Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Síða 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2014 BÓK VIKUNNAR Sem ég lá fyrir dauðanum eftir William Faulkner í þýðingu Rúnars Helga Vignissonar er bók sem unn- endur gæðaskáldskapar mega ekki láta framhjá sér fara. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Kunningi minn einn hafði orð á þvíum daginn að hann setti sigósjálfrátt í varnarstellingar fengi hann í hendur bók sem væri lengri en 500 síður. Honum finnst hann lesa alltof margar bækur þar sem höfundar eru að teygja lopann og dásamar hinn góða rithöfund Sjón fyrir að geta sagt miklar sögur í stuttum og knöppum eðaltexta. Það er vissulega lítil skemmtun í því að lesa mörg hundruð blaðsíðna bók sem manni leiðist og reyndar engin ástæða til að eyða tíma sínum í það. Það er í góðu lagi að gefast upp, nema vitanlega bókin sé lesin vegna náms- eða vinnuskyldu. Þá er lítið annað hægt að gera en að lesa og þjást. Ein af tísku- bókum ársins er The Goldfinch eftir bandarísku skáldkonuna Donnu Tart, al- þjóðleg met- sölubók upp á 770 síður. Tveir kunningjar mínir voru alsælir með hana svo ég byrjaði að lesa hana full bjartsýni. Ég gafst upp á blaðsíðu 257 því ekkert í bókinni hreif mig. Mér var ómögulegt að lifa mig inn í sögu- þráðinn og persónur bókarinnar fannst mér einkennilega líflausar. The Goldfinch hefur ekki verið þýdd á íslensku en önnur löng metsölubók er nýkomin út á ís- lensku og er að slá í gegn. Það er Sannleikurinn um mál Harrys Quebert eftir Svisslendinginn Joël Dicker, sem nú trónir á toppi metsölulista Ey- mundsson. Sú er tæpar 700 síður, full af óvæntum atvikum, áhugaverðum persónum og oft glittir í skemmti- legan húmor, sem er ansi beittur þeg- ar höfundur fjallar um markaðs- lögmálin í bókmenntaheiminum. Það felst mikil ánægja í því að lesa bók þar sem höfundur kemur manni með reglulegu millibili á óvart. Við lestur þessarar bókmenntalegu glæpsögu ályktar maður hvað eftir annað sem svo að nú sé ráðgátan til lykta leidd og botnar ekkert í því að nokkur hundruð blaðsíður séu eftir af bókinni. Ætlar höfundur að teygja lopann það sem eftir er bókar? hugsar maður með sjálfum sér – en er staddur á al- gjörum villigötum í þeim hugsunum. Það eru ekki allar 700 blaðsíðna skáldsögur sem virka, en þessi gerir það sannarlega. Skemmtileg og áhugaverð lesning. Orðanna hljóðan LÖNGU BÆK- URNAR Alþjóðleg metsölubók. Bókin á toppnum. S ögur úr Biblíunni handa börn- um á Norðurlöndum er ný bók sem Skálholtsútgáfan stendur að og er bókin sam- starfsverkefni fimm norrænna útgefenda. Bókin er rituð af fimmtán norrænum höfundum og myndskreytt af jafnmörgum norrænum listamönnum. Fulltrúar Íslands í bókinni eru Óskar Guðmundsson rithöfundur og Halla Sól- veig Þorgeirsdóttir myndlistarmaður, en þau túlka meðal annars Nóaflóðið og sög- una af Jesú í musterinu í máli og mynd- um. „Bókin er norrænt samstarfsverkefni en Skálholtsútgáfan hefur verið í samstarfi við norræna bókaútgefendur og gefið út eitt og annað og það nýjasta er þessi barnabiblía sem kemur út á öllum nor- rænu tungumálunum. Bókin er ætluð börnum sex ára og eldri,“ segir Edda Möller, starfsmaður Skálholtsútgáfunnar. „Tíu manna hópur frá norrænu útgáfufyr- irtækjunum valdi sögurnar. Við sem vor- um í þeim hópi erum af Biblíusögukyn- slóðinni og lærðum sögurnar í barnaskóla. Við valið höfðum við í huga þær sögur sem okkur þykir vænt um og höfum í hávegum. Sögur Gamla testamentisins eru