Morgunblaðið - 19.07.2014, Page 33

Morgunblaðið - 19.07.2014, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014 þar sem við heimsóttum söfn og aðra merka staði og upplifðum hið glæsilega uppbyggingar- starf, sem unnið hefur verið á Siglufirði á undanförnum árum. Björn var mjög stoltur af sinni heimabyggð og störf hans einkenndust af vilja til að styrkja og efla atvinnulíf og bú- setuskilyrði í byggðalaginu. Á Siglufirði var fátt sem hann hafði ekki komið að með einum eða öðrum hætti á lífsleiðinni. Hann var einstaklega öflugur félagsmálamaður, sat í bæjar- stjórn í 24 ár og var forseti bæj- arstjórnar frá 1987-1990. Auk hans aðalstarfs sem sparisjóðs- stjóri sinnti hann fjölmörgum öðrum ábyrgðarstörfum og tók auk þess þátt í margvíslegu fé- lagsstarfi. Ég kynntist Birni árið 1971 þegar Björn var formaður Fé- lags ungra sjálfstæðismanna á Siglufirði. Þá sat ég í stjórn Sambands ungra sjálfstæðis- manna og gegndi jafnframt starfi framkvæmdastjóra. Ég var með námskeið fyrir unga sjálfstæðismenn á Siglufirði og Björn og hans fyrri kona, Guð- rún Margrét, tóku vel á móti mér og buðu mér að gista hjá sér. Við urðum strax góðir vinir og á þá vináttu bar aldrei skugga. Í 43 ár höfum við verið í góðu sambandi og átt margar ánægjustundir saman. Það er mikill sjónarsviptir að Birni, sem var ávallt hress, heilsteypt- ur og baráttuglaður. Minningin um góðan dreng mun lifa og ég er þakklátur fyr- ir að hafa átt hann að nánum vini í áratugi. Við Guðrún sendum Rakel, barnabörnum og öðrum að- standendum okkar dýpstu sam- úðarkveðjur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Minn besti vinur og félagi er fallinn frá. Við Björn vorum báðir Siglfirðingar og þótt ég hafi flutt úr bænum slitnuðu aldrei vináttuböndin. Þau voru ófá símtölin á milli okkar. Við töluðum saman í hverri viku að heita má fyrstu árin, og hin síð- ari mun oftar og undir hið síð- asta annan hvern dag uns yfir lauk. Tilveran breyttist við frá- fall hans. Síminn hljóður og ekkert „Jæja“ á línunni lengur. Minningarnar hrannast upp, þegar við vorum ungir menn heima á Siglufirði, en Björn bjó þar alla tíð. Það var alltaf gam- an að koma í heimsókn til Björns og Ásdísar (blessuð sé minning hennar). Einnig komu þau oft til okkar og gistu, að- allega fyrir utanlandsferðir. Við vorum á ferð fyrir norðan um miðjan júní sl. og heimsóttum Björn á Heilsustofnun Fjalla- byggðar. Þá var mjög af honum dregið, og þar kvaddi ég þennan besta vin minn í hinsta sinn. Blessuð sé minning hans. Elsku Rakel, Thomas, María Lísa og Björn. Hugur okkar fyllist af söknuði og trega en hlýjar minningar um yndislegar samverustundir munum við varðveita og aldrei gleyma. Takk fyrir allt. Jóhanna (Lilla) og Steingrímur Lilliendahl. Einn öflugasti forystumaður sem Siglfirðingar hafa átt hefur kvatt þetta jarðlíf. Hann valdist ungur til ábyrgðarstarfa í Spari- sjóðnum og í bæjarstjórn og um áratugaskeið var hann vakinn og sofinn yfir velferð samfélags- ins. Ábyrgðin og kröfurnar sem á hann voru lagðar af hálfu samfélagsins voru miklar enda naut hann virðingar fyrir störf sín. Við kynntumst þegar ég var stráklingur að vinna í Spari- sjóðnum sem hann stýrði. Virðulegur maður sem talaði viturlega fór að kalla mig inn á skrifstofuna að ræða við mig um hin ólíklegustu mál. Í þessum samskiptum