Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA SÓLPALLAR! info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Erum að fara af stað í nýsmíði og endurbætur. Komum á staðinn og gefum fast verðtilboð. 100% VINNUBRÖGÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þeir voru léttir á brún og brá, íbúar Hrafnistu sem fóru í vorferð í gær, enda fengu þeir ferða- veður eins og best verður á kosið. Ferðin var far- in í boði Kiwanisklúbbsins Heklu og var þetta 50. árið í röð sem Hekla hefur boðið íbúum Hrafn- istu í ferðalag. Kiwanisklúbburinn Hekla varð 50 ára í janúar, sá fyrsti sem var stofnaður hér á landi, og því vorferðirnar verið árlegar frá upp- hafi. Í dag var farið um Vesturbæ Reykjavíkur, ekið um Reykjavíkurhöfn, Örfirisey, Gróttu og Seltjarnarnes og endað í veislukaffi í Bústaða- kirkju. Kiwanisklúbburinn Hekla bauð íbúum Hrafnistu í fimmtugasta skipti í rútuferðalag Morgunblaðið/Þórður Viðraði vel til vorferðar eldri borgara Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Samninganefndir grunnskólakennara og sveitar- félaganna skrifuðu undir nýjan kjarasamning í húsnæði Ríkissáttasemjara kl. 21.45 í gærkvöldi. Með því náðist að afstýra vinnustöðvun tæplega 4.300 grunnskólakennara sem átti að standa yfir í dag. Skólahald er því með hefðbundnu sniði í dag. „Við teljum að við höfum náð ásættanlegri nið- urstöðu fyrir okkar fólk. Nú fer þetta í kynningu. Það kemur svo í ljós hvort félagsmenn okkar séu sammála okkar eða ekki. Það er næsta skref,“ sagði Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara, eftir að skrifað hafði verið undir samninginn í gærkvöldi. Samningurinn gildir út árið 2016 og er áþekkur þeim sem framhaldsskólakennarar gerðu við ríkið í síðasta mánuði, að sögn Ólafs. Í honum er meðal annars kveðið á um að vinnumat verði gert fyrir grunnskólakennara. Verkefnastjórn taki við því verkefni á næstunni að því gefnu að kjarasamn- ingurinn verði samþykktur í atkvæðagreiðslu fé- lagsmanna. Niðurstaðan verði svo lögð fyrir kenn- ara í atkvæðagreiðslu í febrúar á næsta ári. „Svo er í þessu almenn launahækkun eins og aðrir hafa fengið og fleiri leiðréttingar sem tengj- ast þessum breytingum. Það er það sem við erum að fara að kynna fyrir trúnaðarmönnum okkar [í dag],“ segir Ólafur, sem vildi ekki fara dýpra í efni samningsins fyrr en hann hefði verið kynntur trúnaðarmönnum. Inga Rún Ólafsdóttir, formaður launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að grund- vallarbreytingar á vinnutímaákvæði kjarasamn- ingsins sem samið hafi verið um skapi gríðarleg tækifæri til jákvæðrar þróunar á skólastarfi. Launahækkanir séu á svipuðum nótum og hjá framhaldsskólakennurum. „En við erum auðvitað að kaupa réttindi af kennurum þannig að þetta eru ekki allt saman beinar launahækkanir. Það eru hlutir sem fara út á móti,“ segir hún. Þar á meðal verður eldri kennurum boðið að selja kennsluafslátt sem þeir njóta fyrir hærri laun. Vinnustöðvun kennara afstýrt  Skrifað undir nýjan kjarasamning grunnskólakennara um kl. 22 í gærkvöldi  Samningurinn gildir út árið 2016  Fer líklega í atkvæðagreiðslu í næstu viku eftir að efni hans hefur verið kynnt kennurum Morgunblaðið/Eggert Gleði Vöfflukaffi eftir undirskrift í gærkvöldi. Öruggt þykir að