Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Side 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Side 47
takmörk sem blasa við. Stalín, alvaldur Sovétsins, var eitt sinn minntur á mikilvægi páfans í Róm og spurði þá hversu mörgum herfylkjum sá stýrði. Og það var rétt til getið að nokkur hundruð svissneskir varðliðar ná ekki máli á þá stikuna og eru þó fleiri en opinber- lega vopnfærir Íslendingar. En nú er alræðið, sem Stalín fór lengst allra fyrir, brennandi kirkjur til grunna, komið á öskuhauga sögunnar, en kirkjurnar blómstra á ný, fullar af söng og fólki sem trúir. Fullyrt er að þrír einstaklingar hafi haft meira að segja um að svo fór en aðrir, þótt fjarri sé að þeir eigi einir allan heiður. Það eru þau Ronald Reagan, Margrét Thatc- her og Jóhannes Páll páfi. Í tilfelli þess síðastnefnda voru það ekki svissnesku varðliðarnir sem gerðu út- slagið, heldur fordæmi hins pólska páfa sjálfs, persóna hans, hugrekki og óbifanleg sannfæring. Íslenskir ráðamenn hafa, oftast nær, gert sér fulla grein fyrir því, að þeir séu ekki umræðuefnið í helstu valdastofnunum veraldar. Þess vegna er ólíklegt að forsetinn í Washington eða þingið velti því mikið fyrir sér hver sé þangað sendur í þágu bandarískra hags- muna. Ekki síst nú, eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að hernaðarleg staðsetning landsins væri orðin auka- atriði. Hinir faglegu starfsmenn bandaríska utanrík- isráðuneytisins telja sendiherrastarf á Íslandi því ekki háan söðul að sitja í. Þungavigtarmenn í þeim hópi sækja því annað og hinir, sem hingað koma, hafa ekki mikil tengsl. Þau eru alls engin við Hvíta húsið og einatt einnig sáralítil innan ráðuneytisins sem sendir þá. Þeir góðu menn ná því ekki lengra, þótt nokkuð liggi við, en upp á næsta skrifborð í ráðuneyt- inu, og eru sem í órafjarlægð frá sjöttu hæð þess, ráð- herrahæðinni. Svo hversu vel sem sendimaðurinn kann að hafa undirbúið sína dvöl dregur framan- greind staðreynd úr möguleikum hans til að hafa áhrif. Áhrifavaldar fyrir Ísland En svo höfum við hin dæmin. Þar má nefna sendi- herrana Nick Ruwe og konu hans Nancy og síðar Chuck Cobb og konu hans Sue, en hún varð sjálf síðar sendiherrra Bandaríkjanna. Þessir sendiherrar voru báðir öflugir og Cobb er einhver athafnasamasti sendiherra sem hér hefur verið. Þótt liðnir séu rúmir tveir áratugir frá því að hann lauk starfi sínu hér kemur hann enn hingað á hverju ári. Veitir sjóður hans ungu fólki í báðum löndum styrk til að efla sam- skiptin og hefur Cobb greitt götu fjölmargra Íslend- inga vestan hafs. En mikilvægastir voru þessir tveir sendiherrar vegna hinna nánu tengsla sem þeir höfðu við forseta Bandaríkjanna í sinni tíð. Nick Ruwe var skrifsofustjóri Nixons eftir að hann lét af embætti og persónulegur vinur Reagans. Nancy kona hans starf- aði í Hvíta húsinu, sem starfsmannastjóri Betty Ford forsetafrúar, og var síðar formaður nefndar sem sá um að útvega listaverk til að skreyta forsetabústað- inn. Löngu eftir að maður hennar féll frá gátu ís- lenskir ráðamenn og vinir beðið Nancy að útvega sér með litlum fyrirvara samtöl við áhrifamenn vestra, hvort sem var í stjórnmála- eða viðskiptalífi. Hún sagði aldrei nei og tengsl hennar voru ótrúleg. Þegar minnst er á ummæli McCains um að sendiherrarnir hefðu ekki einu sinni komið til „fyrirheitna“ landsins þá átti það ekki við um Nick. Hann hafði komið til Ís- lands 25 sinnum þegar hann var skipaður sendiherra. Hann sagði bréfritara þá sögu að þegar Reagan hefði rætt við sig um sendiherratign hefði hann spurt hvert hugur Ruwes stefndi. „Iceland,“ svaraði Nick Ruwe. Reagan misheyrði svarið og hugsaði upphátt: Ire- land. Nei, sagði Ruwe: Iceland. „Nick,“ sagði forset- inn þá og brosti út að eyrum. „You come cheap.