Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Blaðsíða 11
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
Gaurarnir sem sjá til fless a›
ekki sjó›i upp úr pottunum
2 í pakka, hvítur og rauður aðeins kr. 1.790,-
LID SID
Bjargvættirnir á brúninni
„Fólk úti á landi er upplýst og tals-
vert margir safna bókum af ýmsum
toga. Margir hafa samband við mig
og leita að góðum og áhugaverðum
bókum og ég luma á ýmsu. Sjálfur
hef ég mesta ánægju af þjóðlegum
fróðleik ýmiss konar og ævisögum
og er hér með fjölda bóka af þeim
toga,“ segir Örn Albert Þórarinsson
á Ökrum í Fljótum.
Jafnhliða sauðfjárbúskap hefur
Örn sýslað við sitthvað fleira um
dagana. Hann var lengi fréttaritari
ýmissa blaða og fyrir nokkrum árum
opnaði hann fornbókabúð sem er á
heimili hans. Veggir í stofunni og
fleiri vistarverum eru, ef svo má
segja, veggfóðraðir bókum og margt
gott í boði. Eintökin skipta þús-
undum.
Fljótin, sem tilheyra Skagafirði,
eru næsta afskekkt sveit, sem breyt-
ir ekki því að þar er hægt að reka
fornbókabúð eins og hvar annars
staðar. Á vefsetrinu bokmenntir.n-
etserv.is er hægt að sjá megnið af
þeim bókum sem Örn lumar á og
leggja inn pantanir.
„Fyrir nokkrum mánuðum keypti
ég stórt bókasafn fyrir sunnan og ég
er enn að tína upp úr kössunum eins
og þú sérð hér á gólfunum. Ég tek
veturinn í að tína þetta til, koma í
hillurnar og setja á skrána, sem
verður öllum aðgengileg. En annars
er alveg ótrúlegt hvað bækurnar hér
hreyfast. Það er oft haft samband og
leitað að einhverju sjaldséðu. Í dag
eru tvær bækur seldar og í gær fór
ein. Já, og meðan ég man, gæti ég
nokkuð beðið þig að taka fyrir mig
pakka suður og koma bókinni til
manns sem býr við Kapaskjóls-
veginn?“ sagði Örn.
„Sjálfsagt mál,“ sagði blaðamaður
– og sendingunni var skilvíslega
komið til kaupanda í póstnúmeri 107
fáum dögum síðar.
FLJÓT
Bóndinn selur bækur
Bóksalinn Örn á Örkum lumar á ýmsum góðum ritum og margt er í hillunum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þegar ný brú yfir Múlakvísl á Mýr-
dalssandi var opnuð í síðustu viku
hafði Birna Sólveig Kristófersdóttir
úr Vík það virðingarhlutverk að
halda á púða sem á voru lögð skærin
sem Hanna Birna Kristófersdóttir
innanríkisráðherra notaði til að
klippa á borða, en með þeim gjörn-
ingi var brúin opnuð formlega. Hjá
Vegagerðinni gildir sú regla við
formlega opnun samgöngu-
mannvirkja að kalla til börn úr
byggðinni sem eru til fyrirmyndar
og framúrskarandi.
Birna Sólveig er á tólfta árinu og
er nemandi við grunnskólann í Vík.
„Þetta er dugleg stúlka, æfir fim-
leika og fótbolta og er alltaf glöð,“
segir móðir hennar, Birna Anna
Björnsdóttir.
Í sumar var Birna Sólveig í sveit
hjá frændfólki sínu í Eystra-Fíflholti
í Vestur-Landeyjum. Stóð þar sína
plikt með prýði; passaði börn og
sinnti verkum í fjósi. Nú þegar farið
er að líða vel á sumarið er hún komin
aftur heim í Víkina, þar sem hún hef-
ur átt heima frá sex ára aldri.
