Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Síða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.08.2014, Síða 51
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Öll él birtir upp um síðir. 17.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Á næstunni kemur út hjá Bjarti sænska verðlauna- og metsölubókin Í leyfisleysi eftir Lenu Andersson. Í leyfisleysi sló óvænt í gegn í Svíþjóð í fyrra og fyrsta prentun seldist upp á örfá- um dögum. Mikið hefur verið slúðrað um að hið forboðna samband sem lýst er í sögunni sé byggt á sam- bandi Lenu við frægan kvik- myndagerðarmann, Roy Andersson. Önnur að- alpersónan, Hugo Rask, á augljóslega mjög margt sammerkt með kvikmynda- gerðarmanninum og Ester Nilsson þykir býsna lík Lenu Andersson. Höfund- urinn hefur þó ekki viljað staðfesta þetta. Í leyfisleysi er sjötta bók Lenu en þær fyrri höfðu vakið litla athygli nema í þröngum hópi. Sagan fékk August-verðlaunin sem skáldsaga ársins 2013 og fleiri verðlaun fylgdu í kjöl- farið, auk þess sem bókin hefur setið á sænskum met- sölulistum síðan. Þetta er svolítið skemmtilegt í ljósi þess að höfundurinn segist sjálf almennt forðast met- sölubækur því þær sem hún hafi lesið séu næstum und- antekningarlaust fremur slakar bókmenntir. Lena Andersson fæddist árið 1970. Hún skrifar reglulega bókmennta- gagnrýni og pistla í sænska dagblaðið Dagens Nyheter og þykir oft glögg á það sem hæst ber í menningar- og samfélagsmálum hverju sinni. Um þessar mundir vinnur Lena Andersson að sjálfstæðu framhaldi skáldsögunnar Í leyfisleysi. Í leyfisleysi er sænsk verðlaunabók og ýmsir velta fyrir sér fyrirmyndunum. RAUNVERULEIKINN OG ÁSTIN Sönn saga John Dolan er komin út á bók og hefur vakið athygli. Dolan var síbrotamaður sem sat mörg- um sinnum í fangelsi, samtals tólf ár og bjó á götum Lundúnaborgar þess á milli. Lífið á götunni var erfitt og því framdi hann oft smáglæpi til að komast aftur í hlýju fangelsisins. Það var hundurinn George sem breytti lífi hans. Dolan segir sögu þeirra í bókinni John & George - The Dog Who Changed My Life. John fékk George að gjöf og þeir urðu brátt óaðskiljanlegair og John, sem frá barnæsku hafði búið yfir myndlistarhæfileikum, fór að teikna myndir af George sem hann seldi vegfarendum. Þremur árum seinna, árið 2012, vöktu myndir Dolans athygli lög- fræðings sem var að opna listagallerí með myndum götulistamanna. Myndir Dolans rötuðu í galleríið og vöktu athygli og eru meðal annars í eigu Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra, og gamanleikarans Russell Brand. Bókaútgefandi sem fór á sýningu á myndum Dolan hitti listamanninn og gerði við hann vænan út- gáfusamning og nú er saga þeirra félaga komin út. Nú búa Dolan og George vitanlega ekki lengur á götunni, heldur í nágrenni við götuna þar sem þeir hittust fyrst. Dolan segir um George: „Hann bjargaði mér. Hann er eins og barnið sem ég eignaðist aldrei. Hann gaf mér lífið.“ HUNDUR BJARGAR SÍBROTAMANNI Saga John Dolan og George er falleg og upplífgandi. BÓKSALA 06.-12. ÁGÚST Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 AfdalabarnGuðrún frá Lundi 2 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson 3 Amma biður að heilsaFredrik Backman 4 NicelandKristján Ingi Einarsson 5 I Was HereKristján Ingi Einarsson 6 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafón 7 Leikur að tölumJessica Greenwell 8 Skrifað í stjörnurnarJohn Green 9 Iceland Small World - stórSigurgeir Sigurjónsson 10 Síðasti hlekkurinnFredrik T. Olsson Kiljur 1 AfdalabarnGuðrún frá Lundi 2 Amma biður að heilsaFredrik Backman 3 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafón 4 Síðasti hlekkurinnFredrik T. Olsson 5 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen 6 Lífið að leysaAlice Munro 7 Bragð af ástDorothy Koomson 8 Maður sem heitir OveFredrik Backman 9 Stúlkan frá Púerto RíkóEsmeralda Santiago 10 LjósaKristín Steinsdóttir Á þessum árstíma kemur út mikið af bókum sem ætlaðar eru erlendum ferðamönnum. Memories from Iceland er minningabók fyrir erlenda ferðamenn sem heimsækja Ís- land, þar sem þeir hafa á einum stað fallegar myndir frá vinsæl- um ferðamannastöðum og persónulega dagbók þar sem hægt er að safna saman á einn stað myndum, frásögnum, at- hugasemdum og persónulegri upplifun. Hugmyndina að bókinni á Lárus Guðmundsson, fyrrver- andi atvinnumaður í fótbolta, en hann lék bæði með íslenska landsliðinu og liðum í Belgíu og Þýskalandi á áttunda áratugn- um. Minningabók ferðamannsins Lífið að leysa er smásagnasafn eftir nóbelsverðlaunahafann Alice Munro sem nýkomið er út. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi og ritaði eftirmála. Alice Munro hlaut Bók- menntaverðlaun Nóbels 2013 fyrir smásögur sínar enda þykja þær einstök meistaraverk, knappar, afhjúpandi og spenn- andi. Það er sannarlega ástæða til að fagna þessari útgáfu og ná sér í eintak. Meistaralegar sögur Alice Munro Smásögur nóbelsverð- launaskálds NÝJAR BÆKUR ÞAÐ HLÝTUR AÐ TELJAST TIL GLEÐILEGRA TÍÐINDA AÐ SMÁSAGNASAFN EFTIR NÓBELS- VERÐLAUNAHAFANN ALILCE MUNRO ER KOMIÐ ÚT. BÆKUR FYRIR ERLENDA FERÐAMENN ERU ÁBERANDI Í BÓKAVERSLUNUM ÞESSAR VIKURNAR. SKEMMTILEGAR BÆKUR FYRIR BÖRN ERU SVO KOMNAR Á MARKAÐ. Ragnar Axelsson er ekki einungis einn af fremstu ljósmyndurum Ís- lands heldur einnig í hópi mestu heimildarljósmyndara heimsins. Myndir hans birtast víða og vekja ætíð jafnmikla aðdáun. Í lítilli bók sem kennd er við hann og gefin er út á ensku í þægilegu broti er að finna úrval af ljósmyndum hans og þar eru myndir frá Íslandi og Grænlandi áberandi. Úrval af myndum RAX Viltu vita meira um vísindin? er afar skemmtileg og ríkulega myndskreytt flipabók með ótal fróðleiks- molum. Bók þar sem undraheimur vísindanna er kynntur fyrir ungum lesendum. Vísindamenn veittu ráðgjöf við þýðinguna. Leikur með tölum er önnur skemmtileg barnabók þar sem börnum, fimm ára og eldri, er kennt að telja, reikna og margfalda og átta sig á því hvað klukkan er. Vísindi og tölur fyrir fróðleiksfús börn * Þú ert frjáls og þess vegna ertu ráðvilltur. Franz Kafka

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.