Morgunblaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 12
SVIÐSLJÓS Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Mikil stemning ríkir í Smáranum, Kópavogi nú um helgina, en hið ár- lega Símamót, knattspyrnumót stúlkna í 5., 6. og 7. flokki, er haldið þar í 30. sinn. Metþátttaka er á mótinu í ár, en keppendur eru hátt í 2.000 talsins og liðin 276. Keppendur láta rigninguna ekki á sig fá og ríkir mikil stemning á svæðinu. Á fyrsta keppnisdegi mátti heyra mörg hvatningarhróp frá foreldrum á hliðarlínunni og regnhlífar voru á lofti hvert sem litið var. Stöllurnar Sandra Björg Axelsdóttir og Margrét Lukka Brynjarsdóttir voru í hópi foreldra og dyggra stuðningsmanna heimaliðs- ins, Breiðabliks. Þrátt fyrir veðrið voru þær Sanda og Margrét léttar í lund. „Maður tekur þetta bara á já- kvæðninni,“ segir Sandra. Skömmu áður hafði regnhlíf þeirra fokið upp en þær létu það ekki á sig fá. „Við er- um bara fegnar að þurfa ekki að gista í fellihýsi hér fyrir neðan og geta farið heim til okkar.“ Þær segja stelpurnar ekki spá í veðrið, foreldrarnir sjái um það. „Þær eru aðallega að stressa sig á hárgreiðslunni. Hún þarf að vera í lagi,“ segir Margrét og hlær. Mikil samheldni hjá liðum Um allt keppnissvæðið má sjá stelpur sem leggja sig allar fram við æfingar og undirbúning. Knatt- spyrnulið BÍ frá Ísafirði er meðal þeirra liða sem keppa á mótinu í ár. Hjá stelpunum í liðinu ríkir mikill samhugur og er augljóst að þarna er einbeitt og samheldið lið á ferðinni. Stúlkurnar eru í óðaönn að setja sér markmið fyrir næsta leik þegar blaðamann ber að garði. „Við erum í fimmta flokki,“ segir liðið í kór. Að- spurðar segjast þær aðeins vera bún- ar að keppa inni, sér til mikillar ánægju. Liðsandinn er góður og segj- ast stúlkurnar vilja hjálpast að við að gera sitt besta. „Hjá okkur er það ekki þannig að við viljum bara vinna mótið,“ segja þær, „við viljum bara gera okkar besta.“ Emma frá Grindavík er einnig meðal þátttakenda mótsins og segist hún hafa gaman af því að taka þátt. „Það var reyndar smá erfitt að keppa áðan því boltinn fauk frekar oft,“ segir hún flissandi. Mótið stendur fram á morgun, en í kvöld fer fram kvöldvaka fyrir kepp- endur og munu hljómsveitin SamSam og Friðrik Dór koma þar fram. Láta rigninguna ekki á sig fá  Símamótið, knattspyrnumót stúlkna í 5., 6. og 7. flokki, haldið í 30. sinn nú um helgina  Hátt í 2.000 keppendur á mótinu frá 276 liðum  Gleði ríkir hjá keppendum þrátt fyrir mikla rigningu Morgunblaðið/Þórður Rigning Hvert sem litið var í gær mátti sjá regnhlífar á lofti. Þátttakendur mótsins virðast þó ekki láta rigninguna á sig fá og ríkir mikil gleði á mótinu. Metnaður Að sögn foreldra á mótinu hafa stúlkurnar fæstar áhyggjur af veðrinu, þær stressa sig þó aðallega á hárgreiðslunni. Liprar Keppendur leggja margir hverjir mikið upp úr æfingum og und- irbúningi til að verða eins fráir á fæti og mögulegt er. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014 Stjórn Fjórð- ungssambands Vestfirðinga hef- ur sent frá sér bókun þar sem „einhliða ákvörð- un heilbrigðis- ráðherra“ um sameiningu heil- brigðisstofnana á Vestfjörðum er harðlega mót- mælt. Boðað samráð í málinu hafi ekki verið í samræmi við vilja Al- þingis. Ráðherra hefur boðað að sameina eigi stofnanirnar á Ísafirði og Patreksfirði. Lýsa Vestfirðingar undrun sinni og furðu á „skilnings- leysi“ ráðherra á landfræðilegri sérstöðu byggðar og erfiðum sam- göngum á Vestfjörðum. Skorað er á ríkisstjórn og Alþingi, sér í lagi þingmenn Norðvesturkjördæmis, að hafna þessum áformum. Taka eigi tillit til sérstöðu þeirra byggða sem ekki njóta jafnra réttinda á við aðra landsmenn. Vestfirðingar mót- mæla sameiningu Heilbrigðisstofn- unin á Patreksfirði. Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.