MÝRDALUR
Birna Sólveig hélt á ráðherraskærunum, sem var mikið virðingarhlutverk.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dugleg og alltaf glöð
Við erum smátt og smátt aðfinna okkar fjöl í ræktunar-starfinu og erum, held ég,
að komast á réttu hilluna,“ segir
Einar Pálsson, garðyrkjubóndi á
Sólbyrgi í Reykholtsdal í Borg-
arfirði.
Einar og Kristjana Jónsdóttir
kona hans fluttu úr Vestmanna-
eyjum fyrir sex árum þegar þau
keyptu garðyrkjustöðina Sólbyrgi
við Kleppsjárnsreyki. Höfðu enga
reynslu af garðyrkju þegar þau
komu í sveitina. Voru hins vegar
ódeig og settu markið hátt og
hefur vegnað bærilega.
Dumbungur í reikningum
Gróðurhúsin í Sólbyrgi eru alls um
5.000 fermetrar. Fyrst voru þau
hjónin einkum og helst í gulróta-
rækt. Prófuðu svo framleiðslu á
agúrkum en fyrir tveimur árum
snéru þau sér að jarðarberja-
ræktun – og þar dafnar allt. Í dag
eru undir gleri jarðarberjaplöntur
á 4.000 fermetrum og ný uppskera
kom á markað nú í vikunni. Þá er
Sólbyrgisfólk með jarðarberja-
ræktun í 500 fermetra gróðurhúsi
á Laugarbakka í Miðfirði og má af
því ráða að umsvifin eru tölverð.
„Í berjabúskapnum gildir að frá
útplöntun að uppskeru er þetta
tveggja mánaða ferli. Þrálát rign-
ing og dumbungur í allt sumar hef-
ur sett svolítið strik í reikninginn
svo að sprettan hefur verið hæg.
Nú í vikunni hafa hins vegar komið
sólríkir dagar og þá dafnar allt.
Annars erum við að ná tveimur til
þremur uppskerutíðum yfir árið,
sem er dágott,“ segir Einar.
Garðyrkjubændur segir hann
sýna berjarækt vaxandi áhuga.
Sumir séu að fikra sig áfram með
ræktun nýrra tegunda en almennt
sé komin nokkur hefð og reynsla í
jarðarberjaræktun sem nokkrir
stunda. Ætla megi að ársfram-
leiðslan sé um 30 tonn, sem sé þó
líklega aðeins 10% af því magni
jarðarberja sem Íslendingar neyta
árlega.
Handtínt í öskjur
„Jú, vissulega er þetta nokkuð
vandasöm ræktun. Við handtínum
berin af klösunum og beint í öskj-
urnar svo þau verði fyrir sem
minnsu hjaski. Svo berum við öskj-
ur og kassa beint inn á kæli og
næsta dag eru afurðirnar komnar í
búðir í bænum. Og seljast eins og
heitar lummur,“ segir Einar í Sól-
byrgi.
REYKHOLTSDALUR
Fundu fjöl í jarðarberjum
ÞJÓÐIN ER SÓLGIN Í SÓL-
BYRGISBER. JARÐARBER ERU
ÆR OG KÝR EINARS OG
KRISTJÖNU, SEM HAFA NÁÐ
GÓÐUM ÁRANGRI Í
BÚSKAP SÍNUM.
Einar og Kristjana með grænjaxla á klösum sem nú eru orðnir fullvaxin ber.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rautt og ríkt af alls konar bætiefnum.
Á Austurlandi ganga hreindýraveiðar, sem hófust 15.
júlí, vel. Heimilt er að veiða 1.277 dýr og í fyrstu hafa
tarfarnir helst látið sjá sig. Hver maður má veiða eitt
dýr og nú eru reglur um kjötsölu rýmri en var.
Austurland
Bændahátíðin Sveitasæla í Skagafirði verður um aðra helgi.
Á sýningu kynna landbúnaðarfyrirtæki sig og sitt. Þá verð-
ur opið hús á loðdýrabúinu á Gránumóum, skógrækt-
arjörðinni Krithól og ýmsum fleiri stöðum.
Skagafjörður