fór ég að fá meira sjálfstraust enda sé ég það eftir á að Björn lagði sig fram um að uppörva ungan dreng. Upp frá því hef ég verið svo lánsamur að geta leitað til hans með öll heimsins vandamál – yf- irleitt oftar en einu sinni á dag. Þá voru rædd stjórnmál, trú- mál, matargerð, málefni Siglu- fjarðar og öll heimsins vanda- mál. Allt ræddum við í mesta bróðerni og trúnaði tímunum saman og vorum fljótir að átta okkur á því að við værum best geymdir hvor í sínum stjórn- málaflokknum. Ógleymanlegar eru samveru- stundirnar á Suðurgötunni í sól- stofunni með honum og Ásdísi sem lést á síðasta ári líka langt um aldur fram. Betri vini var ekki hægt að hugsa sér. Þar var allt í röð og reglu, fallegt heim- ili, góður matur og yndislegur garður. Þær stundir koma því miður aldrei aftur. Í veikindum dætra minna voru Björn og Ás- dís ætíð innan seilingar til að ræða málin og hughreysta. Það segir meira en margt um mann- kosti þeirra hjóna. Björn var foringi Sjálfstæð- isflokksins um áratugaskeið. Í mestu gjörningaveðrum í kring- um þann flokk stóð hann í stafni með sínum mönnum og gaf hvergi eftir. Hann var eðal íhaldsmaður og leiðarar Morg- unblaðsins voru ætíð lesnir. Hann ávann sér virðingu innan flokks og reyndar fólks úr öllum stjórnmálaflokkum – enda var Björn ætíð maður orða sinna. Hann var mannvinur og drengur góður. Það var aðdáun- arvert að fylgjast með honum klára öll sín mál síðustu dagana sem hann lifði. Hann var ánægður með sína glæsilegu fjölskyldu og hafði oft orð á því hversu heppinn hann var. Hann kvaddi með þeim hætti sem mikill maður gerir. Á stundu sem þessari eru orð fátækleg – miðað við allt það sem mér býr í brjósti. Eitt er víst að varla mun sá dagur líða að ég minnist ekki míns besta vinar og hans heilræða. Elsku Rakel, Thomas, María Lísa og Björn, megi góð- ur Guð styrkja ykkur í sorginni. Vertu blessaður, elsku vinur. Það verður vel tekið á móti þér. Fyrir hönd okkar Svövu vil ég þakka fyrir allt. Minning þín mun lifa. Birkir Jón Jónsson. Og þar eru fjöllin svo hátignar há, svo hljómfagurt lækirnir niða. Og þar eru útmiðin blikandi blá með bjargráð – og öldurnar kliða. Þar hef ég lifað og leikið mér dátt með lífsglöðum vinum á kveldin. Við trúðum á sjálfra’ okkar megin og mátt. Ég man, það var leikið með eldinn. (Signý Hjálmarsdóttir.) Fallinn er frá sveitungi minn og vinur, Siglfirðingurinn Björn Jónasson, fyrrverandi spari- sjóðsstjóri og bæjarfulltrúi á Siglufirði. Í litlum samfélögum eins og Siglufirði þekkjast nánast allir og samheldnin er mikil. Fólkið er meðvitað um samborgara sína og vini, deilir með þeim gleði og sorgum, sigrum og ósigrum, og fylgist með lífs- hlaupinu meira en gerist og gengur á stærri stöðum. Þetta allt á við um okkur Björn og ég hef fylgst með al- varlegum veikindum hans og líðan og baráttu bæði í sam- tölum við hann og fréttum af honum. Ég heimsótti Björn á Heil- brigðisstofnun Fjallabyggðar fyrir stuttu og ætlaði ekki að þreyta hann með löngu samtali. Samt fór það svo að það teygð- ist úr spjalli okkar um gamla tíma í bæjarpólitíkinni og bæj- arlífinu almennt. Þar var meðal annars rifjuð upp farsæl sam- vinna okkar tveggja sem bæj- arfulltrúa þegar við lagfærðum skuldastöðu bæjarsjóðs með sölu á bæði raf- og hitaveitu bæjarins. Það mál studdi Björn dyggilega og vel þrátt