“ Þegar ákveðið var með örstuttum fyrirvara að halda toppfund Reagans og Gorbasjefs stakk sá síð- arnefndi upp á að mæst yrði á miðri leið, í London eða Reykjavík. Sagan segir að þá hafi Reagan valið Reykjavík með þessum orðum: „Ekki London, því þá mun mín elskulega góða vinkona þar anda alveg sam- fellt ofan í hálsinn á mér. Ég veit ekki mikið um Reykjavík en ég veit að þar er Nick og það dugir mér.“ Þegar þrír fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna, Nixon, Ford og Carter, voru sendir sem fulltrúar þeirra við útför Sadats forseta Egyptalands, fól Reagan Nick Ruwe að skipuleggja þá ferð. Óborganlegur sendiherra Þegar bréfritari fór til fundar við George Bush eldri var dvalið í fáeina daga áður á heimili Cobb-hjónanna í Florida. Hinn athafnasami sendiherra hafði skipu- lagt vinnukvöldverði með áhrifamönnum í fylkinu. Þegar lagt var á stað til fundarins með forsetanum var upplýst að hann myndi hitta samtals 14 þjóð- arleiðtoga þann sama dag. Bréfritara varð hugsað til þess að forsetinn myndi eiga fullt í fangi með að ná valdi á fjölbreyttum umræðuefnum við svo marga, og þá kannski ekki síst við fulltrúa lands sem ekki hefði stórbrotna þýðingu í alþjóðlegum stjórnmálum. Þessi hugsun ágerðist þegar í ljós kom að fulltrúi Sovét- ríkjanna (á útleið) var næstur á undan í röðinni. Þeg- ar sest var í stólinn við hlið forsetans og ákveðið að nefna strax þau 2-3 atriði sem gesturinn vildi helst ræða, greip forsetinn fljótlega fram í og sagði: „Ég veit allt um það sem þú vilt ræða. Jeb, sonur minn, hringdi til mín í gær og sagði að þið hefðuð borðað saman og fór yfir helstu áhersluatriði þín.“ Hugsað var hlýlega til fyrirhyggju Cobbs sendiherra og glaðst yfir því að enginn hinna 13 viðmælenda Banda- ríkjaforseta hefði fengið þann undirbúning, sem að- eins þeir sem greiðastan aðgang áttu, gátu veitt. Reagan bregst við íslenskum fjölmiðli Ronald Reagan var, ólíkt því sem óvinveittir spuna- meistarar héldu að fólki, bæði bókamaður og ötull við bréfaskriftir. Eina íslenska dagblaðið, sem vitað er til að forsetinn hafi fjallað um í persónulegum bréfum sínum, er hið gamla málgagn framsóknarmanna, Tíminn. Þar hafði verið sagt frá því að talið væri að forsetinn væri af íslenskum ættum. Reagan fær þýð- ingu á greininni og skrifar vini sínum í sendiráðinu í Reykjavík persónulegt bréf um málið: „Ég vil byrja á að taka fram að þessi frásögn á sér alls enga stoð. Langalangafi minn í föðurætt fæddist í Ballyporeen á Írlandi. Kráin á staðnum heitir í höfuðið á mér og ég hef séð hvað kirkjubækurnar segja og, nei, ég hef aldrei gefið fyrirmæli um að þeim upplýsingum skuli leynt. En til að vera nákvæmur, þá var ég fæddur í Tampico, Illinois. Fyrir utan skrár frá þeim stað á ég eldri bróður, sem man fæðingu mína. Hann varð ekki kátur, vildi systur. Það eru fáir enn til staðar sem muna fæðingu mína. Flestir eru gengnir, en ég man það fólk og tengsl þess við fjölskylduna. Nick, ég er undrandi á, hversu þessi saga fer ofan í smáatriði og er hugsandi yfir því. Ég veit að það eru til a.m.k. tveir aðrir sem bera þetta nafn, Ronald Reagan. Annar var lögreglumaður í Sacramento þegar ég var ríkisstjóri. Hinn var foringi í hernum í seinni heimsstyrjöldinni. Ég hitti hann aldrei sjálfur, en aðrir foringjar í hern- um, sem höfðu hitt hann, sögðu hann hafa kynnt sig sem Ronald Reagan, leikara. Hann neitaði þó að gefa mönnum eiginhandarráritun – sagði herinn hafa bannað sér það. Jæja, nóg um þetta. Þessi R.R. er írskur, enskur og skoskur og fór í sína fyrstu og fram til þessa einu heimsókn til Íslands í boði Gorbasjefs aðalritara. Eins og ég sagði þá var þetta mögnuð fjölskyldusaga sem Tíminn prentaði, hún er bara ekki mín. Elsulegar kveðjur til frúar- innar, með mikilli hlýju, Ron.“ Mikið hefði öll íslenska fjölmiðlaflóran öfundað Tímann af allri þessari umfjöllun valdamesta manns veraldar hefði hún vitað um hana. En nú hefur tíminn tekið þá báða, Ron og Tímann, blessuð sé minning þeirra. Morgunblaðið/Kristinn 23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.