ekki sé lengur hætta á síldardauða í Kolgrafafirði, líkt og veturinn 2012-2013. Um 80.000 tonn af síld höfðu þar vetursetu, en fram kemur á vef umhverfis- og auðlinda- ráðuneytisins að síldin haldi yfirleitt til hafs í maí. Hætta var talin mest yfir háveturinn. Súrefnisstaðan í firðinum er sögð „mjög góð“ og hafa súrefnismælar verið fjarlægðir. Um 50.000 tonn af síld drápust í firðinum í tveimur atburðum vetur- inn 2012-2013. Voru þá þar yfir 200.000 tonn þegar mest var. „Magnið sl. vetur var mun minna og bendir flest til þess að þar hafi elstu árgangar íslensku sumargots- síldarinnar verið á ferð. Yngri ár- gangar virðast hafa haft vetursetu nú að mestu úti fyrir Suðausturlandi og í Kolluál utan við Snæfellsnes, auk þess sem nokkurt magn smásíld- ar fannst í Hvammsfirði,“ segir á vef ráðuneytisins. Er svo tekið fram að óvissa sé um hversu mikið magn síld- ar mun leita í fjörðinn næsta vetur. Í nóvember var reynt að hrekja síldina út með hvellhettum. Ekki tókst að ljúka tilrauninni á fullnægj- andi hátt vegna erfiðra aðstæðna. Tvisvar í vetur féll súrefnismagn svo langt niður að sá möguleiki var skoð- aður að reyna að reka síldina úr firð- inum, í bæði skiptin batnaði súrefnis- staðan með auknum vindi. Hafrannsóknastofnun og Vega- gerðin hafa lagt mat á valkosti til að fyrirbyggja síldardauða í firðinum. Algjör lokun fjarðarins er sögð dýr og hafa veruleg umhverfisáhrif. Þá er frekari opnun þverunar með nýrri brúargerð ekki talin hafa afgerandi áhrif á súrefnisbúskap í firðinum, en verða mjög dýr. Óvíst þykir hvort slíkir kostir bera tilætlaðan árangur. Hætta á síldardauða er liðin hjá í Kolgrafafirði  Yngri árgangar fóru annað í vetur Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Síldardauði Í Kolgrafafirði. Vinnan við kjarasamning gunn- skólakennara hefur verið löng og ströng. Deilunni var vísað til Ríkissáttasemjara 18. mars og síðan hafa ríflega þrjátíu samn- ingafundir verið haldnir. Kennarar lögðu niður störf á fimmtudag í síðustu viku. Til stóð að þeir gerðu það aftur í dag og á þriðjudag í næstu viku hefði ekki samist áður. Yfir þrjátíu fundir haldnir LANGUR AÐDRAGANDI Í nægu var að snú- ast hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu í gær. Um hádegi var maður handtekinn í aust- urbænum vegna þjófnaðar í verslun en hann reyndi að komast undan afgreiðslumanni en lögreglumenn sáu þá hlaupa og gátu aðstoðað við að handsama geranda. Um kl. hálfþrjú var tilkynnt um tvo menn að slást á Laugavegi. Tveir voru handteknir á staðnum. Um svipað leyti var tilkynnt að maður væri að sparka í bifreiðar á Eið- istorgi, hann var mjög vímaður og var vistaður í fangaklefa. Þá var til- kynnt um þjófnað í verslun í Kópa- vogi stuttu síðar. Handsömuðu þjóf á harðahlaupum Fulltrúar Icelandair og Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna hittust hjá Ríkissáttasemjara upp úr há- degi í gær og stóð fundurinn til klukkan níu um kvöldið. Magnús Pétursson ríkis- sáttasemjari segir aftur verða fundað snemma í dag. „Það er verið að reyna að komast áfram með þetta en það er ekki viðeigandi að gefa viðræðunum einkunn,“ segir Magnús um árangur samninga- viðræðnanna í gær. Aftur fundað í deilu flugmanna í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.