Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Page 37
Seint á 17. öld kom fram hópur í
Bandaríkjunum sem trúði því að
konur gætu unnið til jafns við karla.
Kölluðu þau sig The shakers-
hópinn. Þar var kona ein, Tabitha
Babbitt, sem átti að saga tré með
karlmanni. Þá var sagað með risa-
stórri tveggja manna sög þar sem
sögin sagarði aðeins þegar togað
var í hana. Þegar sögin var dregin til
baka var sú hreyfing nánast til-
gangslaus. Babbitt fannst þetta
bjánaleg aðferð og bjó til sögunar-
blað, setti það á reiðhjólagjörð og
prófaði sig áfram. Hún sótti aldrei
um einkaleyfi vegna reglna hópsins
en hún er viðurkenndur upphafs-
maður sögunarblaðsins.
Sögunarblað
Josephine Cochrane fann upp
þessa yndislegu uppfinningu
vegna þess að þjónustufólkið
hennar braut iðulega fína mat-
arstellið hennar en Cochrane
fannst fátt skemmtilegra en að
halda matarboð. Hún var vell-
auðug en eftir lát eiginmanns
síns 1883 fór hún að velta fyr-
ir sér hvort ekki væri hægt að
búa til vél sem gæti þvegið
upp. Sem betur fer tókst
henni það og fékk hún einka-
leyfið 1886. Það gekk reyndar
illa að koma vélinni nýju á
markað en eftir að hótel og
aðrir stórir vinnustaðir sáu
snilldina fór almenningur að
njóta góðs af vél Cochrane.
Uppþvotta-
vélin
23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
OPIÐ: VIRKA DAGA 11-19 FIMMTUDAGA 11-21 LAUGARDAGA 11-18 SUNNUDAGA 13-18 WWW.SMARALIND.IS FINNDU OKKUR Á
Fatapressan (Ellen Elgin)
Forritun (Ada Lovelace)
Tippex (Bette Nesmith Graham)
Bleyjur (Marion Donovan)
Vatnshitarinn (Ida Forbes)
Straubretti (sarah Boone)
Sjónpípa í kafbáta (Sarah Mather)
Aðrar
góðar
Martha Coston missti manninn sinn ár-
ið 1847 þegar hún var aðeins 21 árs
gömul. Þau áttu fjögur börn. Hún hafði
enga hugmynd um hvernig ætti að fram-
fleyta fjölskyldunni og á einu andvöku-
kvöldi fór hún að skoða gömul blöð eig-
inmannsins. Sá hún þar hugmynd að
blysi til að sjómenn gætu átt samskipi
sín á milli að kvöldi til. Í 10 ár þróaði
hún hugmyndina og svo fór að banda-
ríski herinn keypti hugmyndina. Í ævi-
minningum sínum sagði Coston frá því
að herinn hefði aldrei greitt henni um-
samið verð vegna blysanna, ástæðuna
sagði hún vera þá að hún væri kona.
Neyðarblys