Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Qupperneq 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Qupperneq 45
Ætli fremsti maður verði ekki eins og venju- legur miðjumaður. Þetta verður ekkert auð- velt því það er oft erfiðast að vinna boltann og breyta úr vörn í sókn og gera það snöggt. Það er vinna og orka sem fer í slíkan varn- arleik. En við erum með Ingvar í markinu og hann er búinn að standa sig ótrúlega vel og það kæmi mér mjög á óvart ef hann yrði ekki í íslenska landsliðinu miðað við hvernig hann er búinn að standa sig. Landsliðþjálf- ararnir hljóta að taka eftir honum, annað kæmi mér mjög á óvart. Nú er ég búinn að horfa svolítið á Inter og það er allt hægt, ég trúi því. Inter er geðveikt lið og það er hálfgert rugl að mæta því. En við eigum séns. Það er alltaf séns. Það var svolítið gaman að sjá Manchester United-menn á móti Inter-mönnum því þeir lágu svolítið aftarlega og það var enginn möguleiki fyrir Inter að komast í neinar hol- ur eins og það heitir. Ég vil meina að þar sé möguleiki fyrir okkur. Að fá þá til að beita löngum sendingum. Ég er alveg bjartsýnn á að við getum náð í úrslit og horfi til Rosen- borgar í þeim efnum því 1996 slógu þeir AC Milan út úr Meistaradeildinni mjög óvænt einmitt á San Siro. Óvæntir hlutir geta gerst og ef maður hefur trú þá er ýmislegt hægt að gera.“ Hætti í fótbolta í fjögur ár Rúnar Páll flutti í Garðabæ 1982 þegar hann var átta ára. Hann spilaði upp alla yngri flokkana með Stjörnunni og síðan með meistaraflokki. Hann hætti 2003 þegar hann meiddist og kom ekki nálægt fótbolta í fjög- ur ár. „Ég snerti ekki fótbolta og fitnaði töluvert. Svo tók ég mig á og komst aftur í form í kjölfarið á því að ég fór í íþróttafræð- ina. Árið 2009 kláraði ég hana og var þá orð- inn þjálfari HK í svolítið erfiðum aðstæðum. Við ákváðum að fá engan leikmann til okkar og ég tók svolítið til og fór inn í Íslands- mótið með unga leikmenn. Við enduðum í þriðja sæti í annarri deildinni og komumst ekki upp. Mér var boðið að vera áfram með HK en ákvað að flytja til Noregs og klára meistaragráðu í íþróttafræði við háskólann í Levanger. Að fara frá HK til Levanger var mikið skref því það var spennandi að vera áfram með HK og ekki síður að flytja út með fjölskylduna.“ Leið vel í Noregi Rúnar pakkaði því niður í gám og flutti til Noregs með allt sitt hafurtask en hann hafði lítið kynnt sér liðið sem hann átti að þjálfa. Levanger er í þriðju deildinni og er stofnað 1997 úr tveimur litlum klúbbum í bænum. „Þegar ég tók við liðinu var félagið í algjöru rugli. Það voru æfingar klukkan níu á kvöld- in og æft þrisvar í viku. Leikmenn bjuggu sumir í Þrándheimi sem er klukkutíma akst- ur frá og margir mættu oft ekkert á æfingar en fengu samt vel borgað. Við Bryndís gátum menntað okkur, hún var í sálfræði. Ég fékk sæmileg laun og þeir redduðu hinu og þessu en svo varð hún ólétt af okkar þriðja barni og tók sér frí. Andrea fæddist 2011 þarna úti. Það var frábært líf að mörgu leyti þarna úti í Noregi. En liðið var strúktúrslaust. Þannig að ég tók til hendinni og setti upp langtímaplan til ársins 2014 um að fara upp um deild. Ég og aðstoðarmaður minn breyttum öllu þarna í kringum liðið og ég fékk styrktarað- ila og fólkið í bænum með. Veltan fór úr milljón norskum í rúmlega