Morgunblaðið - 19.07.2014, Page 4

Morgunblaðið - 19.07.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014 Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Frá árinu 2008 hefur verslunin IKEA boðið upp á ókeypis mat fyrir börn 12 ára og yngri á matsölustað sínum en frá og með september verður breyting þar á. Þá mun hann kosta 345 krónur. „Í hruninu 2008 var ákveðið að hafa barnamat frían og við höfum verið að gefa um 70-80 þúsund skammta á ári, sem er ansi mikið. Þetta er því sam- tals um hálf milljón skammta sem hafa verið gefnir frá árinu 2008. IKEA hefur alltaf lagt áherslu á fjöl- skyldufólk og við vitum að ekki verða allir sáttir við þessa breytingu, en þetta fyrirkomulag átti samt aldrei að vera að eilífu og við teljum að hruninu hafi lokið fyrir þó nokkru. Allur ágóði af sölu barnamatarins mun fara til Forvarnarhússins sem við erum aðalstyrktaraðilinn að. Við ætlum að koma enn betur að því verkefni en áður,“ segir Þórarinn Ævarson, framkvæmdastjóri IKEA. „Öllum verðandi foreldrum á landinu er boðið að koma í Forvarn- arhúsið sem er fullbúið heimili. Þar eru foreldrum sýndar allar mögu- legar slysagildrur sem leynast á heimilum og hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir slys. Flest slys er hægt að koma í veg fyrir og því með- vitaðra sem fólk er um slysin því auðveldara er að fyrirbyggja þau,“ segir Þórarinn Ný verslun í skoðun Verið er að skoða möguleikann á að opna IKEA-verslun á Akureyri. „Við höfum verið að skoða þann möguleika að opna IKEA-verslun á Akureyri. IKEA hefur verið að opna fyrir þann möguleika að opna minni verslanir en áður. Ekki væri t.d. raunhæft að opna 20 þúsund fer- metra verslun á Akureyri en minni búð með vinsælustu vörunum gæti gengið. Þá yrði verslunin kannski 4-5 þúsund fermetrar. Þetta er í skoðun eins og er. IKEA hefur t.a.m. gengið mjög vel á spænsku eyjunum, þ.e. Kanaríeyjum og Mal- lorca. Þar hafa verið opnaðar litlar IKEA-verslanir og við höfum verið að kynna okkur hvernig þetta fyrir- komulag hafi gengið þar. Við erum mjög heitir fyrir þessari hugmynd.“ Ef vel gengur í efnahagsmálum telur Þórarinn líklegt að IKEA opni verslun á Akureyri. „Þetta ræðst af efnahagsástandinu. Ef ástandið heldur áfram að batna þá tel ég tals- verðar líkur á því að IKEA opni verslun á Akureyri.“ IKEA opnaði árið 2006 verslun í Kauptúni í Garðabæ. Nú vinna um 300 starfsmenn þar og reksturinn hefur gengið vel síðustu ár að sögn Þórarins. Veitingastaður verslunar- innar hefur verið vinsæll, þá sér- staklega vegna lágs verðs. Þórarinn telur að veitingastaðurinn sé sá vin- sælasti á landinu, en yfir milljón manns kemur þangað árlega. Morgunblaðið/Þórður Ódýrt IKEA hefur boðið börnum yngri en 12 ára upp á frían mat frá árinu 2008. Frá og með september mun barnamatur kosta 345 krónur. Maturinn ekki lengur frír  Barnamaturinn í IKEA mun kosta 345 krónur frá og með september  Hafa gefið um 70-80 þúsund skammta á ári  „Hruninu lauk fyrir þó nokkru“ Þórarinn Ævarsson Mun minni skemmdir urðu á frystitogaranum Kristinu EA en talið var eftir að skipið steytti á boða í fyrra- kvöld. Kristján Vil- helmsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarsviðs Samherja, sagði að þess yrði freist- að að gera við skipið í höfninni á Grundarfirði. Nokkrir kafarar vinna við verkefnið. Í dag kemur í ljós hvort viðgerð tekst. Svonefndur kassakjölur fremst á skipinu skemmdist við óhappið. Við hann voru fest botnstykki dýptar- mæla sem öll eru í burtu. Reynt verður að setja nýja festingu fyrir botnstykki á skipið. Eitt af þremur sónartækjum er í lagi. gudni@mbl.is Minni skemmdir á Kristinu en talið var Strand Kristina EA tók niðri á boða. Lík fannst við Háöldu við Land- mannalaugar á fimmtudag. Talið er að það sé af Nathan Foley Mendelssohn, 34 ára Bandaríkja- manni sem hvarf 10. september í fyrra. Málið hef- ur verið sent til kennslanefndar ríkislögreglu- stjóra til frekari rannsóknar. Nathan ætlaði að