Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Blaðsíða 19
* Fyrstu tapasréttirnirvoru brauðbitar ogkjötflísar sem voru not-
aðar til að skýla sérríglös-
um frá ávaxtaflugum.
Þessi goðsagnakenndi tapasbar hefur fullnægt matarþörf Madrínga í meira
en 110 ár og ómögulegt er að láta sér ekki líka við huggulegt og gamaldags
andrúmsloftið og húsgögnin. Á veggjum hanga gamlar myndir, viðartunnur
hvíla í hornum, vínrekkar tróna yfir veitingasalnum. Að auki eru tapasrétt-
irnir fjölbreyttir og virkilega góðir. Bragðmiklir bjórar eru ferskir á krana
og að auki býður Ardosa upp á sérríglas sem enginn verður svikinn af. Vín-
in eru þó ung og úrvalið takmarkað. Á sumrin skrafa þar fastagestir á ver-
öndinni langt fram á kvöld.
Bodega de la Ardosa
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Í næstum heila öld hefur þessi
rykugi bar átt sviðið í tapas-
menningu Chueca, líflegs hverfis
við miðbæinn þar sem er að
finna stórt LGBT-samfélag. Árið
1995 birtist Antigua Casa An-
gel Sierra í einni af kvikmynd-
um Pedro Almodovar „La Flor
de mi Secreto“ (ísl. Blóm míns
leyndarmáls) og öðlaðist þannig
goðsagnakennda stöðu. Fasta-
gestir eru af öllum stærðum og
gerðum, ef svo má að orði
komast, og andrúmsloft stað-
arins getur breyst hratt. Um
hádegisbil er hægt að blanda
geði við eldri íbúa hverfisins
sem panta sér glas af vermút
og fá ókeypis ólífudisk með.
Þegar tekur að skyggja lætur
unga fólkið sjá sig, litríkt og
uppfullt af lífi. Tapasréttirnir
eru ódýrir og ferskir, ekki mjög
fágaðir.
Antigua Casa Angel Sierra
La Musa
Latina
Eitt helsta aðdráttarafl La
Musa Latina er að þar er
hægt að spila borðtennis í
kjallaranum. Andrúmsloftið
er afslappað og staðurinn er
jafnframt á afar fallegu,
gömlu torgi. Mögulegt er að
koma sér fyrir undir fallegu
tré og gæða sér á óvenju-
legum tapas-réttum á borð
við kolkrabba, villisvín
og huitlacoche, mexí-
kóskan svepp sem
veldur sót-
sveppasýki í korn-
plöntum.
Vi er spænska orðið fyrir vín þar sem end-
ingunni „no“ er sleppt. Hér verður ekki tek-
in afstaða til þess hvort þetta sé mjög kúl nafn
á tapasstað. Einn fremsti kokkur Katalóníu, Sergi
Arola, rekur Vi Cool og þar er að finna marga af
framsæknustu sælkera-tapas-réttum Madrídar.
Réttirnir eru jafnframt bornir óaðfinnanlega fram.
Vi Cool er aðeins fyrir sunnan Puerta del Sol í
hjarta miðborgarinnar. Vi Cool er smekklega
hannaður og þar má sjá glæsilegar konur snæða
hádegisverð, á kvöldin fyllist staðurinn af evrópsk-
um hipsterum. Staðurinn sérhæfir sig að vísu frem-
ur í diskum til að deila með öðrum (raciones) en
tapas. Sex rétta tapas-matseðillinn kostar 20 evrur
og gefur góða mynd af spænsku nútímaeldhúsi.
Vi Cool