Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 21

Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 víða notað gasviðskipti til að hafa áhrif á stjórnarstefnu annarra ríkja, einkum Úkraínu. Vinsamleg orð og heimsóknir „Það eru engar ýkjur ef sagt er að samstarfið milli ríkja okkar sé meira en nokkru sinni í sögunni,“ sagði Pútín í viðtali við kínverska fjölmiðla fyrir opinbera heimsókn sína í gær. Kínverjar eru einnig fullir áhuga, Rússland var fyrsta landið sem Xi heimsótti eftir að hann varð forseti og efnt var til sameiginlegra flotaæf- inga ríkjanna tveggja í gær nálægt Sjanghæ. Kínverjar og Rússar eiga það einnig sameiginlegt að grannríki þeirra eru mörg ósátt við yfirgang risanna og leita nú sum skjóls hjá Bandaríkjamönnum. Rússar ógna sínum grönnum með hervaldi til að verja hagsmuni rússneskumælandi minnihlutahópa í umræddum lönd- um. Þeir hafa þegar sýnt að þeim er alvara með því að hernema Krím og ýta undir uppreisn í Úkraínu. Kín- verjar krefjast yfirráða margra um- deildra smáeyja. Og Kína hikar ekki við að senda herskip til að sýna mátt sinn og megin.  Reynir að semja við Kína um langtímakaup á gasi Pútín á biðilsbuxun- um á Sjanghæ-fundi AFP Samstarf Xi Jinping og Vladímír Pútín ræða saman í Sjanghæ í gær. Gjaldeyrisbrask? » Ein hugmyndin sem rædd hefur verið er að Rússar sam- þykki að taka við greiðslu fyrir gasið í gjaldmiðli Kína, júani, þótt hann sé ekki enn notaður í alþjóðaviðskiptum. » Það gæti þó orðið á næstu árum og Rússar gætu notað féð til að kaupa margs konar neysluvöru af Kína. Yfir- burðastöðu Bandaríkjadoll- arans yrði ógnað. BAKSVIÐ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Mikill áhugi er meðal Rússa og Kín- verja á nánara samstarfi á ýmsum sviðum, ekki síst til að hamla gegn ofurvaldi og áhrifum Bandaríkjanna og Evrópusambandsins í alþjóða- málum. Ein hugmyndin, sem Vla- dímír Pútín Rússlandsforseti leggur nú ofurkapp á, er að samið verði um kaup Kínverja á rússnesku gasi til allt að 30 ára. Samningurinn gæti orðið andvirði allt að 400 milljarða dollara. Helm- ingurinn af gjaldeyristekjum Rússa er frá olíu- og gasiðnaði en verðlag á þessum afurðum er sveiflukennt á mörkuðum. Miklu skiptir því að tryggja kaupendur til langs tíma. Ekki tókst þó að semja um verðið á fundi Pútíns með Xi Jinping, for- seta Kína, í Sjanghæ í gær en hugs- anlegt að það takist áður en Pútín snýr aftur heim í dag. Kínverjar hafa mikla þörf fyrir gasið en vita að Pút- ín er í þröngri stöðu vegna hættunn- ar á að helsti kaupandinn, Evrópu- ríkin, reyni að losna úr þeim óþægilegu faðmlögum sem mikil við- skipti við Rússa geta verið. Nægir að minna á það hvernig Rússar hafa Leitin að flaki MH370, malasísku farþegaþotunni sem fyrir um 10 vik- um hvarf með 239 manns um borð, hefur engan árangur borið. En nú hefur bandarískur blaðamaður, Ni- gel Cawthorne, sett fram nýja kenn- ingu, að sögn International Business Times. Hann segir að þotan hafi vegna mistaka verið skotin niður á sameiginlegri heræfingu Taílend- inga og Bandaríkjamanna. Cawthorne segir að stjórnvöld í báðum ríkjunum hafi þaggað málið niður. Þeim sem hófu leitina hafi markvisst verið beint inn á rangar brautir til að flakið fyndist ekki. Fram kemur í breska Independent að nýsjálenskur starfsmaður á olíu- borpalli hafi orðið vitni að því hvað gerðist og séð brennandi þotuna steypast í hafið. Flest fórnarlömbin voru Kínverj- ar. Cawthorne segir að ættingjar þeirra sem fórust muni sennilega aldrei fá að vita hvað raunverulega gerðist 8. mars þegar þotan hvarf skömmu eftir flugtak frá vellinum í Kuala Lumpur. kjon@mbl.is AFP Ráðgáta Ein af þotum flugfélagsins Malaysia Airlines í Kuala Lumpur. Hvarf MH370 hefur valdið deilum milli Malasíumanna og Kínverja. Skotin niður vegna mistaka á heræfingu?  Leitin að þotunni árangurslaus Lengi hefur verið deilt hart um hugsanleg tengsl milli bólusetningar í æsku og einhverfu. Margt hefur verið nefnt sem líkleg orsök heil- kennisins en yfirleitt er talið að þekking manna á orsakasamhenginu sé enn of lítil. Flestar rannsóknir benda þó til þess að orsakanna sé einkum að leita í erfðafræðinni. Hins vegar er talið mjög flókið að greina með hvaða hætti einkennin erfast, hvaða gen valda heilkenninu. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á að tengslin við bólusetningu séu engin. Í vefritinu ScienceDirect er sagt frá nýrri, mjög umfangsmikilli rannsókn sem alþjóðlegt teymi vís- indamanna, m.a. á sviði faraldsfræði, gerði nýlega á málinu. Var niður- staðan sú að tengslin væru engin. Alls var um að ræða fimm að- skildar rannsóknir á alls 1.256.407 börnum og fimm aðrar á 9.920 börn- um. Hvorki tókst að greina tengsl við einhverfu né einhverfuafbrigði. Efni sem notuð eru í bóluefni, hvort sem um er að ræða bóluefni gegn einum sjúkdómi eða mörgum í senn (MMR), tengjast ekki með neinum hættu þróun einhverfu. kjon@mbl.is Bólusetning ekki sökudólgur  Ný rannsókn sýnir að hún orsakar ekki einhverfu AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Dallas tunga 2+t Verð frá 149.900 kr Cubic TV skápur Verð 19.900 kr 20% afsláttur af öllum sófum / sófasettum í völdum áklæðum ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞíNUM ÞÖRFUM MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM Verðdæmi: Tungusófar 2+tunga Hornsófar 2H2 Sófasett 3+1+1 frá 215.120kr frá 275.120kr frá 303.120kr Torino hornsófi 2H2 Verð frá 267.120 kr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.