Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Síða 44
É
g hef oft synt á móti straumnum í
lífinu. Ég þori það alveg. Ég er
rafvirki að mennt og í góðærinu
2005 og 2006 þegar það var bull-
andi uppgangur og fín laun
nennti ég ekki lengur að tengja rafmagn,
sagði upp og fór að læra íþróttafræði í HR.
Bryndís, kona mín, var að læra sálfræði og
við vorum með tvö lítil börn, hús og bíl. En
það er besta ákvörðun sem ég hef tekið,“
segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari
Stjörnunnar í knattspyrnu.
Rúnar stýrir liði sínu gegn stórliði Inter
Mílanó á Laugardalsvelli á miðvikudag í um-
spili um sæti í riðlakeppni Evrópudeild-
arinnar. Koma Inter til landsins er mikill
hvalreki fyrir íslenska knattspyrnu-
áhugamenn enda mjög langt síðan íslenskt
lið hefur att kappi við álíka lið. Gröfin hér til
hliðar sýna stærðarmun þessara félaga.
Rúnar Páll er fertugur Garðbæingur og
býr ásamt konu sinni Bryndísi Kristjáns-
dóttur og dætrum þeirra þremur í Sjálands-
hverfinu í Garðabæ. Hann gekk í raðir
Stjörnunnar aðeins átta ára gamall. Rúnar
Páll sneri aftur í Garðabæ frá Levanger í
Noregi í fyrra og réði sig sem aðstoðarþjálf-
ara meistaraflokksins. Eftir síðasta tímabil
var Loga Ólafssyni sagt upp sem þjálfara og
Rúnar tók við. Hann er því að stýra sínu
uppeldisliði í stærsta leik þess. Og hann seg-
ir að Stjarnan eigi séns gegn stjörnum Inter
frá Mílanó.
„Eitthvað svo absúrd“
Leið Stjörnunnar að leiknum við Inter hefur
verið glæsileg því þetta er í fyrsta sinn sem
Stjarnan tekur þátt í Evrópukeppni. Þeir
unnu Bangor í fyrstu umferð Evrópudeild-
arinnar, svo skoska liðið Motherwell og loks
pólska liðið Lech Posnan sem eru ein frækn-
ustu úrslit íslensks liðs í Evrópukeppninni.
Inter Mílanó er risalið á evrópskan mæli-
kvarða og hafa þeir Rúnar og aðstoðarmaður
hans, Brynjar Björn Gunnarsson, oft þurft að
klípa sig til að sjá að þeir séu ekki í draumi.
„Allt þetta ferli hefur verið einstök reynsla
og að dragast gegn Inter kórónar allt. Það
sem mér finnst hvað magnaðast við þennan
Inter-leik er að skoða leiki Inter og reyna að
finna hvar veikleikar leikmanna liggja. Við
ákváðum að skoða síðustu fjóra leiki með
þeim og þeir voru gegn Frankfurt, Man-
chester United, Real Madrid og Roma.
Við þjálfararnir erum duglegir að horfa á
myndbönd af leikjum við spiluðum við Val á
föstudaginn og við horfðum á nokkra leiki
með Val og þar áður á leiki með Þór.
Á milli horfir maður á Inter-leiki og á ein-
um vídeófundinum vorum við búnir að greina
nokkrar horn- og aukaspyrnur, þá ýtti ég
bara á pásu. Stóð upp og sagði: Hvað er
maður að gera hérna. Við erum að pæla í
föstum leikatriðum hjá Inter Mílanó. Þetta
er eitthvað svo absúrd,“ segir hann og það
kemur bros yfir kappann. „Ég labbaði bara
aðeins um húsið og hugsaði með sjálfum
mér: Er þetta virkilega veruleikinn? Ég
bjóst ekki alveg við þessari staðreynd.“
Fremsti maður verður aftarlega
Inter Mílanó er skipað frábærum leik-
mönnum og saga félagsins er glæsileg. Inter
er risafélag á heimsvísu og þó að félagið sé í
smáerfiðleikum núna eru gæði leikmanna
liðsins mikil. Þetta er sannkölluð barátta
Davíðs við Golíat. Það er því eðlilegt að
spyrja: Hvernig ætlar Rúnar að leggja leik-
inn upp? „Þetta snýst um agaðan varnarleik
og að liggja aftarlega. Loka svæðum, færa
liðið og standast fyrirgjafirnar þegar þær
koma. Við erum að fara að spila mikinn
varnarleik, miklu meiri en nokkurn tímann.
STJARNAN ÚR GARÐABÆ ER EINA ÁHUGAMANNALIÐIÐ SEM ER EFTIR Í
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA Í KNATTSPYRNU KARLA. ÞJÁLFARINN RÚNAR
PÁLL SIGMUNDSSON ÞARF STUNDUM AÐ KLÍPA SIG TIL AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ
STJARNAN MÆTI SENN STÓRLIÐINU INTER FRÁ MÍLANÓBORG.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Sara Regína 12 ára, Andrea 3 ára, og María Viktoría 10 ára með foreldrum sínum Bryndísi og Rúnari Páli.
Morgunblaðið/Ómar
Rúnar Páll Sigmundsson lék sjálfur sinn
fyrsta leik í efstu deild með Stjörnunni 1991
og spilaði með þeim til ársins 2003. Hann
lék eitt tímabil með HK fjórum árum síðar.
Alls lék hann 161 leik á ferlinum og skoraði
22 mörk. Þá á Rúnar sex landsleiki með
yngri landsliðum Íslands.
Rúnar tæklar risann frá
Mílanó með bros á vör
Viðtal
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.8. 2014