Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Íslendingar Pétur Atlı́ Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Sauðárkrókur Ásthildur Guðný fædd-
ist 15. mars kl. 9.51. Hún vó 3.838 g og
var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru
María Dröfn Guðnadóttir og Sævar
Már Þorbergsson.
Nýir borgarar
Þorlákshöfn Þorvarður Ragnar
fæddist 4. júní. Hann vó 3.590 g
og var 51 cm langur. Móðir hans er
Sigrún Berglind Ragnarsdóttir.
Halldór Frímanns-son fagnar 61árs afmæli sínu
í dag. Hann hyggst ekki
halda sérstaklega upp á
daginn en ætlar þó að
gera sér glaðan dag um
helgina. „Hugmyndin er
að fara út fyrir land-
steinana, nánar til tekið
í eyju sem heitir Heima-
ey,“ segir Halldór kím-
inn. Spurður hvað þang-
að sé að sækja segir
hann það vera friðsæld
og sælu. Sjálfur á hann
ekki ættir að rekja
þangað en eiginkona
hans, Lilja Dóra Victors-
dóttir, á skyldfólk í Eyj-
um. Halldór er lögfræð-
ingur hjá Viðlaga-
tryggingu Íslands. Hann
á þrjú börn, Sigurð Jó-
hann, sem er 28 ára og
tvíburana Frímann Unn-
ar og Viktor Hans sem
eru tvítugir. „Helstu
áhugamál mín snúa að
íþróttum. Ég er í úr-
skurðarnefndum fyrir
ÍSÍ og KSÍ. Það tekur
svolítinn tíma. Sér-
staklega í fótboltanum.
Svo er það auðvitað fjölskyldan,“ segir Halldór.
Halldór er úr Mosfellssveit. „Ég er úr Mosfellssveit, en ekki
Mosfellsbæ. Það verður alltaf þannig í mínum huga,“ segir Hall-
dór sem búið hefur um hálfa ævina í Reykjavík. Hann býr nú í
Árbæ.
Halldór er ekki búinn að ákveða það hvernig hann mun verja
sumarfríinu en segir þó að vel komi til greina að ferðast til út-
landa þegar nær líður hausti. „Það er verið að leggja drög að því
að fara út fyrir landsteinana. Ég er ekki mjög hlynntur því að
fara út um hásumar. Nýjasta umræðan snýr að því að fara til
Prag. Svo kemur einnig til greina að fara til Spánar, segir
Halldór. vidar@mbl.is
Halldór Frímannsson er 61 árs í dag
61 árs Halldór Frímannsson fagnar
61 árs afmæli sínu í dag. Hann ætlar
að fara til Vestmannaeyja um helgina
og gera sér glaðan dag.
Úr Mosfellssveit,
ekki Mosfellsbæ
E
rna Valsdóttir er fædd
í Reykjavík 21.5. 1954
og ólst upp í Vestur-
bænum. Hún dvaldist
mörg sumur fram á
unglingsaldur vestur á Bíldudal
hjá elstu systur sinni sem þar var
búsett, þar sem Erna naut lífsins.
Erna hóf skólagöngu í Vestur-
bæjarskóla, sem var gamli Stýri-
mannaskólinn við Öldugötu, gekk
Melaskóla og er gagnfræðingur frá
Hagaskóla og útskrifaðist sem
tækniteiknari frá Iðnskólanum í
Reykjavík árið 1980.
Erna útskrifaðist með prófi til
löggildingar sem fasteigna-, skipa-
og fyrirtækjasali árið 1993. Hún
hefur einnig stundað nám við Há-
skólann á Bifröst í viðskiptatengd-
um greinum.
Starfsferill
Erna starfaði við skrifstofustörf
hjá Heildverslun Eggerts Krist-
Erna Valsdóttir, fasteigna-, skipa- og fyrirtækjasali – 60 ára
Fjölskyldan og hvolparnir Þriggja vikna gamlir hvolpar Lukku og Leós um síðustu páska.
Hefur rekið eigin fast-
eignasölu frá aldamótum
Í Flekkudalsrétt Erna stödd á Fellsströnd 2012, með sheltie-tíkina Lukku.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Heilsuborg ermálið
þegar þú vilt:
• Faglega þjónustu
• Heimilislega líkamsrækt
• Hreyfa þig í notalegu umhverfi
• Öðlast betri heilsu í góðum
félagsskap
• Að lífsgleði og árangur
fari saman