fyrir setu í minnihluta. Ég hygg að allmargir Sigl- firðingar sem eru fæddir eftir miðja síðustu öld hafi notið vel- vildar og þjónustu Björns sem sparisjóðsstjóra. Lipurð hans og vilji til að leysa hvers manns vanda og liðka til var vel þekkt- ur. Samfélagsvitund hans og áhugi á vexti og uppgangi Siglu- fjarðar og velferð samborgara var í forgangi hjá honum. Í þessu sambandi má einnig nefna uppbyggingu fyrirtækja í bænum og þekkt er þátttaka Sparisjóðsins í vexti og viðgangi Þormóðs ramma hf. sem var örugglega litlum sparisjóði of- viða þegar mest var umleikis hjá fyrirtækinu en áhuginn hjá Birni á þessari nauðsynlegu at- vinnuuppbyggingu í heimabæn- um fleytti því fram. Ég starfaði með Birni á ýms- um sviðum s.s. í bæjar- og fé- lagsmálum og aldrei bar þar skugga á þótt við fylgdum ekki sama stjórnmálaflokknum. Í huga Björns voru siglfirskar rætur okkar og sameiginlegur áhugi á að gera vel fyrir bæinn öllum öðrum lögmálum yfir- sterkari. Björns verður sárt saknað af öllum sem honum kynntust og varla eru til betri eftirmæli. Við Oddný þökkum Birni ára- langa samfylgd og vináttu. Rak- el, einkadóttur hans, og fjöl- skyldu hennar, svo og öllum öðrum ættingjum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Og þegar leiðin mín loksins er öll og leystur úr fjötrum er andinn, þá bergmálið yfir mér, bláskyggðu fjöll, og bárur, gjálpið við sandinn. (S. HJ.) Kristján L. Möller. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Takk fyrir fyrir allt kæri vin- ur. Konráð Karl Baldvinsson og Erla Hafdís Ingimarsdóttir. Það hefur verið haft á orði að þeir sem ólust upp á Siglufirði á síldarárunum hafi sterkari taugar til staðarins en síðari kynslóðir. Það væri ekkert und- arlegt að þeir sem ólust upp við drekkhlaðna síldarbáta, iðandi mannlíf og að allir sem gátu staðið í lappirnar voru drifnir í vinnu tengdust sterkum bönd- um. Fæðingarárgangur 1945 á Siglufirði var stór en við fermd- umst saman 70. Eins og aðrir árgangar höfum við reynt að hittast reglulega. Nú er skarð fyrir skildi þar sem Björn Jón- asson hefur kvatt okkur. Framtakssemi Björns kom snemma í ljós og hann var fæddur leiðtogi. Þannig stóð hann t.d. fyrir því að bekkurinn hans í barnaskóla lét taka bekkjarmynd, sem var nýlunda á Siglufirði, sem var færð Jó- hanni Þorvaldssyni, kennara bekkjarins. Árin liðu og hóp- urinn dreifðist. Björn bjó hins vegar alla tíð á Siglufirði. Það voru gleðitíðindi þegar hann kvæntist bekkjarsystur okkar, Guðrúnu Margréti Ingimars- dóttur, jafnan kölluð Bettý, og þau stofnuðu heimili þar. En ör- lögin höguðu því þannig til að hamingja þeirra varð skamm- vinn þar sem Bettý lést úr krabbameini árið 1976. Eftir stóð Björn ásamt fósturdóttur sinni, Rakel, barnungri. Hann lét það hins vegar ekki buga sig og saman tókust þau á við lífið. Síðar kynntist Björn seinni konu sinni, Ásdísi Kjartansdótt- ur, sem gekk Rakel í móður- stað. Árgangur ’45 hittist 2005 í garðinum hjá þeim hjónum á Suðurgötunni og næsta stóraf- mæli skipulagt árið 2015. Engan óraði þá fyrir því að hvorki Björn né Ásdís kæmu til með að taka þátt í þessum væntanlega fagnaði en Ásdís lést úr krabba- meini í ágúst á sl. ári. Eins og vikið var að hér í upphafi þá berum við öll sterkar taugar til fæðingarstaðar okkar og erum þakklát fyrir allt það sem Björn lagði af mörkum