Morgunblaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 24
Seoul, AFP. | Af hverju fór enn fram
áætlanaflug yfir átakasvæðinu í
Úkraínu þegar farþegavél flugfélags-
ins Malaysia Airlines var að skotin
niður í fyrradag? Þessi spurning hef-
ur óhjákvæmilega vaknað, ekki síst
vegna þess að mörg önnur flugfélög í
Asíu höfðu hætt að fljúga yfir átaka-
svæðið fyrir nokkrum mánuðum.
Mikil umferð flugvéla á leið milli
Evrópu og Asíu og þá sérstaklega
Suðaustur-Asíu hefur ávallt verið á
flugleiðinni yfir Úkraínu. Breyting á
flugleiðinni hefði í för með sér lengri
flugtíma og aukinn eldsneyt-
iskostnað.
Nokkur höfðu hætt að fljúga
Engu að síður höfðu nokkur stór
flugfélög, þar á meðal Korean Air og
Asiana frá Suður-Kóreu, Qantas frá
Ástralíu og China Airlines frá Kína,
hætt að fljúga yfir átakasvæðið, sum
þegar fyrir fjórum mánuðum þegar
rússneskir hermenn tóku Krímskaga,
samkvæmt upplýsingum, sem feng-
ust frá þeim í gær.
„Við hættum að fljúga yfir Úkraínu
af öryggisástæðum,“ sagði Lee Hyo-
Min, talsmaður Asiana.
Korean Air færði flugleiðir 250 km
suður af Úkraínu frá og með 3. mars
vegna „pólitísks óróa á svæðinu“, að
því er embættismaður flugfélagsins
sagði við AFP.
Talsmaður Qantas sagði að áætl-
unarflugleið félagsins milli London
og Dubai hefði legið yfir Úkraínu, en
leiðinni hefði verið breytt „fyrir
nokkrum mánuðum“ og China Air-
lines frá Taívan breytti flugleiðum 3.
apríl.
Cathay Pacific og Pakistan Int-
ernational Airlins kváðust hafa breytt
flugleiðum fyrir „nokkru“.
Liow Tiong Lai, samgöngu-
ráðherra Indónesíu, sagði að al-
þjóðleg flugmálayfirvöld hefðu gefið
út að flugleiðin væri örugg þegar
hann var spurður hvers vegna Mala-
ysia Airlines hefði ekki gripið til sams
konar ráðstafana.
„Flugleið flugs MH17 var sam-
þykkt af Alþjóðaflugmálastofnuninni
(ICAO) og löndunum með lofthelgi,
sem leiðin lá í gegnum,“ sagði ráð-
herrann við blaðamenn í Kuala
Lumpur. „Síðustu klukkustundirnar
fyrir atvikið fóru nokkrar aðrar far-
þegaflugvélar frá ýmsum flug-
félögum sömu leið,“ sagði hann.
Samkvæmt Eurocontrol, sem hef-
ur eftirlit með flugöryggi í Evrópu,
var vélin frá Malaysian Airlines í um
10 þúsund metra eða 33 þúsund feta
hæð. Leiðinni var lokað upp í 32 þús-
und feta hæð, en grænt ljós hafði ver-
ið gefið á að fljúga í flughæð malas-
ísku vélarinnar.
Sérfræðinga greinir á
Sérfræðinga greinir á um hvort
flugfélög á borð við Malaysia Airlines
hafi sýnt gáleysi með því að kjósa að
fljúga áfram yfir Úkraínu.
„Mér finnst það einfaldlega ótrú-
legt. Ég er algjörlega furðu lostinn,“
sagði Geoff Dell, sérfræðingur um
flugöryggi við Háskóla Central
Queensland í Ástralíu. „Ef það eru
vandræðasvæði á hnettinum á að
taka ákvörðun um að forðast
þau. … Það á ekki að tefla því mik-
ilvægasta – farþegum, áhöfn, flugvél
– í hættu að óþörfu.“
Gerry Soejatman, ráðgjafi Whi-
tesky Aviation, sem leigir flugvélar
og hefur aðsetur í Jakarta, sagði að
hjá hverju flugfélagi færi fram eigið
áhættumat. Hann sagði að almennt
væri talið öruggt að fljúga yfir 30 þús-
und fetum vegna þess hvað mikla
þjálfun og öflug vopn þyrfti til að
granda vél í þeirri hæð.
