Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 23
23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Rjómablíða Veðrið lék heldur betur við borgarbúa og borgargesti í gær og var setið við hvert borð við Austurvöll.
Golli
Vinstri menn ætla
af göflunum að ganga
yfir því að veiðigjald
sem lagt er á sjávar-
útveginn lækki vegna
versnandi afkomu. En
þeir sjá ekkert at-
hugavert við að veita
bandarískum auð-
mönnum tugmilljóna
króna í skattaafslætti.
Í huga þeirra eru auð-
menn frá draumaborginni Holly-
wood miklu merkilegri en íslenskir
útgerðarmenn. Allir eru þeir, hver
með sínum hætti, að nýta auðlindir
landsins og sjávar. Allir veita fjöl-
mörgum störf, beint og óbeint.
Munurinn er aðeins sá að banda-
ríski auðmaðurinn yfirgefur landið
að loknu verki, en íslenski
útgerðarmaðurinn heldur áfram ár
eftir ár, a.m.k. svo lengi sem ekki
er gengið af honum dauðum.
Jafnræði vefst ekki fyrir vinstri
mönnum. Þess vegna gat Seðla-
bankinn, með stuðningi rík-
isstjórnar Samfylkingar og Vinstri
grænna, tekið upp reglu sem geng-
ur gegn öllum hugmyndum um
sanngirni og jafnræði. Í skjóli
óréttlætis hefur erlendum aðilum
verið boðið að kaupa íslensk fyr-
irtæki og fasteignir með 20% af-
slætti. Hið sama gildir um þá fáu
Íslendinga sem eiga eignir í öðrum
löndum – þeir njóta
forréttindanna.
Áhugalausir
um jafnræði
Vinstri menn – hinir
norrænu jafn-
aðarmenn – höfðu því
ekki áhyggjur þegar
gjaldþrota risafyr-
irtæki voru endurreist
í skjóli skuldaafskrifta
og fjármuna frá lífeyr-
issjóðum. Eftir stóðu
litlir og sjálfstæðir at-
vinnurekendur, sem höfðu ekki
gert annað en gæta ráðdeildar í
rekstri og barist ójafnari baráttu
við risafyrirtækin, sem höfðu greið-
an aðgang að láns- og áhættufé.
Jafnræði og sanngirni voru látin
lönd og leið með stuðningi og vel-
vilja vinstri manna.
Engu er líkara en að vinstri
menn séu áhugalausir um jafnræði.
Hugmyndafræði þeirra byggist á
„félagslegu réttlæti og jöfnuði“ og
á þeim grunni réðst norræna
vinstri stjórnin í róttækar skatta-
hækkanir, jafnt á fyrirtæki sem
einstaklinga. Þegar upp var staðið
fólst hið „félagslega réttlæti“ ekki í
öðru en að jafna tekjur niður á við
í stað þess að fjölga tækifærum
þeirra sem minnst hafa á milli
handanna til að afla sér hærri
tekna.
En fögnuður vinstri manna var
ósvikinn: Jöfnuður í þjóðfélaginu
hafði aukist. Engu skipti þó flestir
væru verr settir en áður.
Á leið sinni til „félagslegs rétt-
lætis“ var vinstri mönnum nauð-
synlegt að breyta stöðugt leikregl-
unum. Með því var komið í veg
fyrir að einstaklingar og fyrirtæki
gætu gert áætlanir til langs tíma
(og jafnvel grætt). Atvinnulífið og
fyrirtækin héldu að sér höndum og
jöfnuðurinn jókst niður á við. Sí-
breytilegt regluverk, hærri skattar
og hótun um enn hærri skatta voru
verkfæri til að knýja fram „fé-
lagslegt réttlæti“.
Draumaland „félags-
legs réttlætis“
Draumaríki vinstri manna er
land með flóknu skatta- og milli-
færslukerfi. Þannig eru völdin
treyst og best tryggð. Skattalegar
ívilnanir til þeirra sem njóta vel-
þóknunar stjórnvalda eru dæmi um
hvernig reynt er að spinna valda-
þræði og ná tökum á frjálsu at-
vinnulífi.
Það er margt sem mælir með því
að ýtt sé undir fjárfestingu í at-
vinnulífinu með skattalegum hvöt-
um. En ívilnanir sem eru sér-
sniðnar að einstökum fyrirtækjum,
líkt og byrjað var á í tíð vinstri
stjórnar, innleiða óréttlæti og
ójöfnuð. Þóknanlegir auðmenn og
Hollywood-stjörnur njóta velvildar
í formi skattfríðinda en íslenski
framtaksmaðurinn, sem hefur
byggt upp sitt litla fyrirtæki, er úti
í kuldanum, hokinn undan þungum
skattabagga.
Birtingarmynd „félagslega rétt-
lætisins“: Sumir eru jafnari en aðr-
ir.
Verst er að skattalegar ívilnanir
eru lítið annað en dulinn ríkis-
styrkur til eins fyrirtækis eða at-
vinnugreina – ríkisstyrkur sem
önnur fyrirtæki og einstaklingar
greiða.
Hlutverk hægri manna
Telji stjórnvöld nauðsynlegt að
hvetja til fjárfestinga í atvinnulífinu
eiga þau að innleiða almenna og al-
gilda reglu í skattalögum. Þannig
eiga útgerðarmaðurinn sem byrjar
fullvinnslu í landi, eigandi dekkja-
verkstæðisins sem fjölgar starfs-
mönnum, byggingaverktakinn sem
innleiðir nýjar og ódýrari aðferðir
við byggingar, að sitja við sama
borð og fjárfestar (innlendir sem
erlendir) sem vilja hætta fjár-
munum í nýsköpun. Það getur
varla verið flókið að fylgja þessari
einföldu jafnræðisreglu.