fimm milljónir. Allt í einu var maður farinn að mæta á styrktaraðilafundi að selja Levanger hug- myndina sem var ótrúlegur skóli. Við ákváðum að spila á gervigrasi því grasið er lélegt á vorin og lélegt á haustin og völlurinn var með hlaupabraut í kring og því langt í áhorfendur. Þetta var stórt ævintýri og mikil reynsla að taka þátt í þessu. Við stofnuðum akademíu fyrir börn í Levanger og sú aka- demía var með 600 þúsund norskar í tekjur. Allar tekjur snarjukust og öll umgjörð varð betri. Þegar ég fór fengu þeir sænskan þjálf- ara sem hefur svipaða hugsun og ég varð- andi þjálfun og hann hefur tekið liðið áfram. Í dag er liðið í öðru sæti og er í þessari bar- áttu að komast upp í efstu deild. En svo kom að því að ákveða hvort við vildum vera áfram eða fara heim og við ákváðum að koma heim og við sjáum ekki eftir því. Stelpurnar okkar, þær María og Sara eru í Stjörnunni í handbolta og fótbolta og við búum rétt hjá Stjörnuheimilinu.“ Rúnar og fjölskylda voru þrjú ár í Noregi og hann var með tilboð um að vera þrjú ár áfram þegar þau ákváðu að halda heim á leið. „Við vildum fara heim og þetta var spurning með stelpurnar okkar þrjár. Hvort þær væru að koma heim 10 og 12 ára eða 13 og 15. Kannski hefðum við ekki komið aftur ef ég hefði samið aftur við félagið því okkur leið mjög vel þarna í Noregi. Þetta var sam- eiginleg niðurstaða okkar allra að koma heim og hér líður okkur vel.“ Lífið er snilld þessa stundina Með velgengni í knattspyrnu kemur athygli og þó að það sé oft einblínt á leikmenn liða er Rúnar einn af okkar efnilegustu þjálf- urum og margir sérfræðingar vilja meina að hann geti vel staðið sig með liði í Skandinav- íu. Hann er hinsvegar ekki á faraldsfæti. „Ég stefni ekki út í þjálfun. Ekki núna alla- vega. Ég er náttúrlega nýkominn heim og er að þjálfa minn klúbb og allt gengur vel. Inn- an vallar sem utan. Maður verður að njóta velgengninnar og vera auðmjúkur í þeirri nálgun en ég er ekki á faraldsfæti, ég vona að leikmenn fari frekar utan en ég. Ég er í frábæru starfi, líður vel, ég meina hvernig er annað hægt? Ég er í þessu umhverfi hér í Garðabæ, labba í vinnuna og lífið er eiginlega bara snilld þessa stundina,“ segir hinn geðþekki Rúnar og svarar í símann. Hann þarf að fara að horfa á Manchester United spila við Int- er. Verkefni þessa dags er að hugsa um hvernig Rooney hreyfði sig gegn varn- armönnum Inter. * Inter er geðveiktlið og það er hálf-gert rugl að mæta því. En við eigum séns. Það er alltaf séns. 17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 Fram - Barcelona 1988 Roberto Fernandez skoraði annað marka Barcelona á Laugardalsvelli. Hér er hann í baráttu við Þorstein Þorsteinsson. Fyrri leikurinn fór 0:2 fyrir Börsunga á Laugar- dalsvelli en leiknum á Camp Nou lauk 5:0. Í um- fjöllun Morgunblaðsins um leikinn hér heima stóð að Framarar hefðu staðið sig vel gegn létt- leikandi liði Barcelona. Johan Cruyff var nýtekinn við liði Barcelona á þessum tíma og í röðum þess var Gary Lineker, sem lék þó ekki gegn Fram. Ljósmynd/RAX KR - Liverpool 1964 Fyrsti Evrópuleikur ís- lensk liðs var KR - Liverpool. Liverpool vann fyrri leikinn 5:0 og þann síðari 6:1 en Gunnar Felixson skoraði mark KR og fyrsta Evrópu- mark íslensks félagsliðs. Ljósmynd/Sveinn Þormar Keflavík - Real Madrid 