Morgunblaðið - 19.07.2014, Page 52
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 200. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Telja lík ferðamannsins fundið
2. „Áttum að vera í þessari vél“
3. Stúlkurnar voru ekki í bílbeltum
4. „Þetta eru ekki hamfarir …“
Listfræðingurinn Rakel Péturs-
dóttir leiðir gesti um sýninguna Spor
í sandi á morgun kl. 14 í Listasafni Ís-
lands að Fríkirkjuvegi 7. Þar má sjá
lykilverk Sigurjóns Ólafssonar en
hann var meðal allra áhrifamestu
listamanna Íslands á eftirstríðs-
árunum, en grunninn að listsköpun
sinni lagði hann í Danmörku á fjórða
og fimmta áratug liðinnar aldar. Auk
þess að taka virkan og mótandi þátt í
danskri framúrstefnulist á þeim við-
sjárverðu tímum þegar Danmörk var
hernumin, var hann alla ævi í farar-
broddi íslenskrar höggmyndalistar.
Sýningarstjórar eru Birgitta Spur og
Æsa Sigurjónsdóttir.
Leiðsögn um Lista-
safn Íslands
Jón Axel Björnsson sýnir nýjar
„Gouash“-vatnslitamyndir á kaffi-
húsinu Mokka frá 18. júlí til 21. ágúst
nk. undir yfirheitinu Svarti kassi
Mokka. Myndirnar eru allar málaðar
undanfarna mánuði og saman-
stendur hvert verk af þremur mynd-
um. Jón Axel er fæddur 2. febrúar
1956 í Reykjavík. Hann nam við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
1975-1979. Einnig
hefur hann kennt
við MHÍ og LHÍ
1985-1999 og
Myndlistaskólann
í Reykjavík
1995-2000.
Sýningin er
opin daglega
frá kl. 9 til 21.
Myndlistarsýning á
kaffihúsinu Mokka
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustanátt 5-13 m/s, hvassast með suðurströndinni. Rigning
eða súld með köflum og líkur á þokulofti með suður- og suðausturströndinni.
Á sunnudag Hæg austlæg átt og víða bjart með köflum en þykknar upp austantil og fer
að rigna þar um kvöldið. Hiti 12 til 19 stig.
Á mánudag Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en rigning norð-
anlands í fyrstu og lítilsháttar súld eða þokumóða sunnantil. Hiti 12 til 20 stig.
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
bolta sigraði það skoska í undan-
úrslitum Evrópukeppni smáþjóða í
gær. Ísland leikur því til úrslita í
mótinu í dag og mætir þar Austurríki.
Helena Sverrisdóttir lék sinn 50.
landsleik í gær. Henni finnst synd að
leikirnir séu ekki orðnir fleiri hjá sér
en landsleikir hafa verið fáir síðustu
ár. »2
Ísland mætir Austurríki
í úrslitum í dag
Þremur efstu liðum 1. deild-
ar karla í knattspyrnu mis-
tókst öllum að vinna leiki
sína í gærkvöld. Leiknir
gerði 2:2-jafntefli við
Grindavík, Selfoss vann ÍA,
1:0 og HK og KV skildu jöfn,
1:1. Þar með hefur Leiknir
sex stiga forskot á ÍA og HK
sem eru í 2. og 3. sæti eftir
12 leiki. Leiknismenn segja
ekki annað í boði úr þessu
en að fara upp um deild. »3
Ekkert topp-
liðanna vann
Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet
Einarsdóttir taka nú annað sumarið í
röð þátt í dönsku deildarkeppninni í
strandblaki og hafa þegar unnið tvö
mót af þeim fjórum sem þær hafa
tekið þátt í. Þær stöllur stefna á að
keppa á Ólympíu-
leikunum
2020. »1
Berglind og Elísabet
vekja athygli í Danmörku
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Hið árlega Símamót, knattspyrnu-
mót stúlkna í 5., 6. og 7. flokki, er
haldið í 30. sinn nú um helgina. Mót-
ið var sett á fimmtudagskvöld en
keppni hófst í gærmorgun í Smár-
anum, Kópavogi. Á mótinu keppa
hátt í tvö þúsund stúlkur frá 276 lið-
um alls staðar af landinu, en það er
fimmtán prósent fjölgun keppenda
frá því á seinasta ári. Aldrei hafa
fleiri skráð sig til leiks á mótinu, sem
er að sögn Einars Sigurðssonar
mótsstjóra fjölmennasta helgarmót
landsins. Búist er við ríflega tíu þús-
und gestum í Kópavogsdal um
helgina.
Hressilega rigndi á þátttakendur
og gesti mótsins í gær, en Einar seg-
ir það þó ekki hafa sett strik í reikn-
inginn. „Þetta er bara fótbolti. Menn
spila hann við hvaða aðstæður sem
er og í hvaða veðri sem er, þess
vegna er hann vinsælasta íþrótt í
heimi,“ segir hann. Einar segir veðr-
ið aðallega bitna á völlunum, sem
geti orðið að hálfgerðu drullusvaði ef
ekki stytti upp. Hann segir stemn-
inguna á mótinu þó mjög góða þrátt
fyrir veður. „Stelpurnar eru bara að
skemmta sér og það skín bros úr
hverju andliti. Þær eru kannski
blautar, en brosið er til staðar,“
segir hann.
Taka þetta á jákvæðninni
Sveinborg Hauksdóttir, liðsstjóri
stúlknaliðs Álftaness, segir mik-
ilvægt að láta veðrið ekki hafa áhrif
á hópinn. „Við í Álftanesliðinu erum
búin að koma okkur fyrir hérna inni
með vallarnesti og kaffi og reynum
að vera með allan hópinn saman,“
segir hún. „Við ætluðum reyndar að
vera með veislutjald hér fyrir utan
til að geyma dótið okkar í, en það
hefði bara fokið í svona veðri.“
Stöllurnar Sandra Björg Axels-
dóttir og Margrét Lukka Brynjars-
dóttir voru í hópi foreldra og dyggra
stuðningsmanna heimaliðsins,
Breiðbliks. Þrátt fyrir veðrið í gær
voru þær léttar í lund. „Maður tekur
þetta bara á jákvæðninni,“ segir
Sandra. „Við erum bara fegnar að
þurfa ekki að gista í fellihýsi hér fyr-
ir neðan og geta farið heim til okk-
ar.“
Mótið stendur fram á morgundag-
inn, en þá fara fram úrslitaleikir í
öllum flokkum. »12
Metþátttaka á Símamótinu
Tvö þúsund
keppendur frá 276
liðum Búist við
tíu þúsund gestum
Morgunblaðið/Þórður
Úrhelli Hressilega rigndi yfir þátttakendur og gesti Símamótsins í gærdag, en veðrið virtist ekki hafa áhrif á góða
stemningu sem finna mátti á svæðinu. Keppnisskapið var mikið og mátti víðs vegar heyra hvatningarhróp foreldra.
Morgunblaðið/Þórður
Einbeiting Mótið fer fram í Smáranum, Kópavogi og er í umsjón knatt-
spyrnudeildar Breiðabliks. Keppt er bæði innandyra og úti.
Skannaðu kóðann
til að sjá mynd-
skeið frá mótinu