Skattalegar ívilnanir eru draugar
sósíalismans. Eitt hlutverk hægri
manna er að kveða niður slíka
drauga og byggja upp heilbrigt
skattaumhverfi sem örvar allt efna-
hagslífið. Þetta gerði Sjálfstæðis-
flokkurinn þegar hann tók við for-
ystu í ríkisstjórn og fjármálaráðu-
neytinu árið 1991. Umfangsmiklar
breytingar á skattkerfinu, þar sem
skattar voru ýmist lækkaðir eða
felldir niður, skiluðu ríkissjóði
auknum tekjum. Frá 1991 til 2007
tvöfölduðust tekjurnar að raunvirði.
Meiri hófsemd í tekjuskatti fyrir-
tækja skilaði öllum meira. Árið
1985 var tekjuskatturinn 50% en
var kominn niður í 18% árið 2003.
Skatttekjur ríkisins af fyrirtækjum
hækkuðu engu að síður úr 0,9% í
1,5% sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu.
Auðvitað eigum við að bjóða er-
lenda kvikmyndajöfra velkomna
hingað til lands. Það er eftirsókn-
arvert fyrir land og þjóð að þeir
komi hingað og nýti íslenska nátt-
úru og þjónustu íslensks fagfólks í
kvikmyndagerð. En við eigum að
bjóða þeim hingað eins og öllum
öðrum með almennu, einföldu og
hagstæðu skattaumhverfi – um-
hverfi sem við hin fáum einnig að
búa við.
Eftir Óla Björn
Kárason » Auðmenn og
Hollywood-stjörnur
njóta velvildar í formi
skattfríðinda en íslenski
framtaksmaðurinn er
úti í kuldanum, hokinn
undan þungum
skattabagga.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Af hverju eru Tom Cruise
og Russell Crowe jafnari en við hin?
Nauðsynlegt er
að fjölga íbúðum í
Reykjavík, bæði
almennum og fé-
lagslegum. Stað-
reyndin blasir við,
því að vanræksla
þessa málaflokks
af hálfu núverandi
meirihluta í borginni er alger. Á
þessu kjörtímabili hafa aðeins
bæst við 67 íbúðir í eignasafn
Félagsbústaða, en ættu að vera
a.m.k. 400. Fólk býr í ólöglegu
húsnæði úti um allan bæ, hús-
næðisöryggi er lítið og bitnar
þetta ástand einna helst á þeim
sem minnst mega sín.
Á heimasíðu Reykjavík-
urborgar er haft eftir Degi B.
Eggertssyni, oddvita Samfylk-
ingarinnar, að byrjað hafi verið
að byggja 614 íbúðir í Reykjavík
á árinu 2013 en á árabilinu
2007-2012 hefði þurft að byggja
2.700 fleiri íbúðir en raunin
varð. Samkvæmt upplýsingum
úr Þjóðskrá Íslands fjölgaði
íbúðum í Reykjavík um sex á
árinu 2011 og 132 á árinu 2012.
Nú korter í kosningar þykist
meirihlutinn hins vegar vera að
vakna til lífsins með fögur fyr-
irheit um uppbyggingu sem
hann hefur ekki sinnt á þessu
kjörtímabili.
Samkvæmt nýju aðalskipulagi
Reykjavíkur 2010-2030 er stefnt
að því að byggja að meðaltali
700 íbúðir á ári eða 14.500 íbúð-
ir á tímabilinu og eiga rúmlega
2⁄3 hlutar þessara íbúða að vera
byggðir í Vatnsmýrinni, mið-
borginni – gömlu höfninni og í
Elliðaárvogi. Staðreyndin er
hins vegar sú að til þess að
hægt sé að byggja á þessum
stöðum þarf flugvöllurinn að
fara, kaupa þarf upp atvinnu-
húsnæði, skipuleggja Elliðaár-
voginn og byggja steinklumpa
allan hafnarbakkann. Tillög-
urnar eru óraunhæfar. Ef það
tækist að byggja 700 íbúðir á
ári eða samtals 2.800 íbúðir
næstu fjögur árin þá liggur al-
veg ljóst fyrir að það verða ekki
allt búseturéttar- og leiguíbúðir
heldur er stærsti hlutinn byggð-
ur til sölu. Það þarf raunhæfar
hugmyndir og nýtt aðalskipulag
til að hægt sé að byggja
Reykjavík fyrir venjulegt fólk
en ekki innihaldslaus loforð
korter fyrir kosningar.
Borgarbúar hafa það í valdi
sínu 31. maí nk. að breyta þessu
og fjölga íbúðum í Reykjavík,
því samþykkt aðalskipulag má
taka upp af nýjum meirihluta.
Við ætlum að byggja
100.000 íbúðir
Eftir Svein-
björgu Birnu
Sveinbjörns-
dóttur og Guð-
finnu Jóh. Guð-
mundsdóttur
»Krefjumst raun-
hæfra hugmynda
og leiða svo hægt sé
að byggja Reykjavík
fyrir venjulegt fólk,
ekki innihaldslaus
loforð korter fyrir
kosningar.
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
Höfundar eru frambjóðendur
Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Guðfinna Jóh.
Guðmundsdóttir