fyr- ir hann. Á litlum stöðum eru menn eins og hann ómetanlegir. Hann var allt í öllu, sparisjóðs- stjóri, í bæjarstjórn, kórfélagi, félagi í Kiwanishreyfingunni, Frímúrarareglunni og áfram mætti telja. Saman voru þau hjón einn af máttarstólpum þessa litla samfélags. Glæsilegt heimili þeirra var í raun gesta- stofa enda stór vinahópur sem náði langt út fyrir landsteinana. Þangað var alltaf gott að koma og móttökurnar ævinlega hlýj- ar. Þar ríkti alltaf bjartsýni og jákvæðni þrátt fyrir að þau hefðu kynnst mótlæti í gegnum tíðina. Það er sorglegt til þess að hugsa að þeim hafi ekki auðnast að fá að njóta þess að eldast í faðmi fjölskyldu sinnar og sjá barnabörn sín, Björn og Maríu Lísu, sem þau dáðu og dýrkuðu, vaxa úr grasi. Það er þó huggun harmi gegn að það veganesti sem þeim var gefið var nærandi og gefið af miklum kærleik. Eftir andlát Björns sitjum við nú og berum hryggð í hjarta með brennandi spurning- ar á vörunum um tilgang þessa lífs. Það væri hins vegar ekki í anda Björns að dvelja við, held- ur horfa fram á veginn. Við er- um því ekki í nokkrum vafa um að hann mun, frá þeim stað þar sem hann er nú, fylgjast með gamla síldarbænum sínum verða æ blómlegri með degi hverjum. Elsku Rakel og fjölskylda, hugur okkar er hjá ykkur. Minning um góðan dreng lifir. Fyrir hönd árgangs ’45, Valtýr Sigurðsson, Þorkell Hjörleifsson. Fyrstu kynni mín af Birni Jónassyni munu hafa orðið er ég kom til Siglufjarðar snemma árs 1967, sem nýr frambjóðandi til Alþingis. Björn var þá liðlega tvítugur en hafði þegar skipað sér í forystusveit sem formaður ungra sjálfstæðismanna á Siglu- firði. Hann var vasklegur ungur maður, hiklaus og djarfhuga og átti eftir að láta mikið að sér kveða fyrir sína heimabyggð. Björn varð snemma virkur félagsmálamaður og að fáum ár- um liðnum í forystu sjálfstæð- ismanna í bæjarstjórn Siglu- fjarðar, sat í bæjarstjórn í nær aldarfjórðung, þar af forseti bæjarstjórnar í 13 ár. Hann starfaði einnig að málefnum Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, sat m.a. í miðstjórn í tíu ár. Auk hinna pólitísku starfa var hann m.a. starfsmaður Sparisjóðs Siglufjarðar í 35 ár, þarf af sparisjóðsstjóri í 22 ár. Nær alla starfsævi sína vann Björn að hagsmunamálum Siglufjarðar og Siglfirðinga. Hann var þaul- kunnugur, nærri því samgróinn öllum málefnum bæjarins, auk persónulegra tengsla sparisjóðs- stjórans, sem hann bar aldrei á torg. Ég hygg að ég hafi varla komið til Siglufjarðar á þing- mannsárum mínum án þess að hitta Björn Jónasson. Það var gott að leita til hans, hann var hreinskiptinn, ráðhollur og traustur. Tæplega var nokkur annar kunnugri þeim málum sem við var að fást hverju sinni. Hann var auðvitað framar öðru maður sinnar heimabyggðar og skipti þar litlu þótt stutt væri í uppruna hans frá öðrum byggð- arlögum. Hann var glaðsinna og skemmtilegur félagi og gott að vera í návist hans. Við Helga nutum þess að vera gestir á heimili þeirra hjóna, Björns og Ásdísar, sem einnig er horfin af heimi. Þar áttum við ljúfar stundir sem ekki gleymast. Heimilið og við- mót þeirra hjóna einkenndist af gleði, rausn og hlýju. Þegar Björn hefur nú kvatt fyrir aldur fram fylgja honum kveðjur mínar og þakkir fyrir vinakynni og samskipti okkar öll á langri leið. Blessuð sé minning þeirra hjóna Ásdísar Kjartansdóttur og