„Fyrir tíu árum hefði verið galið að
fljúga í 15 þúsund feta hæð yfir Írak,
en mjög öruggt að vera í yfir 30 þús-
und feta hæð, þannig að þetta snýst
um að meta áhættuna,“ sagði hann.
„Ég held að þetta sé áminning til
flugfélaga um að skoða átakasvæði
nánar þegar ákveðið er að fljúga yfir
þau og öðlast meiri skilning á þeim
vopnum, sem fyrir eru á jörðu niðri.“
Af hverju var enn
flogið yfir Úkraínu?
AFP
Samúð Margir lögðu blóm við sendiráð Hollands í Kíev í gær til að minnast
þeirra, sem fórust með vélinni. Um helmingur þeirra voru Hollendingar.
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Árásin á far-þegavélinafrá Mala-
ysian Airlines yfir
átakasvæðinu í
Úkraínu á fimmtu-
dag með þeim afleiðingum að hún
fórst ásamt öllum sem í henni
voru, 298 manns, gerbreytir stöð-
unni. Átökin eru ekki lengur
staðbundin með sama hætti og
þau hafa verið. Farþegar vél-
arinnar komu víða að og er mest-
ur harmur kveðinn að Hollend-
ingum. Að minnsta kosti 173
hollenskir ríkisborgarar voru um
borð.
Allt bendir nú til þess að að-
skilnaðarsinnar hafi grandað vél-
inni, þótt vissulega hafi það ekki
verið staðfest. Barack Obama
Bandaríkjaforseti sagði í gær að
allt benti til þess að vélinni hefði
verið grandað með flugskeyti,
sem skotið var af jörðu niðri frá
því svæði, sem væri á valdi að-
skilnaðarsinna í Úkraínu. Hann
tók sérstaklega fram að þeir nytu
stuðnings Rússa.
Obama sagði að Evrópuríki,
sem hefðu hikað við að grípa til
refsiaðgerða á hendur Rússum
vegna stuðnings þeirra við að-
skilnaðarsinna í Úkraínu, þyrftu
nú að vakna.
Enn fremur krafðist hann þess
að Vladimír Pútín, forseti Rúss-
lands, kæmi böndum á aðskiln-
aðarsinnana, sem ekki hefðu get-
að skotið niður farþegavél í 30
þúsund feta hæð án rússnesks
búnaðar og þjálfunar.
Pútín skellti skuldinni hins
vegar á stjórnvöld í Úkraínu og
sagði að vegna þess að átökin
væru þar innan landamæranna
bæru þau ábyrgð.
Uppreisnarmenn hafa sagt að
stjórnarher landsins beri ábyrgð.
Rússneski ríkisfjölmiðillinn RT
birti meira að segja frétt um að
um svipað leyti hefði
flugvél Pútíns verið
á ferð á þessum slóð-
um og henni svipaði
til vélarinnar, sem
var grandað. Af
fréttinni mátti draga þá ályktun
að ef til vill hefði ætlunin verið að
fremja tilræði við Pútín.
Líklegra er þó að farþegavélin
hafi verið skotin niður fyrir mis-
tök. Tilræðismennirnir hafi ætlað
að skjóta niður vél úkraínska
flughersins. Upptökur af sam-
skiptum skæruliða benda til þess,
séu þær ekta, að þeim hafi verið
brugðið þegar í ljós kom að ekki
var um herflugvél að ræða.
Færslur á netinu, sem nú hafa
verið fjarlægðar, gáfu það sama
til kynna.
Þess hefur verið krafist að
óháð rannsókn fari fram á þess-
um hryllilega atburði. Í fjöl-
miðlum hafa birst fréttir um að
skæruliðar reyni nú að afmá
verksummerki þannig að erfitt
gæti reynst að fá botn í hvað
gerðist með óyggjandi hætti.