1972 Keflvíkingar mættu frægasta knattspyrnuliði heims, Real Ma- drid, árið 1972. Keflvíkingar voru að taka þátt í Evrópukeppninni í fjórða sinn og höfðu áður mætt Ferencvaros frá Ungverjalandi og ensku liðunum Everton og Tottenham. Real Madrid hafði unnið Evrópukeppni meistaraliða sex sinn- um alls þegar liðið kom til landsins. Alls hefur fé- lagið unnið keppnina, sem nú heitir Meistaradeild Evrópu, tíu sinnum. Real Madrid vann fyrri leik- inn, sem leikinn var á Laugardalsvelli, 1:0 með marki Ignacio Zoco á markamínútunni, þeirri 43. Ljósmynd/Kr. Ben Valur - Benfica 1968 Sigurður Dagsson varði allt sem á markið kom frá portúgölsku snilling- unum í einum frægasta knattspyrnuleik Íslands- sögunnar. Þar var Eusebio fremstur meðal jafn- ingja, en frægðarsól hans má líkja við Cristiano Ronaldo í dag. Benfica var á þessum tíma eitt allra besta lið Evrópu og hafði árinu áður mætt Manchester United í úrslitaleik Meistara- deildarinnar. Valsmönnum tókst hið ómögu- lega, að ná jafntefli 0:0 hér heima, en úti- leikurinn fór heldur verr. Þeim leik tapaði Valur 8:1. Ljósmynd/Sv. Þormar Viðureignir við stórlið  Valur - Celtic 1975  Fram - Real Madrid 1974  Keflavík - Everton 1970  ÍA - Köln 1980  Valur - Hamburg 1979  ÍA - Aberdeen 1983  KR - Everton 1995  Valur - Mónakó 1989  Valur - Juventus 1986  FH - Aston Villa 2008 F.C. Internazionale Milano, betur þekkt sem Inter Milano, er stofnað 1908 og hefur unn- ið ítölsku deildina 18 sinnum. Bikarinn hafa þeir unnið sjö sinnum og níu sinnum hafa þeir hampað bikurum á vegum UEFA og FIFA, þar af Meistaradeildina þrisvar sinnum, síðast 2010 þegar Jose Mourinho stýrði lið- inu. Liðið var lengi í eigu Massimo Moratti sem seldi félagið til Erick Thohir, indversks kaupsýslumanns á 500 milljónir dala árið 2013. Inter er eitt af þrem stóru liðunum á Ítalíu ásamt Juventus og AC Milan en það er oft- ast nefnt sem litli bróðir AC Milan frá sömu borg. Inter er mjög vinsælt á Ítalíu og var eina „stóra“ liðið þar í landi sem var ekki dæmt í hinum alræmda Calciopoli-skandal þar sem meðal annars Juventus var dæmt niður um deild og titlar teknir af liðinu. Inter er nú undir stjórn Walter Mazzarri sem er að hefja sitt annað tímabil við stjórn- völinn. Hefur hann verið að safna liði eftir vonbrigði undanfarinna ára. Hefur félagið fengið fjölmarga leikmenn sem forvitnilegt verður að sjá gegn áhugamönnunum úr Garðabæ. Stórliðið Inter Milano Innkoma á heimaleik Inter Milan: 171 milljón króna* **Rúmlega eitt þúsund áhorfendur mæta á leiki Stjörnunnar og kostar 1500 krónur inn. *Heimild: inter.it Stjarnan: 1,5 milljón króna** Íbúafjöldi Mílanó: 1,3 milljónir manna Garðabær: 13 þúsund Styrkleikalisti UEFA Inter Milan: 23 Stjarnan: 422 Verðmæti leikmanna **Undirritaður metur; Jóhann Laxdal, Ingvar Jónsson, Ólaf Karl Finsen, Martin Rauschenberg á 20 milljónir og Michael Præst á 30.Aðrir eru óskrifað blað. *Heimild: La Gazzetta dello Sport Metið á 56 milljarða krona* Mat blaðamanns er 110 milljónir króna** Heimavöllurinn Heimild: KSÍ - inter.it Giuseppe Meazza tekur 80 þúsund manns Samsung völlurinn tekur 1400 manns Ársvelta Stjarnan: 70,6 milljónir króna** **Samkvæmt ársreikningi 2012 *Heimild: forbes.com Inter Milan: 26 milljarðar króna*

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.