Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 44
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
göngu við netið við matreiðslu og
fari þá bæði á innlendar og erlendar
síður. Hann er með vinsæla síðu,
Læknirinn í eldhúsinu, gefur út
matreiðslubækur og gerir
sjónvarpsþætti. Hann segir að
matarbloggararnir sjái hvaða fólk
lesi færslurnar. „Þeir sem eru nær
mér í aldri fylgjast með hjá mér. Ég
held að það sé alltaf þannig, fólk
þroskast á svipaðan hátt í matreiðsl-
unni, byrjar á einhverju einföldu og
fer einhvern tímann að standa sjö
tíma í eldhúsinu. Eftir að hafa farið
um matargerðarlist alls heimsins
kemur svo gamli heimilismaturinn
allt í einu aftur og maður fer að gera
eigin kæfu og annað slíkt,“ segir
Ragnar.
Hann telur að lambakjötið sé
samofið þessari þróun. Það taki tíma
fyrir fólk að þroskast inn í það og
átta sig á því hvernig best er að nota
það.
Þá skipti tíminn máli, að sögn
Ragnars. Kjúklingurinn hafi yf-
irburði á því sviði því það taki aðeins
nokkrar mínútur að gera góðan rétt
úr honum. Ef taka eigi sambæri-
legan vöðva af lambinu, til dæmis
lambalund, taki það klukkutíma og
kortér, hjá manni sem kunni vel til
verka. „Á því sviði verður lambið
undir, því miður,“ segir Ragnar.
Berglind Guðmundsdóttir telur
algengt að fólk hugsi um lambakjöt
sem læri eða hrygg í ofni. Það henti
ekki vel í hraða dagsins, þegar fólk
komi heim úr vinnu og taki til við að
elda kvöldmatinn. Meiri skipulagn-
ingu þurfi til þess. Þess vegna verði
fljótlegri réttirnir fyrir valinu, til
dæmis kjúklingur.
Berglind segir hægt að vinna heil-
mikið með lambakjötið. Elda það
samkvæmt aðferðum sem notaðar
eru í fjarlægum löndum þar sem það
er vinsælt.
Þarf að gera betur
Sigurður Eyþórsson kannast vel
við umræðuna um að lambakjötið sé
að verða undir. „Stærstu breyting-
arnar á kjötmarkaði eru ekki sér-
íslenskar. Hlutdeild kjúklinga á
kjötmarkaði hefur fimmfaldast frá
því byrjað var að selja þá ferska.“
Hann segir að afurða- og sölufyr-
irtæki lambakjöts þurfi að gera bet-
ur í vöruþróun til að bregðast við
breytingum á markaðnum og hafa
samtök sauðfjárbænda ýtt á það.
Fyrirtækin hafa gert ýmislegt í því
að koma aðgengilegri vöru á mark-
að.
Sigurður segir að það sé ekki ný
umræða að ungt fólk borði minna af
lambakjöti. „Þetta er samt þannig
að þegar fólk eldist, fer það meira að
huga að lambakjötinu. Það sýna
einnig sölutölur. Lambakjötið hefur
haldið ágætlega hlutdeild sinni á
kjötmarkaðnum á undanförnum ár-
um.“
Markaðsfólk lambakjötsins hefur
reynt að nota sér nýjað aðferðir við
markaðssetningu. Það rekur upp-
skriftavefinn lambakjot.is sem
tengdur samfélagsmiðlum og dreifir
snjallsímaappi á síðunni. Sigurður
tekur fram að fólk noti mismunandi
aðferðir til að ná sér í upplýsingar
og því þurfi víðtæka miðlun til að ná
til allra. Vissulega séu þarna tæki-
færi sem mætti nýta betur.
Erlend neysluáhrif
Kjötneysla Íslendinga er nokkuð
frábrugðin því sem algengast er í
nágrannalöndum. Einkum sker
lambakjötið sig úr, með margfalt
stærri hlutdeild hér en víðast hvar
annars staðar.
Ragnar Freyr telur aðspurður
ekki ólíklegt að neyslumynstrið frá
nágrannalöndunum smiti hingað í
gegnum innlend og erlend mat-
arblogg og matreiðsluþætti í sjón-
varpi. Sú staðreynd að mikið þurfi
að hafa fyrir því að finna lambakjöt í
stórmörkuðum erlendis endurspegl-
ist í þeim upplýsingaveitum sem fólk
noti. Þar fari jafn lítið fyrir lamba-
kjötinu.
„Öll speglum við þann veruleika
sem við viljum lifa í. Minn veruleiki
er að kaupa gott hráefni, nostra við
það frá grunni og elda og setjast síð-
an niður með fjölskyldunni. Það vil
ég sýna á minni síðu,“ segir Ragnar.
Sækja þarf fram á nýjum markaði
Matarbloggarar endurspegla eigin áhugasvið Lambakjötið nær ekki í gegn í nýju miðlunum
Kjúklingurinn hefur yfirburði í hraða dagsins Sauðfjárbændur vilja fjölbreyttara vöruframboð
Morgunblaðið/RAX
Kjötvinnsla Afurðasölufyrirtækin vinna stöðugt að vöruþróun. Meðal annars er farið að úrbeina og hálfúrbeina lærin meira en gert hefur verið.
Morgunblaðið/Golli
Kvöldverður Hægt er að galdra fram góðan hversdagsmat úr ferskum kjúklingi á stuttum tíma.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég kem með það sem ég sjálf hrífst
af og margir lesa. Þar kemur kjúk-
lingurinn langsterkastur inn og
hann er notaður bæði spari og
hversdags,“ segir Berglind Guð-
mundsdóttir matarbloggari sem
heldur úti síðunni Gulur-Rauður-
Grænn & Salt með áherslu á fljót-
lega rétti fyrir sælkera. Hún nefnir
að auk kjúklingauppskrifta lesi fólk
mikið eftirréttauppskriftir. Færslur
um kjöt og fisk eru ekki eins vinsæl-
ar.
Í framhaldi af fréttum um nokk-
urn samdrátt í sölu lambakjöts á
þessu ári hafa vaknað spurningar
um það hvort lambakjötið höfði til
ungs fólks, það kunni jafnvel ekki að
elda það og finnist það dýrt. Einn
Facebook-notandi skoðaði síður
tveggja vinsælla matarbloggara sem
talið er að yngra kynslóðin noti mik-
ið. Lausleg talning sýndi að á ann-
arri síðunni voru um 90 kjúklinga-
uppskriftir á móti 6 lambakjöts-
réttum og á hinni rúmlega 40
uppskriftir með kjúklingi á móti 4
með lambakjöti. Auk þess var mikill
fjöldi af nautahakksuppskriftum á
báðum síðum.
„Þetta er örugglega einhver hluti
af skýringunni enda teljum við að
sækja þurfi meira fram á þessum
markaði. Hafa fjölbreyttara vöru-
framboð og sveigjanlegri vörur,“
segir Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka sauð-
fjárbænda og Markaðsráðs kinda-
kjöts, þegar þetta er borið undir
hann og spurt hvort lambakjötið
höfði ekki lengur til ungs fólks.
Sækja uppskriftir á netið
Matarbloggarar höfða til mismun-
andi markhópa, bæði eftir aldri og
áhugasviðum í matreiðslu. Flestir
eru að draga eitthvað nýtt fram.
Ragnar Freyr Ingvarsson mat-
arbloggari telur að sú kynslóð sem
kemur á eftir hans styðjist nær ein-
Kauptúni 3 / Garðabæ / Sími: 564-3364
Ævintýraleg
gæludýrabúð
kíktu í heimsókn