Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Page 56
Michael Jackson er
ein stærsta popp-
stjarna allra tíma.
AFP
Berglin María
Tómasdóttir
flautuleikari vill
fræða áhugasama
um líf og list
Michaels heitins
Jacksons.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Berglind María Tómasdóttir flautu-
leikari mun halda námskeið um
poppstjörnuna Michael Jackson í
Endurmenntun Háskóla Íslands í
október.
„Ég var að kenna námskeið í Kali-
forníuháskóla í San Diego. Ég var
þar í doktorsnámi í flutningi sam-
tímatónlistar sem hefur lítið með
Michael Jackson að gera. Svo þegar
komið var að máli við mig um hip-
hop-námskeið stakk ég upp á að það
yrði frekar um poppkónginn og það
er verið að kenna þetta námskeið
enn í San Diego. Ég er nefnilega for-
fallinn aðdáandi,“ segir Berglind og
bætir við að námskeiðið sé fyrir alla
þá sem hafa skoðun á og hafa hlustað
á tónlist Jacksons.
„Þetta er takmarkaður tími sem
ég er með en líf hans er sett undir
gagnrýnið ljós og hann skoðaður frá
öllum hliðum. Hans lífsskeið er svo
rosalega öfgafullt og það er alveg
hægt að halda miklu lengra nám-
skeið um líf hans en ég stikla á stóru
– sem smáu. Hann var svo mikið fyr-
irbæri,“ segir Berglind. Skráning á
námskeiðið er farin af stað en það
verður haldið dagana 7.,14. og 21.
október.
BERGLIND MARÍA TÓMASDÓTTIR
Flautuleikari með Michael
Jackson-námskeið
SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2014
Flugfarþegar sem voru á leið frá
Birmingham til Belfast hinn 12.
febrúar síðastliðinn upplifðu óþægi-
lega lendingu þegar vélin skall á
flugbrautinni með miklum hama-
gangi. Flugvélin skemmdist þó ekki
og engan sakaði en margir kvört-
uðu undan tilþrifum flugstjórans
við lendinguna. Rannsóknarnefnd
flugslysa í Bretlandi skilaði nýlega
af sér skýrslu um óhappið og í
henni er að finna skýringuna á
ógætilegri lendingu flugstjórans;
gervihandleggurinn hans datt af.
Fjallað er um málið á vef BBC.
Flugstjórinn, sem er 46 ára, hafði
stuttu fyrir lendingu aðgætt hvort
gervihandleggurinn væri kirfilega
fastur. Þegar hjól vélarinnar nálg-
uðust brautina ætlaði hann sér að
rétta hana örlítið af en hreyfingin
varð til þess að gervihandleggurinn
losnaði og datt á gólfið.
Í tilkynningu frá flugfélaginu
Flybe segir að flugstjórinn sé einn
af reyndustu starfsmönnum þess
og að öryggi farþega og annarra
starfsmanna hafi aldrei verið í
hættu. Flugstjórinn hefur jafn-
framt gefið út að hann muni sýna
fyllstu aðgát í framtíðinni.
ÓVENJULEGT ÓHAPP
VIÐ LENDINGU
Hand-
leggur
datt af
Í skýrslunni kemur fram að flugstjórinn hafi lent vélinni með annarri hendi
því ekki hafi gefist tími til að hóa í aðstoðarflugstjóra í erfiðum aðstæðum.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Alfred Molina
Leikari
Diego Maradona
Knattspyrnugoðsögn
Níels Thibaud Girerd (Nilli)
Fjölmiðlamaður
Síðumúla 33 | www.syrusson.is | Sími 588 4555