Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Side 23
Margir halda að hnetur séu bara eins og
hvert annað ruslfæði. Eitthvað sem við
nörtum í þegar okkur langar í eitthvað
gott. Staðreyndin er hins vegar sú að
hnetur eru próteinríkar og hafa
að geyma ýmis nauðsynleg efni
fyrir líkamann.
Í rannsókn sem Harvard
School of Public Health lét
vinna kom fram að þeir ein-
staklingar sem borða hnetur
reglulega eiga síður á hættu
að fá hjartasjúkdóma eða deyja
úr hjartaáfalli. Niðurstöður
rannsóknarinnar hafa verið
staðfestar í Iowa Women’s Health
Study, the Nurses’ Health Study, og
the Physicians’ Health Study en allar
þessar rannsóknir hafa leitt til þess að
bandaríska matvælaeftirlitið hefur leyft
nokkrum hnetuframleiðendum að full-
yrða utan á pakkningum sínum að ráð-
lagður dagskammtur af hnetum dragi
úr líkum á hjartasjúkdómum.
Ástæður þess að hnetur hafa jafn
góð áhrif á okkur og dæmin sanna
eru taldar tengjast því að í hnet-
um er meira magn af HDL kól-
esteróli sem er gott fyrir okk-
ur en LDL kólesteróli sem er
slæmt fyrir líkamann. Einnig er
að finna omega-3 fitusýru í
sumum hnetum en þær fitusýr-
ur koma í veg fyrir flökt á hjart-
anu.
Þrátt fyrir að hnetur séu mjög
hollar er ekki mælt með því að fólk
troði þeim í sig í tíma og ótíma. Hnetur
eru mjög orkuríkar og ef ekki er dregið
úr öðrum mat ásamt hnetuáti er hætta
á því að aukakílóunum fari fjölgandi
hratt.
Hnetur minnka líkur á hjartasjúkdómum
Hnetur eru góðar í hófi og draga
úr líkunum á hjartasjúkdómum.
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Ólafur Karl Finsen, leikmaður Stjörnunnar, hefur verið í
banastuði í Evrópukeppninni í sumar og vakið verðskuld-
aða athygli með félagsliði sínu Stjörnunni. Ólafur er uppal-
inn Stjörnumaður og komu knattspyrnuhæfileikar hans
snemma í ljós. Fór hann því ungur í atvinnumennsku til
hollenska liðsins AZ-Alkmar. Frá því að Ólafur sneri heim
hefur hann spilað eitt tímabil með Selfossi, þegar liðið var í
efstu deild, en sneri svo auðvitað aftur til síns uppeldis-
félags og er án nokkurs vafa einn besti leikmaður Stjörn-
unnar í dag. Ólafur hefur skorað sex mörk í Pepsi-
deildinni í sumar og sýnt það og sannað að hann er ekki
bara einn besti leikmaður Stjörnunnar heldur
einn af bestu knattspyrnumönnum deild-
arinnar.
Stjarnan hefur staðið sig gífurlega vel í
frumraun sinni í Evrópukeppni og er komin í
fjórðu umferð eftir hreint út sagt æv-
intýralegt ferðalag þar sem liðið hef-
ur leikið á mót verðugum and-
stæðingum frá m.a. Wales og
Póllandi. Andstæðingar
Stjörnunnar hafa því alls
ekki verið neinir smá-
klúbbar en núna er
hins vegar komið á
það stig í keppninni
að liðin sem slá þarf út
eru meðal þekktari klúbba álfunnar
og ljóst að stærðarmunurinn er enn
meiri en Stjarnan hefur áður kynnst.
Ætli það hafi því ekki komið öllum
Stjörnumönnum skemmtilega á
óvart þegar Inter Milan var dregið á
móti Stjörnunni. Ungmennafélagið úr
Garðabænum fær því tækifæri til að
slá út eitt af toppliðum Evrópu sem
alla jafna ber sig saman við bestu fé-
lagslið heims. Garðabæjarliðið kemst
því í fámennan hóp íslenskra félagsliða
sem keppt hafa við stærstu klúbba
heims en íslensk lið hafa m.a. keppt við
Barcelona og Liverpool í Evrópukeppn-
inni, þó að nokkuð sé síðan.
Ólafur á því vændum hörkuleik við lið sem
vill hvergi annars staðar vera en meðal þeirra
bestu í heiminum enda ódýrustu leikmenn Int-
er Milan líklega verðmeiri en allt
Stjörnuliðið. Peningarnir einir
saman duga hins vegar ekki til
að vinna fótboltaleiki og ekkert
sem kemur í veg fyrir að Ólafur
leiki bakverði Milan grátt, t.d. brasilíska bakvörðinn
Dodo. Komist Stjarnan áfram verður hún komin lengra en
nokkurt íslenskt félagslið hefur komist í Evrópukeppni.
Gælunafn: Finsen.
Íþróttagrein: Fótbolti.
Hversu oft æfir þú á viku? Ég æfi fimm sinnum í viku en
það er mismunandi eftir leikjaálagi.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Að elska það sem
maður er að gera. Leggja sig síðan fram í þaula við að vita
allt um þá grein sem maður vill ná árangri í.
