Morgunblaðið - 19.07.2014, Side 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Menningarfélag Akureyrar var
formlega sett á fót á fimmtudaginn.
Þar er um að ræða sjálfseign-
arstofnun sem tekur við verkefnum
og vörumerkjum Leikfélags Ak-
ureyrar, Menningarfélagsins Hofs
og Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands.
Formaður stjórnar hins nýja fé-
lags er Sigurður Kristinsson, pró-
fessor við Háskólann á Akureyri,
fulltrúi Akureyrarbæjar. Með hon-
um í stjórn eru Magna Guðmunds-
dóttir, frá Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands, Rúnar Þór Sigursteinsson
fyrir hönd Hofs og Arnheiður Jó-
hannsdóttir, fulltrúi Leikfélags Ak-
ureyrar.
Síðar í sumar verður ráðinn
framkvæmdastjóri til félagsins en
listrænir stjórnendur verða hins veg-
ar starfandi fyrir hvert félag fyrir sig
og áfram verður listagyðjan blótuð í
þeirra nafni. Ástæða breytinganna
er ekki síst sú að talið er augljóst að
spara megi töluvert fé með þessum
hætti og að þar með geti meira runn-
ið í listina sjálfa.
Fjármál LA, Hofs og Sinfóníunn-
ar verða á einni könnu, áætlanagerð
sömuleiðis og ljóst er að samlegð-
aráhrif verða af ýmsu tagi; tækni-
menn eru til dæmis nefndir, en
margt af því sem er á þeirra könnu í
Hofi og hjá LA í Samkomuhúsinu er
af sama toga.
Hið nýja félag mun einnig sjá til
þess að dagskrá viðburða verði sam-
ræmd, þannig að ekki rekist hvað á
annars horn. Í stóra samhenginu eru
breytingarnar gerðar vegna þess að
allir sem að koma eiga sér það mark-
mið að stuðla að öflugu menningarlífi
í bænum, bæði framleiðslu á efni og
því að fá margskonar viðburði til
bæjarins, eins og einn þeirra sem að
kom orðaði það við Morgunblaðið í
vikunni.
Vert er að geta þess að á fundi
bæjarráðs var í viknni tekið fyrir er-
indi frá stjórn Leikfélags Akureyrar
þar sem óskað er eftir 7,5 milljóna
króna aukafjárveitingu til þess að fé-
lagið geti haldið úti lágmarks-
starfsemi út árið. Afgreiðslu var
frestað en frekari gagna verður aflað
fyrir næsta fund bæjarráðs.
Vegna bágrar fjárhagsstöðu LA
var fyrr á árinu ákveðið að ekki yrðu
nein verk sett á svið í haust en þráð-
urinn tekinn upp eftir áramót.
Árlegir miðaldadagar standa nú
yfir á Gásum við Eyjafjörð og lýkur á
morgun. Þar er gerð tilraun til að
endurskapa lífið við þennan forna
verslunarstað eins og það gæti hafa
verið um aldamótin 1300. Þá var ið-
andi mannlíf á Gásum enda helsti
verslunarstaður landsins um aldir.
Hljómsveitin Gullfoss verður
með tónleika á Græna hattinum í
kvöld og leikur tónlist Creedence
Clearwater Revival.
Sértu velkominn heim er nafn á
leiksýningu sem flutt verður um borð
í eikarbátnum Húna II. á siglingu um
Pollinn um verslunarmannahelgina.
Þar verða á ferðinni nemendur Leik-
listarskóla Leikfélags Akureyrar,
sem tekur sér ekki frí í sumar, sem
vinna nú að uppsetningu sýning-
arinnar.
„Þetta er skemmtisigling á þess-
um stórkostlega og nú landsfræga
bát, með leiksýningu um sögur sjó-
manna innanborðs,“ segjr Vala
Höskuldsdóttir leikstjóri sýning-
arinnar. Áætlað er að sýna verkið
einnig á Grenivík, Dalvík og í Hrísey
í ágústmánuði. Verkefnið er styrkt af
Menningarráði Eyþings og er sam-
starfsverkefni Hollvina Húna II. og
Leikfélags Akureyrar.
Af Húna II. og áhöfn hans er það
annars að frétta að hann er á mikilli
strandmenningarhátíð í Osló en er
væntanlegur til Akureyrar á nú 26.
júlí.
Eiríkur H. Hauksson hefur verið
ráðinn sveitarstjóri Svalbarðsstrand-
arhrepps. Eiríkur er einn fulltrúa í
sveitarstjórn og hefur undanfarin ár
starfað sem framkvæmdastjóri Leik-
félags Akureyrar.
Eitt af biðskýlum strætó, við
Borgarbraut á móts við Háskólann á
Akureyri, var skemmt í skjóli nætur í
vikunni. Tvö gler voru brotin og er
tjónið hátt í 200 þúsund krónur að
því talið er. Skemmdarverk sem
þetta eru víst unnin á skýlunum
nokkrum sinnum á ári – heldur dap-
urlegt tómstundagaman, satt best að
segja.
Menningarfélag Akur-
eyrar formlega stofnað
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Miðaldaleikir Mannlífið eins og það var um 1300 er rifjað upp á Gásum
um helgina. Þessi unga stúlka skaut af boga á Gásum fyrir nokkrum árum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Í Hofi Kristján Ingimarsson stjórnaði vígsluathöfn Hofs 2010. Kafað var
ofan í menningarmál og rekstur þriggja stofnana sameinaður í kjölfarið.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014
Sunnudaginn 20. júlí næstkomandi
verður árleg sumarmessa í Klypps-
staðarkirkju í Loðmundarfirði.
Klyppsstaðarkirkja var reist árið
1895, en prestur sat þar til 1888.
Eftir það var staðnum þjónað frá
Dvergasteini og síðar Seyðisfirði.
Fyrri hluta 20. aldar var nokkuð
blómleg byggð í Loðmundarfirði.
Um aldamótin 1900 voru íbúar 87.
Bæirnir voru tíu en um miðja 20.
öldina komst los á byggðina, þann-
ig að fimm jarðir fóru í eyði á ár-
unum 1940-1965. Stærstu jarð-
irnar, Stakkahlíð og Sævarendi,
voru lengst í byggð, hin síð-
arnefnda til 1973. Til Loðmund-
arfjarðar er jeppavegur frá Borg-
arfirði eystra og tekur ferðin
þangað rúma klukkustund. Kirkjan
er friðað hús og hefur ekki verið
afhelguð.
Prestar Egilsstaðaprestakalls,
sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir og sr.
Sigríður Rún Tryggvadóttir, munu
þjóna í messunni á sunnudaginn.
Messan á Klyppsstað hefur jafn-
an verið vel sótt af ferðafólki og úr
nágrannabyggðum, segir í tilkynn-
ingu.
Kirkjugestum verður boðið í
kaffi í skála Ferðafélagsins eftir
messu. Allir eru velkomnir í sum-
armessuna að Klyppsstöðum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sumarfegurð Margir leggja leið sína í Loðmundarfjörð að sumarlagi.
Árleg sumarmessa
í Loðmundarfirði
Movie Star hvíldarstóll
Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is