sumar tyrfnar en aðrar eru ansi góðar eins og um Jónas og hvalinn, Daníel í ljónagryfjunni og Jósef og bræður hans. Við völdum sögur sem sýna persónur sem búa yfir hugrekki og dugnaði og for- vitni, gleði og sorg og vinátta er mjög sterkt afl í þessum sögum. Þetta eru sögur sem fjalla um það að vera mann- eskja og kenna börnum að standa fyrir sínu. Þegar við í útgáfunefndinni höfðum val- ið sögurnar fengu rithöfundarnir frjálsar hendur til að túlka þær og myndlist- armenn myndskreyttu síðan. Sögurnar voru ritaðar með heim barna og áhuga að viðmiði og höfundarnir og myndlist- armennirnir komu með tillögur um hvern- ig mætti túlka þær. Útkoman er mjög skemmtileg. Í fyrstu sögunni um það hvernig Guð skapaði heiminn kemur til dæmis fram hvað Guð er að hugsa. Um leið er sköpunarsagan orðin að ævintýri sem passar vel inn í hugarheim barna.“ Finnst þér mikilvægt að börn þekki sögur Biblíunnar? „Bæði menningarlega og trúarlega finnst mér mjög mikilvægt að börn þekki sögur Biblíunnar því þær segja svo margt um lífið. Sögur Gamla testament- isins eru margar mjög áhugaverðar og skemmtilegar en ég er miklu meiri Nýja testamentis kona. Sögur Nýja testament- isins og saga Jesú sérstaklega sýna svo vel fyrir hvað kristin trú stendur. Þetta eru sögur um gleði og samkennd.“ EDDA MÖLLER SEGIR MENNINGARLEGA OG TRÚARLEGA MIKILVÆGT AÐ BÖRN ÞEKKI BIBLÍUSÖGUR Sögur um gleði og samkennd „Þetta eru sögur sem fjalla um það að vera manneskja og kenna börnum að standa fyrir sínu, segir Edda Möller um bókina. Sögur úr Biblíunni handa börnum á Norðurlöndum. Morgunblaðið/Árni Sæberg FIMMTÁN NORRÆNIR HÖFUNDAR OG JAFNMARGIR NORRÆNIR MYNDLISTARMENN SAMEINA KRAFTA SÍNA Í NÝRRI BÓK MEÐ SÖGUM ÚR BIBLÍUNNI. Ég hef víst verið bókaormur alla ævi. Á barnsaldri kunni ég Tinna og Ástrík nánast utan að og man eftir að hafa lesið alls kyns léttmeti. Eitt sinn reyndi pabbi líka að lesa Njálu fyrir mig og Patrek, annan yngri bróður minn – Jói var ekki fæddur. En þetta varð endasleppt því fljótlega sagði Patti hneykslaður og sár: „Þú lofaðir brennu en það gerist bara ekki neitt.“ Hiklaust get ég svo sagt að á fullorðins- árum hef ég helst laðast að góðum sagn- fræðiritum, eins andlaust og það kann að hljóma þegar sagnfræðingur á í hlut. En svona er þetta, ég veit fátt betra en að sitja í sófa á kvöldin með hnausþykka ævisögu eða fræðibók. Yfirleitt heillar skáldskapurinn ekki eins mikið. Mér finnst sagnfræði vera hvort tveggja, listgrein og akademísk vísindi. Í góðu fræðiriti ætti því að renna saman ritsnilld og tök höfundar á að útskýra rás viðburða án þess að söguþráðurinn líði fyrir. Í hugann koma stríðsárabækur Þórs Whitehead hér heima og rit Peters Hennessy, eins lærimeistara míns úr sagnfræðináminu á Englandi. Loks verð ég að viðurkenna að síðustu misseri hef ég kolfallið fyrir verkum um söguna sem gæti hafa gerst. Síðast var ég að lesa aftur Föðurland Roberts Harris og hef það núna að gæluverkefni að skrifa um Íslandssöguna sem gæti hafa gerst. Hvað ef landnám í Vest- urheimi hefði lánast? Hvað ef Ísland hefði verið innlimað í Bretaveldi? Hvað ef þjóðin hefði verið flutt á Jótlandsheiðar eftir móðuharð- indin? Hvað ef Þjóðverjar hefðu hernumið landið í seinna stríði? Hvað ef, hvað ef … Í UPPÁHALDI GUÐNI TH. JÓHANNESSON SAGNFRÆÐINGUR Guðni Th. Jóhannesson var Tinnaaðdáandi þegar hann var barn en nú laðast hann að góðum sagnfræðiritum. Morgunblaðið/Ómar Tinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.