Staða Pútíns hefur hins vegar
þrengst. Erfiðara er fyrir hann
að standa með aðskilnaðarsinn-
um en áður eftir þetta ódæðis-
verk. Hann getur reynt að þvo
hendur sínar af aðskilnaðarsinn-
unum, en ólíklegt er að þeir hefðu
óstuddir getað staðið í stjórnar-
hernum eins og þeir hafa gert. Í
rússneskum fjölmiðlum hefur
farið fram linnulaus áróður til
stuðnings aðskilnaðarsinnunum.
Þessi áróður hefur haft sín áhrif á
rússneskt almenningsálit og vill
hátt í helmingur þjóðarinnar
helst fara í stríð við Úkraínu.
Forsetinn þarf að vinda ofan af
þessu.
Árásin á farþegaþotuna ætti að
leiða til vopnahlés í Úkraínu.
Ástandið er farið úr böndunum
og mál er að linni.
Ástandið er farið úr
böndunum og mál er
að linni}
Ódæðisverk í Úkraínu
Í dag verður hald-ið upp á „Geggj-
aða daginn“ á Ing-
ólfstorgi, þar sem
kynnt verður nýtt
verkefni, „Gleði-
verkefnið“, sem ætl-
að er að vekja almenning til vit-
undar um geðsjúkdóma og
fordóma gegn þeim, sem því mið-
ur eru enn of algengir. Verður
meðal annars boðið upp á kerta-
fleytingu á Reykjavíkurtjörn,
þar sem þeirra sem fallið hafa
fyrir eigin hendi verður minnst.
Þetta verkefni, sem hópur
ungs fólks í JC-samtökunum
stendur fyrir, er ákaflega þarft.
Geðrænir sjúkdómar eru meðal
algengustu sjúkdóma og fara
ekki í manngreinarálit. Sam-
kvæmt áætlunum velferðarráðu-
neytisins mun þó nokkur hluti
þjóðarinnar þurfa að takast á við
afleiðingar geðraskana á ein-
hverjum tímapunkti á ævi sinni,
sem sést á því að áætlað er að um
fjórðungur allra örorkubóta sé
veittur vegna slíkra sjúkdóma.
Mikilvægt er að rík-
ur skilning sé í þjóð-
félaginu á þessum
mikla vanda og
þeim þjáningum
sem hann veldur.
Geðsjúkdómar
leggjast oft og tíðum á ungt fólk í
blóma lífsins, fólk sem annars
hefði átt alla framtíðina fyrir
sér. Hræðilegasta afleiðing
þessa er þegar hinn andlegi sárs-
auki veldur því að fólk missir
lífsviljann og ákveður að fyr-
irfara sér. Tíðni sjálfsvíga hér á
landi hefur aukist nokkuð á síð-
ustu árum, og á hverju ári falla
nærri því fjörutíu manns fyrir
eigin hendi. Á bak við þá tölu er
síðan óteljandi fjöldi aðstand-
enda og vina, sem skildir eru eft-
ir í sárum þegar skyndilegt áfall
knýr dyra.
Forvarnir gegn geðsjúkdóm-
um og sjálfsvígum eru því á með-
al okkar brýnustu verka. Von-
andi verður „Gleðiverkefnið“ til
þess að enn frekara átak verði
unnið í þeim efnum.
Tíðni sjálfsvíga
sýnir mikilvægi
forvarna gegn
geðsjúkdómum}
Geggjaði dagurinn
T
ónlistarmaðurinn Eddie Vedder,
söngvari rokkhljómsveitarinnar
Pearl Jam, hætti sér út á hálan ís
fyrir rúmri viku þegar hann upphóf
mikinn reiðilestur gegn stríðs-
rekstri á tónleikum sveitarinnar í Milton
Keynes á Englandi. Vedder sagði m.a.: „Ég
sver til guðs; það er fólk þarna úti sem er að
leita að ástæðu til að drepa! Það er að leita að
ástæðu til að fara yfir landamæri og taka land
sem tilheyrir þeim ekki. Það ætti að andskotast
burt og hugsa um eigin rass. Allir vilja það
sama: eignast börn, éta, fjölga sér, mála mál-
verk, búa til list, hlusta á tónlist, ríða meira,
eignast annað barn, éta, vinna, éta vinna, elska,
elska, elska; allir eru nákvæmlega eins!“
Meðlimir Pearl Jam hafa frá upphafi verið
óhræddir við að taka afstöðu til hinna ýmsu
málefna og kölluðu m.a. yfir sig heift íhaldssamra aðdá-
enda sinna eftir tónleika í Denver árið 2003, þar sem þeir
fluttu lagið Bu$hleaguer; ádeilu á George W. Bush þáver-
andi Bandaríkjaforseta. Var Vedder m.a. sakaður um að
hafa „stjaksett“ forsetann þegar hann setti Bush-grímu á
míkrafónstand. Á þeim tíma var það innrásin í Írak sem
kveikti í söngvaranum en þótt hann forðaðist að tiltaka
ákveðin átök eða ríki á tónleikunum í Milton Keynes tókst
honum engu að síður að hleypa illu blóði í fjölda fólks með
skammarræðu sinni og var í kjölfarið úthrópaður gyð-
ingahatari í athugasemdakerfum netheima og víðar.
