Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Blaðsíða 9
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Stibeck segir lagskipta hattana hennar Stein-
unnar minna á lagskipt hraun eftir eldgos.
*„Menningin á Ís-landi og náttúraner svo yfirburða falleg,“
segir Stibeck sem vill
upplýsa aðrar þjóðir.
Hin sænska Lisen Stibeck ferðaðist umlandið í fyrra og var tilgangur ferð-arinnar að fanga leyndardóma ís-
lenskrar náttúru. Hún hefur verið ástfangin af
Íslandi frá því að hún heimsótti það fyrst og
með ljósmyndavél að vopni vildi hún skoða og
sýna fram á sérstæðu menningararfs Íslands
og tengja saman við tísku. Ljósmyndasýning
var opnuð í vikunni þar sem afrek ferðalags
Stibecks er afhjúpað gestum og gangandi á
Þjóðminjasafni Íslands.
Myndirnar sýna gömul torfhús víða um land
sem tilheyra húsasafni Þjóðminjasafnsins auk
þess sem fyrirsætur klæðast fatnaði frá Stein-
unni Sigurðardóttur fatahönnuði. „Menningin
á Íslandi og náttúran er svo yfirburða falleg.
Ég sýna fram á tengslin milli tísku og torf-
húsa en efnin sem Steinunn Sigurðardóttir,
fatahönnuður, vinnur með eru ekki frábrugðin
umhverfinu,“ segir Stibeck. „Aðaláherslan er
þó lögð á torfhúsin og mikilvægt er að varð-
veita þann menningararf. Það þarf að upplýsa
þjóðir um hversu einstök þau eru og hvernig
þau hafa mótað íslenska menningu.“ „Ef land gæti orðið að ljóði þá væri það Ísland,“ segir Stibeck um eyjuna fögru. Hún vill sýna öðrum þjóðum þá fegurð sem Ísland hefur að geyma.
Ljósmynd/Lisen Stibeck
LJÓSMYNDARINN LISEN STIBECK VARÐ STRAX ÁSTFANGIN AF ÍSLANDI
Hreyfði strax við sálinni
SÆNSKUR LJÓSMYNDARI KOLFÉLL
FYRIR ÍSLANDI OG EFTIR FERÐA-
LAG SITT UM LANDIÐ ÞAR SEM
HÚN MYNDAÐI TORFHÚS OG ÍS-
LENSKA HÖNNUN FRUMSÝNIR
HÚN NÚ MYNDIR SÍNAR Í ÞJÓÐ-
MINJASAFNI ÍSLANDS.
Stibeck sýnir verk sín á Torginu í Þjóðminjasafninu.
Hér má sjá Saurbæjarkirkju í Eyjafirði. Fyrirsætan klæðist stórum, fallegum hatti frá Steinunni.
Hlýlegt andlit umvafið drungalegu umhverfi.
Myndin er tekin á Galtastöðum fram í Hróarstungu. Samsetning hins gamla og nýja kemur vel út.
Frá Þverá í Laxárdal.