Björns Jónassonar. Pálmi Jónsson. Björn Jónasson, fv. spari- sjóðsstjóri, lést langt fyrir aldur fram þann 10. júlí sl. eftir erfiða baráttu við krabbamein. Þó að Björn hefði misst bæði fyrri og seinni eiginkonu sína úr sama sjúkdómi, þá barðist hann hetjulega við sjúkdóm sinn, þó hann vissi að sú barátta yrði erfið. Hann gladdist yfir hverj- um degi og sýndi okkur sem vorum í sambandi við hann hvað lífið er dýrmætt. Þegar Björn fékk vitneskju um að sjúkdóm- urinn hefði náð yfirhöndinni og hvíldin væri handan við hornið, þá sýndi hann ótrúlegt æðru- leysi og sátt með sitt hlutskipti. Þegar hann kvaddi okkur þá brýndi hann fyrir okkur að virða og njóta lífsins til hins ýtr- asta. Björn starfaði í Sparisjóði Siglufjarðar í 32 ár og var spari- sjóðsstjóri í 22 ár. Þessi ár voru bæði góð og erfið. Erfiðleikar í rekstri fyrirtækja og fólksfækk- un mikil á þessum árum á Siglu- firði. Þá var ekki öfundsvert að vera í sporum Björns, sem þurfti oft að takast á við erfið viðfangsefni. En þá komu eig- inleikar hans vel í ljós. Hann lagði ávallt kapp á að leysa úr málum í eins mikilli sátt og unnt var. Með það að leiðarljósi að vinna sem best að hagsmunum viðskiptavina sparisjóðsins og sjóðsins sjálfs og síns heima- bæjar. Hann trúði alltaf að Siglufjörður ætti bjarta framtíð. Í tíð Björns sem sparisjóðs- stjóra hófst fjarvinnsla spari- sjóðsins. Þannig að Björn lagði grunninn að þeirri miklu grósku í fjarvinnslustörfum sem nú eru á Siglufirði, en í dag eru um 40 heilsársstörf í fjarvinnslu eða ríflega 5% af vinnumarkaðinum á Siglufirði. Ég og samstarfsmenn Björns þökkum Birni fyrir samstarfið á liðnum árum. Björn var góður yfirmaður og það var gott að vinna undir hans stjórn. Fjölskyldu Björns eru færðar innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Jónsson. Við kveðjum í dag félaga okk- ar og vin, Björn Jónasson. Björn var ráðinn innheimtu- stjóri RARIK árið 2005, en hafði áður unnið sem ráðgjafi fyrir RARIK um tíma. Hann gegndi starfi innheimtustjóra til ársins 2012 er hann fór í hluta- starf og sinnti í framhaldinu ýmsum verkefnum þar til hann hætti alfarið störfum á síðast- liðnu ári. Björn var reynslumikill í við- skiptum og sveitarstjórnarmál- um þegar hann kom til RARIK en sú reynsla nýttist honum sérstaklega vel í starfi inn- heimtustjóra. Honum farnaðist vel í samskiptum við viðskipta- vini þótt þau væru ekki alltaf auðveld í starfi hans. Björn var þeim eiginleika gæddur að hann var ávallt tilbúinn til þess að leita lausna á vandamálum sem upp gátu komið og gat oft leyst úr málum sem öðrum virtust torleyst. Björn varð strax mikill RA- RIK-maður, en auk þess var hann fyrst og fremst Siglfirð- ingur, stoltur af því og ófeiminn við að láta það í ljós. Hann var hafsjór af sögum og vinsæll og nutum við samstarfsmenn hans þess að fá hann til leiðsagnar um Siglufjörð til að segja sögu bæjarins. Björn lét sig ekki vanta á fundum félagsins eða öðrum mannamótum og mætti síðast á aðalfund RARIK í mars síðastliðinn, þrátt fyrir veikindi. Við samstarfsmenn Björns þökkum honum ánægjulega samfylgd, vináttu hans og hlý- hug gagnvart okkur öllum. Fjöl- skyldu hans sendum við inn- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsmanna hjá RA- RIK, Tryggvi Þór Haraldsson. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.