í gegnum daginn án þess að jánka
öllu. Kannski langar þig til þess að eyða
fjármunum til þess að hjálpa öðrum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Kennari, foreldri eða gáfaður vinur
benti þér eitt sinn á sérstakan hæfileika
sem þú býrð yfir. Láttu athugasemdir sem
vind um eyru þjóta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft á öllum þínum sálarstyrk að
halda til að fást við viðkvæmt persónulegt
mál. Samræður fjölskyldumeðlima eru
hressilegar og jákvæðar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst engu líkara en allir hafi
myndað einhvers konar samsæri gegn þér.
Notfærðu þér stórt tengslanet þitt er kemur
að atvinnuleit.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert eðlilegra en að
skipta um skoðun þegar sannindi úreldast
og önnur koma í staðinn. Aðrir sjá ekki öll
mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin
sem gildir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Enginn veit jafn vel og þú hvers
þú þarfnast. Flestum líður svona einhvern
tíma eins og þér líður núna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Athyglin sem þú veitir öðrum er
gjöf. Minntu þig á að það þarft tvo til að
deila og að friður og jafnvægi í nánasta um-
hverfi þínu skipta þig mestu máli þegar til
lengri tíma er litið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Íhygli og heilagar stundir eru for-
senda andlegs þroska. Gefðu þér líka tíma
til að eiga samverustundir með fjölskyld-
unni. Haltu þig við raunveruleikann og þá
fer allt vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til þess að
reiðast, þótt aðrir leiti ekki svara hjá þér.
Orð þín kæta ástvin á þann máta sem þú
gætir aldrei gert þér í hugarlund.
Sigrún Haraldsdóttir er svo lán-söm að hafa lítið spilltan móa
fyrir utan gluggann hjá mér. Þar
getur að jafnaði margt að líta.
Í móanum hér mögnuð er
mikil augnaveisla,
sólin er að senda mér
sína nýársgeisla.
Og ekki nóg með það
Lánsöm er ég, ögn að eiga
í ævintýrum heimsins,
gaman er að fóðra fleyga
fugla himingeimsins.
Kerlingin á Skólavörðuholtinu
rakst á frétt um það í DV að ljós-
mæður hefðu tekið eftir að þrýst
væri á konur að þrengja leggöng til
þess að standast kröfur karlmanna
um kynlíf. Þrengri leggöng skiluðu
körlum meiri örvun. Hún orti að
bragði:
Kröfugerð karla er ströng,
konum helst eftir er sóst
með stöguð og stillanleg göng
og stíftroðin silikonbrjóst.
Eitt vil ég nefna á nafn,
nær getur kröfurnar skýrt;
er þeirra útlima safn
ef til vill hlálega rýrt?
Kristbjörg F. Steingrímsdóttir
kastar fram á nýju ári:
Stundum þennan vel ég veg
að vera öðrum byrði,
ármótum eyddi ég
austur á Vopnafirði.
Er nú mætt í mína sveit
í mildu veðri og hlýju,
ofdekruð og innanfeit
ári fagna nýju.
Sigmundur Benediktsson hitti
Jón bónda í Gröf á Hvalfjarð-
arströnd og fyrrverandi vinnu-
félaga sem kvartaði um hvassviðri
hjá sér. Svo voru víst bílar að fjúka
útaf veginum í Langadal og víða
rokhvasst. Þess vegna fæddist þessi
vindgála hjá Sigmundi:
Reytir vindur rofabörð,
rýkur lind um stalla.
Útsýn blindar hryðja hörð,
hrikta tindar fjalla.
Hallmundur Kristinsson sendi
kveðju á Leirinn, póstlista hagyrð-
inga:
Þetta árið þess ég bið,
og það með ljúfu geði:
Gæfan ykkur leggi lið
í lífsins rósabeði.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af nýársgeislum, leggöng-
um og útlimum
Í klípu
BINNI PRÓFAR NÝJU AUMINGJASÍUNA
Í TÖLVUPÓSTINUM SÍNUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ELDVARNAEFTIRLITIÐ VAR AÐ SENDA
BRÉF ÚT AF KERTANOTKUN Í AFMÆLINU
ÞÍNU Í NÆSTU VIKU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... leikur að tölum.
AÐ SLÍTA SAMBANDI MEÐ TÖLVU-
PÓSTI ER LÁGKÚRULEGT, MEIRA
AÐ SEGJA FYRIR ÞIG. ERTU VISS?
HÆTTA VIÐ SENDA
1+1 = Hamingja
AF HVERJU
ÁTTI ÉG AÐ
MERKJA „X“ Á
VEGGINN?
SVO VIÐ PÖSSUM
OKKUR Á AÐ RÆNA
KASTALANN EKKI AFTUR
FYRR EN EFTIR ÁR.
ÞAÐ TEKUR VENJULEGA
ÞANN TÍMA AÐ KAUPA NÝTT
Í INNBÚIÐ.
ÞETTA VAR
SKRÝTIÐ.
ÓKUNNUGUR MAÐUR
FAÐMAÐI MIG.
ÞAÐ HLÝTUR
AÐ VERA FAÐM-
LAGSDAGUR.
ÆTLI ÞAÐ SÉ
EKKI FREKAR
DAGUR TIL AÐ GÁ
AÐ VESKINU ÞÍNU.
Oft er talað um að sömu fréttirnarberist alltaf á sama tíma á
hverju ári. Skal engan undra því lífið
fer í hring. Eftir veturinn vaknar
gróðurinn. Fréttir berast af gras-
sprettunni, ungarnir klekjast út og
lömbin koma í heiminn og þar fram
eftir götunum. Ekki svo að skilja á
þessum skrifum að Víkverji þrái vor-
ið á einhvern hátt …
x x x
Síðustu ár hafa fréttir af stór-stjörnum sem verja áramót-
unum hér á landi komist í þann flokk
frétta að vera ársvissar fréttir. Vík-
verji heyrði á tal tveggja blaða-
manna rétt fyrir áramót að kvartað
var undan því að ekki nógu góðar
fréttir væru í burðarliðnum. Þá
bráðvantaði gott efni örlítið fram í
tímann. Þá kom þetta snilldartilsvar:
„Það verður eflaust einhver frægur
sem á eftir að verja áramótunum hér
á landi. Við hljótum að geta fyllt
plássið með fréttum af því.“
x x x
Það var og. Stórsöngvarinn Bonokom til landsins og naut sín víst
alveg þrælvel. Segja fjölmiðlar að
minnsta kosti. Það sem er samt frek-
ar skemmtilegt við alla þessa um-
ræðu um fræga fólkið er að eftir
nokkurn tíma þegar fréttir hafa
birst af því að stórstjarna hefur látið
sjá sig á klakanum þá hætta að ber-
ast fregnir af þeim, þ.e.a.s. hvar þær
hafi verið eða hvað þær hafi gert.
x x x
Það er nokkuð gott. Víkverji telurþetta ekki bera vott um athygl-
isbrest. Heldur eru Íslendingar
fljótir að átta sig á mikilvægi þess að
leyfa þessum stórstjörnum að dvelja
hér í friði. Fréttin er brakandi fersk
ef nýjar stjörnur stíga fæti hingað.
Eftir eins og tvö skipti til landsins þá
hættir koma þeirra að vera frétt-
næm.
x x x
Víkverja þykir nefnilega varlafréttnæmt hvort Ben Stiller er á
landinu eða hvað hann hefur verið að
gera. Honum þótti það reyndar fyrst
vera fréttnæmt þegar hann kom til
landsins í fyrra en ekki núna.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)