Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Síða 33
17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Fujifilm FinePix JX650
Ódýr vél sem er handhæg og þægileg og fer ekki mikið fyrir. 16,0
Mpix myndavél. 5x aðdráttur. 2,7" skjár. 720p myndbandsupptaka.
Verð: 16.995 kr.
Sony NEX-5R myndavél
Þeir sem vilja örlítið meira í myndavél-
ina sína ættu að skoða þessa. Með 18-
55 mm E-mount linsu 16,1 Mpix. 3,0"
skjár, WiFi-tenging
Verð: 79.995 kr.
Canon EOS 70D
Fyrir hágæða myndatöku af fjölskyldufríinu eða fjallgöngunni er þessi mál-
ið. 18 – 135mm linsa. 20 Mpix myndavél. Full HD-upptaka. 3,0" skjár
Verð: 239.995 kr.
ÓDÝRT, MIÐLUNGS OG DÝRT
Ljósmyndavélin fyrir fjölskylduna
Tímaflakk hefur verið draumur
margra, enda fátt áhugaverðara
en að geta gægst inn í framtíðina
og upplifað sögufrægar stundir
fortíðarinnar. Með nýju viðmóti
eða appi sem nefnist When the
heck am I er hægt að upplifa for-
tíðina en ekki með þeim hætti
sem við flest myndum vilja. Engu
að síður er viðmótið mjög
skemmtilegt og leyfir notendum
að sjá umhverfi sitt eins og það
var fyrir einhvejrum áratugum.
Tæknin er í raun og veru sáraein-
föld og byggir á því að notendur
Google-gleraugna munu fá senda
mynd af umhverfi sínu eins og
það var t.d. 1950. Viðmótið notar
GPS til að staðsetja notandann og
varpar mynd af staðnum á gler-
augun.
Viðmótið má nota á marga
vegu, t.d. til skemmtunar en einn-
SÖGUKENNSLA BEINT Í GLERAUGUN
Tímaflakkarinn
Notendur Google-gleraugna munu geta gengið um stræti fortíðarinnar.
ig til kennslu. Þá má vel hugsa sér
að ferðaþjónustan taki þetta upp
á sína arma einn góðan veðurdag.
Þá gætum við ef til vill gengið um
Reykjavík eins og hún var árið
1920. Væri það ekki áhugavert?
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, kom skömmustu-
legur fram fyrir tæpu ári þegar heimasíða nýja trygg-
ingakerfisins sem hann hafði barist fyrir í mörg ár virk-
aði ekki. Notendur fengu rangar upplýsingar og var
hafnað þrátt fyrir að uppfylla kröfur kerfisins og sums
staðar virkaði síðan hreinlega ekki. Margir vilja meina
að þessir tæknilegu örðugleikar hafi verið lán í óláni
fyrir forsetann, sem hafði gerst margsaga um kerfið og
lá undir nokkrum þrýstingi frá eigin flokksmönnum.
Kerfisvillur heimasíðu nýja tryggingakerfisins færðu at-
hyglina frá öðrum málum sem þóttu mjög vandræðaleg
fyrir Hvíta húsið. Obama ætlar ekki að láta þetta koma
fyrir aftur og hefur nú ráðið til starfa hóp tölvusérfræð-
inga og verkfræðinga frá tækni- og tölvurisanum Google.
Ætlunin er að sérfræðingarnir frá Google aðstoði
ríkisstofnanir að uppfæra heimasíður sínar og finni hent-
ugar lausnir til að auðvelda almennum borgurum að
koma beiðnum og athugasemdum til stjórnvalda. Obama
hefur sagt að með þessu eigi að koma í veg fyrir að mis-
tök eins og þau sem gerð voru við smíði og hönnun
HealthCare.gov komi upp hjá síðum sem ríkisstofnanir
eru með og almenningur notar til að leita upplýsinga um
réttindi sín og koma athugasemdum á framfæri
ÁHUGAVERT AF NETINU
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar ekki að lenda
í enn einum tölvu- og netskandalnum.
AFP
Obama leitar
til Google
Þrátt fyrir áralanga verndunarstefnu og uppbyggingu er ástand
kóralrifja við Ástralíu ekki gott. Ástandið hefur versnað þó-
nokkuð frá árinu 2009 þegar síðast var gerð veigamikil athugun
á því. Í skýrslu sem kom út nýlega um ástand kóralrifjanna er
bent á að bæði hnattræn hlýnun og uppbygging við strendur
Ástralíu sé mesta ógnin við rifin.
Ástand kóralrifja versnar
Kóralrif eru eitt
af því fegursta
sem náttúran
býður upp á.
* Í allri þróunarvinnu erugerð mistök, best er aðviðurkenna þau strax og halda
áfram að finna upp og upp-
götva nýja hluti.
Steve Jobs
Markaður, veitingar,
happdrætti, andlits-
málning og uppákomur.
Fjölskyldudagur á KEX til
styrktar börnum í Palestínu
KEX Hostel 17. ágúst milli 14 og 17
Allur peningur
sem safnast
rennur óskiptur
til hjálparstarfs
Rauða krossins.
Er fluga í súpunni eða bragðast
hún ekki eins og þú bjóst við? Er
megrunarfæðið kannski ekki jafn
kaloríusnautt og þú hélst? Nú þarf
fólk ekki lengur að velta því fyrir
sér hvort innihaldslýsingar séu
réttar í matvælum eða rífast um
efnainnihald framreiddra rétta.
Nú er hægt að skanna matinn og
fá nákvæmar upplýsingar um inni-
haldið.
Star Trek kemur enn og aftur
til hjálpar enda fyrirmyndin að
nýju tæki sem vísindamenn við
bandarísku háskólana MIT og
Harvard hafa þróað og hannað.
Um er að ræða lítið tæki á stærð
við lyklakippu sem beint er að
hlutum og les það sem kalla má
sameinda-fingrafar hlutar og
sendir upplýsingar um hlutinn í
símann þinn þar sem nákvæm
greining kemur fram. Um er að
ræða tækni sem olíuiðnaðurinn
hefur notað til margra ára til að
mæla hreinleika olíu en nú er búið
að betrumbæta tæknina og gera
hana aðgengilega öllum.
STAR TREK ENN OG AFTUR FYRIRMYND
Skannaðu matinn
þinn vel
Viltu vita nákvæmt innihald í matnum
sem þú leggur þér til munns?
Morgunblaðið/Eggert