Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Qupperneq 2
Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.8. 2014 Mér finnst það ekki nógu gott. Það er til nóg af góðu kjöti á Íslandi Leon Kemp, 42 ára. Mér finnst það bara fínt, það er ekkert að því. Hermann Guðmundsson, 38 ára. Ég vil hefta allan innflutning á erlendu kjöti. Ég held að við ættum að hafa það að mark- miði að brauðfæða þjóðina og að koma í veg fyrir allskyns sýkingar. Erla Sigvaldadóttir, 64 ára. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Það er bara erfðabreytt og ógeðslegt. Eyþór Mikael, 18 ára. Morgunblaðið/Árni Sæberg SPURNING DAGSINS HVAÐ FINNST ÞÉR UM ERLENT KJÖT SEM SELT ER Á ÍSLENSKUM MARKAÐI? Áunninn athyglis- brestur er ekki til sem sálfræðileg skilgreining. Með auknu áreiti í um- hverfinu upplifa þó margir erfiðleika við að einbeita sér og halda athygli á til- teknu viðfangsefni. 46 Í BLAÐINU Brautskráningar úr háskóla Heimild: Hagstofa Íslands (brautskráningar á háskólastigi og doktorsstigi) 2001-2002 2011-2012 87,15 % 2.195 4.108 Hvert er þitt hlutverk á Jazzhátíðinni? Ég er hluti af mjög skemmtilegu verk- efni sem sett var saman af þeim Nicole Johänntgen og Pétri Grétarsyni, sem felst í því að gera konur sýnilegri í jazzheiminum. Nicole, sem er þýskur saxófónleikari, er stofnandi SOFIA - Support of female improvising artist. Það eru samtök sem einbeita sér í því að hvetja ungar konur í jazztónlist. Hún hitti Pétur á ráðstefnu fyrr á árinu og bar þar upp hugmyndina um að búa til eitthvað verkefni á Ísland. Úr varð band sem samanstendur af Nicole, enska trommarann Daisy Palmer og norska bassaleikarann Ellen Andreu Wang, mér sjálfri og eru hinir meðlimir bandsins þær Þórdís Gerður Jónsdóttir selló- leikari, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fiðlu-, básúnu- og panderoleikari og Anna Gréta Sigurðardóttir píanóleikari.Við munum flytja eigin tónsmíðar úr smiðjum hver ann- arar í útsetningum fyrir þennan hóp hljóðfæraleikara. Nú er að fara af stað kvenleg dagskrá á Jazzhátíð Reykjavíkur, hvers vegna er þörf á henni? Nú síðastu ár, og þá sérstaklega þetta síð- asta, hefur farið af stað bylgja af ýmisskonar kvenlegri hvatningu, til að mynda í flestum starfstéttum sem og mannréttindabaráttu. Þetta kemur bæði frá konum og körlum. Félagið KÍTÓN - Konur í tónlist, var sett á laggirnir í fyrra og hafa þær gert mjög góða hluti í að koma konum á framfæri og hvetja þærÉg hef kennt ótal mörgum stúlkum og finnst mér rauði þráðurinn sem tengir þær flestar oft vera sá að þær eru svolítið feimnar við að „kýla á það“ og bara leyfa sér að láta allt flakka. Þær vilja gera hlutina svo ofboðslega vel, sem er góður kostur, en getur staðið í vegi fyrir því að hafa sjálfstraustið til gera bara hlutina eins og þeir eru. Fullkomnun er ekki nauðsynleg, og mistökin geta verið skemmtilegust. Strákarnir í kringum mig glíma við sömu vandamál en einhvern veginn eru þeir betri í að ýta því til hliðar. Ég þekki þetta sjálf og er stöðugt að vinna í þessu. Þess vegna er gott að hafa svona samtök eins og KÍTÓN og SOFIA sem efla tengslin kvenna á milli sem og bara almennt við múss- ísenuna. Er skortur á konum í jazzsenuna? Það eru margar frábærar og hæfileikaríkar konur sem spila á Íslandi en hlutfall miðað við karlmenn er tölu- vert minna. Ég myndi ekki segja að miðað