Vedder sá sig tilneyddan til að grípa til varna í yfirlýs-
ingu sem birtist á heimasíðu hljómsveitarinnar:
„Flest okkar hafa hlustað á John Lennon
syngja: „Þú getur sagt að ég sé draum-
óramaður... en ég er ekki sá eini.“ Og sum okk-
ar, eftir annan morgunskammt af fréttaflutn-
ingi fullum af dauða og eyðileggingu, finnum
þörf fyrir að tengja við aðra til að komast að því
hvort við erum nokkuð ein í hneykslan okkar.
Þegar fregnir berast af um tylft yfirstandandi
átaka á hverjum degi, og frásagnirnar verða
skelfilegri, verður þungi depurðarinnar óbæri-
legur. Og hvað verður um plánetuna okkar
þegar sú depurð breytist í sinnuleysi? Af því að
við upplifum okkur hjálparlaus. Og við horfum í
hina áttina og flettum á næstu síðu.“
Vedder var gagnrýndur fyrir að taka af-
stöðu, fyrir að vera enn ein poppstjarnan að tjá
sig um eitthvað sem hún hefur ekki hundsvit á.
En hvort sem hann var að tala um Gaza eða Krímskaga
eða átök almennt hitti hann naglann á höfuðið í yfirlýsingu
sinni. Hörmungarnar eru svo miklar og sagan á bak við
átökin svo flókin að venjulegu fólki fallast hendur. Og það
þorir ekki að tjá sig, af ótta við að verða kjöldregið fyrir að
taka afstöðu. Jafnvel þótt sú afstaða sé gegn stríði al-
mennt. Skilaboð Vedders voru þessi, líkt og hann segir
sjálfur: „Stríð meiðir. Það meiðir hvoru megin sem
sprengjurnar falla.“ Og um það hvort hann hafi lært sína
lexíu: „Kallaðu mig naív. Ég vil frekar vera naív, innilegur
og vongóður en gefast upp og segja ekki neitt af ótta við
mistúlkanir og refsingu.“ holmfridur@mbl.is
Hólmfríður
Gísladóttir
Pistill
„Kallaðu mig naív“
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Malaysia Airlines var síður en
svo eina flugfélagið, sem flaug
á þessari leið yfir átakasvæðin
í Úkraínu. Það gerði einnig
fjöldi annarra flugfélaga, þar á
meðal Singapore Airlines, Air
India, Thai Airways, Air China,
China Eastern Airways og Viet-
nam Airlines, þar til farþegavél
Malaysia Airlines var grandað
á fimmtudag.
Evrópsku flugfélögin Luft-
hansa og Air France sem og
bandaríska flugfélagið Delta
greindu frá því að þau hefðu
ekki ákveðið að sniðganga
Úkraínu með öllu fyrr en á
fimmtudag.
Evrópsk og bandarísk flug-
félög breyttu flugleiðum eftir
að yfirvöld í Kænugarði
greindu frá því að flug MH17
hefði verið skotið niður í árás
hryðjuverkamanna og banda-
rískur embættismaður sagði
að talið væri að henni hefði
verið grandað með flugskeyti
sem skotið hefði verið frá
jörðu.
Mörg félög
flugu enn
BREYTTU EKKI FLUGLEIÐUM