Hvernig er best að koma sér af stað? Það er best að hafa
markmið og drauma og elta það síðan. Fyrst er bara að
búa til hugmyndina hvað þú vilt gera eða hvernig þú
vilt verða án takmarkana sama hvaða standi þú ert í
nú. Síðan bara að kýla á það og hafa gaman af því
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Finna eitthvað skemmtilegt að gera. Maður nær ekki
árangri með því að pína sig.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú
ferð í frí? Þegar ég er í fríi held ég að mér
gæti ekki verið meira sama hvernig
formi ég er í.
Ertu almennt meðvitaður um
mataræðið? Nei, ég prófaði
samt einu sinni að drekka
geðveikt mikið Hámark
til að verða eins og Ív-
ar Guðmunds og Arn-
ar Grant en það virk-
aði ekki.
Hvað borðarðu til að
halda þér í formi? Ég er alltaf í besta forminu
þegar ég borða matinn sem mamma eldar.
Hvaða óhollusta freistar þín? Að hugsa um for-
tíðina. Annars er enginn matur óhollur. Fólk er fit-
andi, ekki matur.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið?
Fara á Fresco, Suðurlandsbraut 4.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Hreyfing mín
snýst aðallega um að leika mér og gera það sem er
skemmtilegt.
Hver eru algeng mistök hjá fólki við æfingar?
Að njóta þess ekki að æfa og segja við sig að
það þurfi að æfa en það fólk sem lærir að
njóta þess að æfa þarf aldrei að æfa aftur.
Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Floyd
Mayweather, Thomas Edison, John
D. Rockefeller, Henry Ford, Karl
Benz, Veigar Páll Gunnarsson,
Wright brothers, Alexander Gra-
ham Bell.
KEMPA VIKUNNAR ÓLAFUR KARL FINSEN
Spilar með hjartanu fyrir
klúbbinn sem hann elskar
Morgunblaðið/Ómar
Það hefur sýnt sig að þeim sem rækta garðinn sinn líður almennt
vel. Komið hefur í ljós að ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að í
jarðvegi eru bakteríur sem kalla á framleiðslu ýmissa efna í heil-
anum sem veita okkur vellíðan.
Garðyrkjan gefur góðar stundir*Við sköpum aldrei ytri friðfyrr en við höfum fyrst öðl-ast innri frið með okkur sjálfum.
Dalai Lama XIV
Hafi einhver velt því fyrir sér hvað
gerir karrý gult þá er það kryddið
túrmerik. Þetta einstaka krydd hef-
ur verið notað við matreiðslu og
lækningar í margar aldir. Túrmerik
gerir ýmislegt gott fyrir líkamann,
m.a. að minnka eymsli í vöðvum
eftir strangar æfingar og það er tal-
ið geta dregið úr hrukkumyndun,
appelsínuhúð og dregið úr þreytu.
Kryddið getur einnig aukið fram-
leiðslu líkamans á andoxunarefnum
og er þar fyrir utan stórkostlegt í
eldamennskuna.
Anna Rósa, grasalæknir, þekkir
kryddið mjög vel og eiginleika þess
en hún hefur þróað tinktúruna
túrmerik og engifer sem hún segir
að hafi reynst bæði bólgu- og
verkjastillandi. „Hópur sjúklinga í
ráðgjöf hjá mér tók þátt í þeim til-
raunum hjá mér og reyndist tinkt-
úran gefast vel fyrir sjúklinga með
liðagigt, slitgigt og álagsmeiðsli í
liðum,“ segir Anna, sem er hæst-
ánægð með bæði niðurstöður til-
raunarinnar og viðtökur frá neyt-
endum en varan hefur selst upp hjá
henni.„Ég er bara önnum kafin við
að framleiða meira af tinktúrunni.“
Vinsælt rannsóknarefni
Túrmerik þykir hafa óvenju fjöl-
breyttan lækningamátt og und-
anfarna áratugi hafa margar vís-
indarannsóknir staðfest
hefðbundna notkun þess til lækn-
inga, að sögn Önnu. „Ekkert krydd
er jafn vinsælt til rannsókna í heim-
inum í dag, en túrmerik inniheldur
virka efnið curcumin sem hefur
sterk bólgueyðandi og andoxandi
áhrif. Engifer hefur ekki síður verið
vinsælt viðfangsefni vísindamanna
en margar rannsóknir staðfesta
hefðbundna notkun þess til lækn-
inga, en það þykir m.a. bólgueyð-
andi, verkjastillandi, vöðvaslakandi
og bakteríudrepandi.“ Túrmerik og
engifer er hvort tveggja einnig
þekkt fyrir að lækka blóðþrýsting,
blóðsykur og blóðfitu. „Rann-
sóknir hafa einnig sýnt að bæði
túrmerik og engifer hafa hamlandi
áhrif á vöxt krabbameinsfrumna,“
segir Anna.
Eðli máls samkvæmt hlýtur það að skipta máli hvað við látum ofan í okkur og
því er mikilvægt að hafa uppi á þeim matvælum sem gera okkur gott.
Lækningamátturinn í
kryddinu
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Ertu með
verki í
hnjám eða
ökkla?
Flexor býður mikið úrval af
stuðningshlífum fyrir flest
stoðkerfisvandamál.