ganga Lauga- veginn og Fimmvörðuháls, frá Landmannalaugum að Skógum undir Eyjafjöllum, þegar hann hvarf. Vonskuveður var á Lauga- veginum daginn sem Nathan hvarf og um 150 manns leituðu að honum. Formlegri leit var hætt 7. október síðastliðinn. Líkfundur við Landmannalaugar Nathan Foley Mendelssohn Kennslanefnd ríkislögreglu- stjóra hefur stað- fest að lík konu sem fannst síð- astliðinn þriðju- dag í Bleiks- árgljúfri hafi verið af Ástu Stefánsdóttur sem leitað hafði verið frá 10. júní. Réttarkrufning hefur farið fram og er beðið nið- urstöðu hennar. Þetta kemur fram í frétt á vef lögreglunnar á Selfossi. Kennslanefnd stað- festir með lík Ástu Ásta Stefánsdóttir Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, hefur vakið athygli fyrir að lifa afar aðhaldssömu lífi þrátt fyrir að vera einn ríkasti maður heims. Ingvar er 88 ára og ekur um á Volvo 240 frá árinu 1993. Þá flýgur hann alltaf í almennu farrými og hvetur starfsmenn IKEA til að skrifa báðum megin á öll blöð til að spara peninga. Þá er sagt að hann kaupi jólagjafir á janúar- útsölum og endurnoti tepoka. Að sjálfsögðu borðar svo Ingvar reglulega á hinum ódýru veit- ingastöðum IKEA. Hann er hold- gervingur hinna skandinavísku Jantelaga. Ingvar Kamprad AUÐMÝKT OG AÐHALD Jón Hákon Magnússon, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri KOM, Kynningar og markaðar ehf., andaðist á líkn- ardeild Landspítalans 18. júlí sl., 72 ára. Jón Hákon fæddist í Reykjavík 12. sept- ember 1941. Foreldrar hans voru Svava Sveins- dóttir húsmóðir og Magnús Guðjón Krist- jánsson skrifstofustjóri. Jón Hákon lauk BA-prófi í stjórn- málafræði og blaðamennsku frá Macalester College í St. Paul í Minnesota, Bandaríkjunum, 1964. Að loknu námi starfaði hann sem blaða- maður hér á landi og í Bandaríkj- unum, var sölu- og markaðsstjóri hjá bílaumboðinu Vökli hf. og skrif- stofustjóri hjá Flughjálp vegna Bi- afra-stríðsins. Jón Hákon var blaða- fulltrúi á 1.100 ára afmæli Íslands- byggðar 1974. Hann var fréttamaður á fréttastofu Sjónvarps RÚV 1970- 1979 og stofnandi og framkvæmdastjóri KOM ehf. 1986-2013. Jón Hákon gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum. Hann var m.a. í bæjarstjórn Seltjarnarness og for- seti bæjarstjórnar um tíma og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Jón Hákon annaðist rekstur fjölmiðlastöðvarinnar í tengslum við leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs 1986. Eftirlifandi eiginkona Jóns Há- konar er Áslaug Guðrún Harðar- dóttir. Þau eignuðust tvö börn: Ás- laugu Svövu og Hörð Hákon. Jón Hákon ritaði um árabil greinar í Morgunblaðið og er hann meðhöf- undur að grein sem birtist í dag á bls. 27. Við leiðarlok þakkar Morgun- blaðið Jóni Hákoni áratuga langt samstarf og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Andlát Jón Hákon Magnússon Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði“ „Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við. Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“ 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat „Við vorum að koma núna í mak- ríl og vorum að taka ágætis tog,“ sagði Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur og leiðangursstjóri á rannsóknarskip- inu Árna Frið- rikssyni, í gær- kvöld. Skipið er í makrílleiðangri og var statt djúpt austur af Langanesi. „Við sáum eig- inlega ekki neinn makríl úti fyrir Norðurlandi og lítið djúpt út af Norðausturlandi. Það er í samræmi við það sem við höfum séð und- anfarin ár.“ Nú fara þeir að nálgast þær slóðir þar sem venjulega hefur sést meira af makríl. Makríll var kominn út af Vest- fjörðum og var þó nokkuð út af sunnanverðum Vestfjörðum. Eftir er að rannsaka út af Vesturlandi og fyrir öllu Suðurlandi. Æði mikið hafði sést af stórri og fullorðinni norsk-íslenskri síld út af Norðausturlandi. gudni@mbl.is Lítið af makríl úti fyrir Norðurlandi Sveinn Sveinbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.