við það væri færri konur að spila á Jazzhátíð. Staðreyndin er bara svolítið sú að einhvers staðar á leiðinni hellast konur úr lestinni, í náminu eða á framabrautinni. Ég hef þó á tilfinningunni að þetta sé að breytast. Til dæmis er hlutfall kven- og karlkyns blásara við Tónlist- arskóla FÍH smám saman jafnast út, og þær eru að koma sterkar inn á önnur hljóðfæri smám saman. En eitt er víst að sá þáttur að gera konur sýnilegri er alltaf jákvæður og á það líka við um alla minnihlutahópa á öllum sviðum. Ungt fólk þarf sínar fyrirmyndir og getur það haft áhrif að sjá til að mynda alltaf bara karlmenn á trommur og bassa. Sem dæmi spila ég á mjög stóran lúður sem mörgum finnst skrítinn og í hugum sumra myndi hann kannski seint flokkast sem kvenlegt hljóðfæri. En ég fæ frábær viðbrögð frá ungum stúlkum sem horfa stórum augum á þetta hljóðfæri og vonandi sjá að það skiptir engu máli hver þú ert, hvaðan þú kemur eða hvernig þú lýtur út, það getur hver sem er spilað á hvað sem er svo lengi sem hæfileikinn og vinnusemin er til staðar. Ásdís Rán fékk sent bréf frá þér fyrir ekki svo löngu síðan, hvað stóð í því bréfi og hvers vegna sendirðu það? Þetta er kannski svolítið skylt þessu sem ég er búin að vera að tala um. Þ.e.a.s. að fólk þarf sínar fyrirmyndir og það er nú svo að slæmar fyrirmyndir og röng skila- boð geta haft margfalt verri afleiðingar en þær góðu. Það var nú bara þannig að ég rakst á einhverja frétt í gegnum fésbókina um nýjan þátt sem var í pípunum. Þessi nýi þáttur hafði að mér fannst það að markmiði að segja konum að vera ekki ánægðar með sjálfan sig eins og þær eru skapaðar. Mér fannst þetta bara of mikið og skrifaði henni bréf þess efnis. Ég er alls ekki á móti lýtaaðgerðum þegar við á en mér finnst óþarfi að troða þessu inn á heimili fólks. Ungar stúlkur og drengir fá nóg áreiti um líkamsímyndir annarsstaðar frá. Mér finnst þetta líka tímaskekkja á tímum þegar mörg fyrirtæki eru taka skurk í auglýsing- arherferðum sínum til að fagna fjölbreytileika. Nú hef ég ekki séð þennan þátt en ég vona innilega að Ásdís Rán sé að gera góða hluti þar og tala m.a. um mikilvægi þess að vera sáttur í eigin skinni. RÓSA GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Fleiri konur í jazz Morgunblaðið/Þórður Forsíðumyndina tók xxxxxxxxx Danskennarinn Brynja Pétursdóttir er neytandi vikunnar. Hún fellur oft í freistni við ískistur matvörubúð- anna en dreymir um að eignast hús á tveimur hæðum með rennibraut á milli og sund- laug í garðinum. Fjármál 38 Þekktir glæpasagnahöfundar hafa boðað komu sína á Iceland Noir glæpasagnahátíðina sem haldin verður í Reykjavík í nóvember. Bækur 58 Enginn verður svikinn af því að gæða sér á góm- sætum og girnilegum tapasréttum á hin- um ýmsu veit- ingastöðum í Ma- drid á Spáni. Ferðalög 18 Rósu Guðrúnu Sveinsdóttur er margt til lista lagt. Hún er söngkona, saxófónleikari, flautuleikari, tón- skáld og gítarglamrari og vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem kemur út í september. Rósa er hluti af djassbandi sem stígur á svið á Jazzhátíð Reykja- víkur sem nú stendur yfir. Þetta er í fyrsta sinn sem Jazzhátíð Reykjavíkur skartar heilu bandi bara skip- uðu konum. Þó hafa margar konur spilað á Jazzhá- tíð og margar þeirra verið í forsvari fyrir sín bönd.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.