Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Page 28
Bergrún Íris segir stílinn á heimilinu persónulegan og heimilislegan. Heillumst af ólíkum stefnum Vinnustofan þar sem Bergrún getur lokað að sér og unnið að verkefnum. B ergrún Íris, blaðamaður og teiknari, hefur mikinn áhuga á hönnun og heimilum og stýrði hún sjónvarpsþættinum Innlit/ útlit fyrir nokkrum árum. „Stíllinn á heimilinu er mjög per- sónulegur og heimilislegur. Við hjónin heillumst í grunninn af mjög ólíkum stefnum, eiginmaðurinn er mínimalískur og ég gamaldags en hálfstefnulaus. Ég held okkur hafi tekist ágætlega að finna smekk- legan milliveg. Allavega líður okkur báðum ofsalega vel hérna,“ segir Bergrún og bætir við að ómeðvitað sé ákveðin litapalletta í gangi. „Ég hef næstum blæti fyrir ákveðnum litum og áferðum á efnum. Mér finnst heimilið mitt nakið án mynda á veggjunum og bóka í hill- um.“ Hjónin eiga fjögurra ára son og segir Bergrún fjölskylduna elska að fylgjast með skipum koma og fara enda er heimilið við hafið. Bergrún eignaðist langþráða vinnustofu þegar fjölskyldan flutti í íbúðina fyrir jól og finnst gott að geta loksins lokað að sér þegar hún vinnur heima. „Fjögurra ára orkuboltinn minn er dásamlegur en stundum þarf mamma að vinna og þá er betra að geta lokað að sér á meðan þeir feðgarnir leika sér. Sonurinn fær þó stundum að sitja við hliðina á mér og mála og teikna, enda borðið nógu stórt fyrir okkur bæði tvö.“ Hvað er á óskalistanum inn á heimilið? „Ó svo margt. Fyrst og fremst langar okkur í fallegan stiga, helst með fljótandi tröppum. Fyrir ofan íbúðina er háaloft með góðri loft- hæð og það er á planinu að setja kvist og gera tvö falleg herbergi uppi. Ég get varla hugsað um annað en fallega stigann okkar,“ segir Bergrún að lokum. Ýmsir munir prýða vegginn á vinnustofunni. Pastellituðu Kitchen-aid hrærivélina fengu hjónin í brúðargjöf. BERGRÚN ÍRIS SÆVARSDÓTTIR BÝR ÁSAMT EIGINMANNI SÍNUM OG SYNI Í FALLEGU HÚSI NÁLÆGT HÖFNINNI Í HAFNARFIRÐI. FJÖLSKYLDAN EYÐIR MIKLUM TÍMA VIÐ STOFUGLUGGANN ENDA ÚTSÝNIÐ STÓRKOSTLEGT. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is ELSKA AÐ FYLGJAST MEÐ SKIPUM KOMA OG FARA Falleg klukka úr gleri og spegli. Bekkur og Íslandskort í forstofunni. Iittala-skálar með litríku sælgæti. 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2014 Heimili og hönnun

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.