Morgunblaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014 Bakari Yfirbakari óskast Bakarí á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir yfir- bakara til starfa. Leitað er eftir áhugasömum, duglegum, skipulögðum og metnaðarfullum einstaklingi. Kostur er ef viðkomandi hefur reynslu úr sambærilegum störfum. Sendið svar á yfirbakari@mail.com. Fyllsta trúnaðar verður gætt í öllum samskiptum. Eskifjarðarsókn, Austurlandsprófastsdæmi Organisti Eskifjarðarsókn óskar að ráða organista og kórstjóra í 32% starf. Messur eru tvær í mánuði og kóræfingar einu sinni í viku. Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2014. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í september 2014. Allar nánari upplýsingar gefur formaður sóknarnefndar, Gísli M. Auðbergsson, sími 476 1666 póstfang: gisli@rettvisi.is Sóknarnefnd Eskifjarðarkirkju. Frystiklefi Ísfélag Vestmannaeyja hf Vestmannaeyjum, óskar eftir tilboði í frystiklefa og flokkunar- stöð ásamt þjónusturýmum samtals ca. 4000 m², sem fyrirtækið ætlar að byggja í Vestmannaeyjum. Tilboðið felur í sér jarðvegs og steypuvinnu, framleiðslu og reisningu á burðarvirki og klæðningum fyrir útveggi, innveggi, þaki, hurðum og gluggum. Áætlað upphaf verks er 1. september 2014 og skal verkinu að fullu lokið 30. april 2015. Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Páls Zóphóníassonar ehf , Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum, frá og með þriðjudeginum 22. júlí 2015. Tilboð merkt “Frystiklefi” skal skila á Skrifstofu Ísfélags Vestmannaeyja hf, Strandvegi 28, 900 Vestmannaeyjum eigi síðar en mánudaginn 11. ágúst 2015 kl. 14.00 og verða opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Til sölu Til sölu er Vilberg bakarí í Vestmannaeyjum. Vilberg bakarí er í fullum rekstri og til sölu er fasteignin að Bárustíg 7 þar sem bakaríið og verslun þess er til húsa í dag og öll tæki og lausafé tilheyrandi rekstrinum. Fasteignin að Bárustíg 7 (Pálsbúð) er tveggja hæða steypt hús í miðbæ Vestmannaeyja og skv.fasteignaskrá 529 fm, bílastæði eru á lóð. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Helgi Bragason, hrl, Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum, sími: 488 1600, fax: 4881601, netfang: hb@eyjar.is Lausar kennarastöður við Grunnskóla Snæfellsbæjar Í Grunnskóla Snæfellsbæjar eru lausar eftirfarandi stöður: 100% staða myndmenntakennara tímabundin í eitt ár og 60% staða textílmenntakennara. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans www.gsnb.is og á Fésbókarsíðu skólans, https://www.facebook.com/grunnskolisnaefellsbaejar?ref=hl er að finna myndir úr starfi hans og annan fróðleik. Nánari upplýsingar veitir Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar í síma 894 9903 eða á póstfanginu maggi@gsnb.is. Umsóknarfrestur til og með laugardeginum 2.ágúst Minnt er á eftirfarandi grein í lögum um grunnskóla nr. 91 frá 2008: „Óheimilt er að ráða til starfa við leikskóla/grunnskóla einstakling sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.“ GRUNNSKÓLI SNÆFELLSBÆJAR Ertu efnakona? Þjónustulunduð og hefur gaman af handa- vinnu? Þá ertu manneskjan sem við leitum eftir. Um er að ræða vinnu bæði allan daginn og part úr degi í Föndru, Dalvegi 18, Kóp. Umsóknir, ásamt mynd, sendist á fondra@fondra.is Afgreiðslufólk Sandholtsbakarí auglýsir eftir afgreiðslufólki í kaffihús. Ekki er um að ræða sumarstarf. Íslenskukunnátta ekki skilyrði Áhugasamir sendið tölvupóst á ingisand@gmail.com Starfsmaður Starfsmann vantar til starfa í Noregi! Suðurverk hf. óskar eftir að ráða starfsmann vanan efnisvinnslu (mölun) til starfa í Noregi. Þarf að hafa vinnuvélaréttindi og góða þekkingu á efnisvinnslu og viðhaldi slíkra tækja. Umsóknir skulu berast á skrifstofu okkar að Hlíðarsmára 11 eða senda þær á vef okkar www.sudurverk.is Framleiðslustjóri óskast Gæðabakstur/Ömmubakstur óskar eftir framleiðslustjóra til starfa sem fyrst. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi í framtíðarstarf. Framleiðslustjóri sér um vöruþróun og daglegan rekstur á framleiðslustarfsemi fyrirtækisins. Þar fellur undir: verkstjórn, innkaup, starfsmannahald. Hæfniskröfur: – Menntaður bakari – Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð – Áreiðanleiki og frumkvæði – Hæfni í mannlegum samskiptum – Geta til að vinna undir álagi Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á villi@gaedabakstur.is fyrir 25.7. 2014. Grunnskóli Raufarhafnar auglýsir eftir starfsfólki Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn grunn- og leikskóli með 12 nemendur þar sem Uppbyggingarstefnan er höfð að leiðarljósi. Skólinn nýtur mikils stuðnings frá samfélaginu og leggjum við áherslu á samvinnu sem og jákvæðni. Við auglýsum eftir matráð í 55% stöðu. Í starfinu felst umsjón með morgunmat og hádegismat 4 daga vikunnar ásamt skúringum á eldhússvæði. Við leitum að pólsku- og íslenskumælandi stuðningsfulltrúa til að aðstoða nýjan nem- anda í námi. Um hlutastarf er að ræða. Einnig leitum við að leikskólakennara í fullt starf. Viðkomandi þarf að vera barngóður, sveigjanlegur og íslenskumælandi. Upplýsingar veitir Frida Elisabeth Jörgensen skólastjóri í síma 694 9063 og frida@raufarhofn.is Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2014 Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.