Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Blaðsíða 35
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
M
ikið sem það var nú notalegt að
komast aftur í sokkabuxurnar
og háu leðurstígvélin eftir
þessa fjóra sumardaga. Ég veit
bara ekki hvort maður hefði lifað það af
mikið lengur að spranga um berleggj-
aður í kjól og háhæluðum skóm. Góða
veðrið gerði það einhvern veginn að
verkum að mann langaði bara til
að liggja heiladauður við sund-
laugarbakkann, lesa bækur og
grilla. Það segir sig sjálft að slík
hegðun gengur náttúrlega bara
í fjóra daga … ekki mínútu
lengur.
En það er alveg óhætt að
anda léttar, sýnist þessi tíma-
bundna truflun á daglegum
störfum vera yfirstaðin og þá
er hægt að halda áfram með til-
veruna eins og ekkert hafi í
skorist.
Hausttískan er á leiðinni í öllu
sínu veldi. Þegar heitustu tísku-
straumar alvöru hátískuhönnuða
eru skoðaðir fer það ekki á milli
mála að veturinn verður stórbrotinn.
Flestir hátískuhönnuðir eru svolítið að
vinna með gull og svart. Þetta lúkk
minnir svolítið á Bond-
gellur níunda áratugarins
sem þóttu almestu gellur
sem fyrirfundust á jarð-
kringlunni.
Í íslensku kvikmyndinni
Stikkfrí sem frumsýnd var 1997, sem ég
horfi reglulega á með fjársjóðnum mínum,
er mesta gellan í myndinni dálítið að vinna með
þetta Bond-gellulúkk. Um er að ræða hræðilegu
eiginkonu týnda föðurins sem leikin er af Maríu Ell-
ingsen. Sú rekur snyrtivöruverslun í Kringlunni og
er módel. Á þeim tíma var líklega ekki hægt að kom-
ast neitt hærra í metorðastiganum. Hún
gengur um með svört sólgleraugu inni, er í
80 den sokkabuxum við svart pils og jakka
með gulltölum. Auðvitað er hún svo í ekta
flugfreyjuhælaskóm við.
Þetta Bond-gellulúkk hentar vel fyrir ís-
lenskar aðstæður enda eru íslenskar konur
auðvitað alltaf í svörtu. Til þess að taka
þetta alla leið er ekki úr vegi að skipta um
tölur á svarta, aðsniðna jakkanum og setja
gulltölur í staðinn. Svo er um að gera að
hlaða á sig gullskartgripum og þær sem
eiga gamlar Moschino-töskur uppi í skáp
eru beðnar um að draga þær fram nú þegar. Nú er sko tíminn, setja
hárið svo upp í pulsu, setja á sig rauðan varalit og panta
sér vodka í appelsínudjús á barnum (þær sem eru á snúr-
unni halda bara áfram að drekka vatn).
martamaria@mbl.is
Bondgellur til
sjávar og sveita
sameinast
Taska frá Gucci. Gullkeðjan og
dúskarnir gera töskuna sjarmerandi.
Belti og tösk-
ur frá Mosch-
ino eru komin
í tísku á ný.
Kjóll frá Ver-
sace fær
hjartað til að
slá hraðar.
Hringur frá Kenzo. Hann
fæst á net-a-porter.com.
Leðurlíning-
arnar setja
svip sinn á
þennan kjól.
Dragt frá Victo-
riu Beckham
fæst á net-a-
porter.com
Armband
frá Gucci.
Veski frá Roberto
Cavalli. Þessi litli
tígrisdýrahaus á
veskinu gerir allt.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
www.spennandi.com
opið: mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
MC PLANET
er komið aftur!
Mama b er ítalskt merki sem er að slá í
gegn - flott snið, æðisleg efni, góð verð!
Handunnir íslenskir skartgripir úr silfri
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Verð 25.500,- Verð 25.600,-Verð 14.800,-
Verð 34.900,-
Verð 29.900,- Verð 25.700,-
Verð 25.700,-
Verð 17.900,-
Verð 17.900,-
Verð 18.900,-
Verð 17.900,-
Verð 25.700,-
Verð 19.900,-
Verð 14.800,-